Hoppa yfir valmynd
18. maí 2022 Innviðaráðuneytið

Alþjóðadagur kvenna í siglingum haldinn í fyrsta sinn

Alþjóðasiglingamálastofnunin (IMO) hefur valið 18. maí til að vekja athygli á stöðu kvenna í siglingum, við sjósókn eða sjávarútvegi. Þetta er fyrsta árið sem það er gert en dagurinn verður framvegis helgaður þeim. Þetta er í fyrsta sinn sem dagurinn er helgaður Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, ritaði grein af þessu tilefni sem m.a. var birt í Morgunblaðið.

„Í engri starfsstétt er jafnmikill kynjahalli og í sjómennsku. Örfáar konur hafa útskrifast úr skipstjórn eða vélstjórn. Einungis 1% skipstjórnarmenntaðra eru konur en til samanburðar eru konur handhafar tæplega 12% flugskírteina. Af 2542 sem hafa útskrifast af lokastigi vélstjórnar eru 7 konur. Það er þó örlítið bjartara framundan því að nú eru 7% af nemum í skipstjórn konur. Grunnurinn að miklum mun á heildarlaunum kynjanna í sjávarbyggðum stafar ekki síst af háum tekjum karla á sjó. Samkvæmt Hagstofu voru tæp 9% af þeim sem unnu við fiskveiðar konur en voru 43% af þeim sem unnu við fiskvinnslu. Laun við landvinnslu eru brot af því sem fólk fær fyrir sambærilegt starf á sjó þar sem ríkir jafnrétti og greitt er samkvæmt aflahlut,“ segir í greininni

Greininni lýkur ráðherra með þessu orðum: „Ég vil hvetja stofnanir og fyrirtæki sem hafa sjóinn að vettvangi til að brjóta hefðir og opna dyr sínar og skapa hvetjandi umhverfi þar sem konur njóta jafnræðis á við karla í störfum á sjó.“

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum