Rannsóknarnefnd flugslysa
Flugmálastjórn fór með rannsókn flugslysa allt frá því að hún var stofnuð árið 1945, fram á mitt árið 1996. Rannsóknarnefnd flugslysa var skipuð 1. september 1968, í samræmi við lög um loftferðir nr. 34/1964. Nefndin var skipuð 5 mönnum til 4. ára í senn og starfaði sjálfstætt svo og í samvinnu við Flugmálastjórn.
Sérstök lög nr. 59/1996 um rannsókn flugslysa, tóku gildi 21. maí 1996 og jafnframt voru þá numin úr gildi 141.-147 . ákvæði loftferðalaganna frá 1964 sem annars eru enn í gildi. Hin nýju lög voru sett í samræmi við alþjóðareglur, svo og í samræmi við tilskipun Evrópusambandsins nr. 94/56/EB, frá 21 . nóvember 1964 en þar stendur m.a.:
Hvert aðildarríki skal tryggja að fastir rannsóknaraðilar framkvæmi eða hafi eftirlit með tæknilegri rannsókn í almenningsflugi. Þeir skulu vera óháðir í starfi sínu, einkum gagnvart innlendum flugmálayfirvöldum sem bera ábyrgð á lofthæfi, útgáfu skírteina, flugrekstri, viðhaldi, leyfisveitingum, flugumferðarstjórn og rekstri flugvalla og yfirleitt öllum öðrum aðilum sem hagsmunaárekstrar gætu orðið við í sambandi við verkefnið sem rannsóknaraðilum er falið.
Ísland var ásamt hinum Norðurlöndunum fjórum, Bretlandi og Þýskalandi, fyrst Vestur-Evrópuríkja til þess að koma á þessari skipan mála.
Samgönguráðherra skipaði í framhaldi af þessu nýja Rannsóknarnefnd flugslysa hinn 28. júní 1996. Í nefndinni eiga fimm menn sæti. Tveir eru fastir starfsmenn nefndarinnar en þrír nefndarmenn eru skipaðir til 4. ára í senn.
Samkvæmt lögunum starfar Rannsóknarnefnd flugslysa sjálfstætt og óháð stjórnvöldum og öðrum rannsóknaraðilum, ákæruvaldi og dómstólum. Flugslysarannsóknir miða að því einu að greina orsakaþætti flugslysa í því skyni að koma í veg fyrir að flugslys endurtaki sig og að öryggi í flugi megi aukast. Skýrslum Rannsóknarnefndar flugslysa skal ekki beitt sem sönnunargögnum í opinberum málum.
Nefndin hefur aðsetur á 2. hæð húss FBS-R við Flugvallarveg á Reykjavíkurflugvelli.
- Heimasíða hennar hefur slóðina http://www.rnf.is
