Svör birtast hér fyrir neðan
Hvers vegna að efla sveitarstjórnarstigið?
Nauðsynlegt er talið að efla sveitarstjórnarstigið. Fleiri verkefni sem á síðustu árum hafa verið færð sveitarfélögum og frekari verkefnaflutningur krefst stærri og öflugri rekstrareininga. Ríkisstjórnin hefur markað þá stefnu að færa skuli ábyrgð á lögbundinni þjónustu við aldraða og fatlaða frá ríki til sveitarfélaga. Verkefnisstjórn sem skipuð er fulltrúum félags- og tryggingamálaráðherra, samgönguráðherra og heilbrigðisráðherra fer með yfirstjórn verkefnisins og fjallar um greiningu kostnaðar, tekjustofna, jöfnunaraðgerðir og tímasetningar. Gert er ráð fyrir að málefni fatlaðra færist til sveitarfélaga árið 2011 og málefni aldraðra 2012.
Markmiðið með þessum verkefnaflutningi er að fagleg og fjárhagsleg ábyrgð þessara mála verði á hendi eins aðila. Jafnframt verði tekjustofnum breytt á þann veg að sveitarfélög geti mætt auknum útgjöldum. Gera má ráð fyrir að verkefnaflutningurinn þýði að um 30 milljarðar króna flytjist árlega frá ríki til sveitarfélaga.
Þessar aðgerðir eru beinn liður í því að efla sveitarstjórnarstigið. Stækkun sveitarfélaga er grundvallar forsenda fyrir því að unnt sé að færa verkefni frá ríki til sveitarfélaga. Talið er að hvert þjónustusvæði þurfi að telja sjö til átta þúsund íbúa til að unnt sé að standa undir og uppfylla nauðsynlega þjónustu á þessum sviðum. Sveitarfélög með færri íbúa munu því þurfa að leita samstarfs við annað eða önnur sveitarfélög í byggðasamlagi eða öðru formlegu samstarfi til að sinna þessum nýju verkefnum.
Þá má benda á þá ótvíræðu lagaskyldu sem lögð er á ráðherra sveitastjórnarmála en í 88. grein sveitarstjórnarlaganna segir:
„Ráðuneytið skal vinna að stækkun sveitarfélaga með samruna fámennra sveitarfélaga í stærri og öflugri heildir. Skal ráðuneytið vinna að þessu í samráði við einstök sveitarfélög, Samband íslenskra sveitarfélaga og landshlutasamtök sveitarfélaga.“
