Umferðarstofa

Umferðarstofa annast stjórnsýslu á sviði umferðarmála og sinnir í meginatriðum þeim verkefnum sem Skráningarstofan ehf. og Umferðarráð höfðu umsjón með til 1.okt 2002. Um er að ræða skráningu ökutækja, tæknileg atriði sem tengjast ökutækjum, umferðarreglur og reglur um hvíldartíma ökumanna, forskriftir um skoðun ökutækja og eftirlit með skoðunarstofum og skráningu á evrópskum heildargerðarviðurkenningum ökutækja á EES-svæðinu fyrir Norðurlöndin. Einnig mun Umferðarstofa annast innleiðingu EES reglugerða um búnað og notkun ökutækja, umsjón og eftirlit með ökunámi og ökuprófum, slysaskráningar og slysarannsóknir, fræðslu og miðlun upplýsinga um umferðaröryggismál og fleira.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica