Vegagerðin
Vegagerðin er veghaldari þjóðvega samkvæmt vegalögum nr. 45/1994. Veghaldari er sá aðili sem hefur veghald, en veghald merkir forræði yfir vegi og vegsvæði, þar með talið vegagerð, þjónusta og viðhald vega. Vegagerðin hefur skilgreint hlutverk sitt nánar á eftirfarandi hátt: Að sjá samfélaginu fyrir vegakerfi í samræmi við þarfir þess og veita þjónustu sem miði að greiðri og öruggri umferð. Með þessu er átt við að samgöngur séu tryggar allt árið með eins litlum tilkostnaði og eins miklum þægindum og hægt er fyrir vegfarendur. Sérstök áhersla er lögð á samgöngur innan þjónustsvæða og að leiðarvísum sé eins skilmerkileg og frekast er kostur. Við gerð vega og viðhald þeirra er lögð sérstök áhersla á að slys verði sem fæst á vegfarendum ekki síst hinum óvarða eða gangandi vegfaranda. Reynt er að taka sem mest tillit til óska vegfarenda og að sambúð vegar og umferðar við umhverfi og íbúa sé sem best. Sérstaklega er reynt að hafa mengun eins litla og hægt er og sýna náttúru og minjum tillitsemi.
- Veffang: http://www.vegag.is
