Póst- og fjarskiptastofnun

Póst- og fjarskiptastofnun
Suðurlandsbraut 4
105 Reykjavík
http://pfs.is/

Póst- og fjarskiptastofnunin er ríkisstofnun, sem starfar samkvæmt lögum nr. 147/1996 dagsett 27. desember 1996. Þar segir m.a:

Póst- og fjarskiptastofnun hefur umsjón með framkvæmd fjarskipta- og póstmála hér á landi eftir því sem mælt er fyrir í lögum þessum og öðrum lögum sem um fjarskipta- og póstmál fjalla. Póst- og fjarskiptastofnunin er sjálfstæð stofnun en undir yfirstjórn samgönguráðherra.

Verkefni Póst- og fjarskiptastofnunar eru m.a.

  1. Að gefa út og veita leyfi til fjarskipta- og póstþjónustu samkvæmt lögum um fjarskipti og lögum um póstþjónustu.
  2. Að hafa eftirlit með því að leyfishafi uppfylli og virði þau skilyrði og aðrar kvaðir sem rekstrarleyfum fylgja.
  3. Að hafa eftirlit með því að ákvæði laga um fjarskipti og laga um póstþjónustu, auk reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim séu virt.
  4. Að vera ráðgefandi fyrir stjórnvöld og ráðuneyti á sviði fjarskipta- og póstmála og hafa eftirlit með því að Ísland uppfylli á hverjum tíma þær skuldbindingar sem mælt er fyrir um í alþjóðlegum samningum á sviði fjarskipta- og póstmála.
  5. Að gera áætlanir um notkun tíðnirófsins í samræmi við alþjóðlegar reglur og úthluta tíðnum til einstakra leyfishafa og fyrir mismunandi þjónustu, þar með talið útvarpsþjónustu.
  6. Að setja reglur um tæknilega eiginleika kapalkerfa og hafa eftirlit með því að þeim sé framfylgt.
  7. Að hafa eftirlit með viðskiptaskilmálum leyfishafa, gjaldskrám og bókhaldi, þar sem það á við.
  8. Að hafa umsjón með og ákvarða fjárframlög vegna alþjónustu og óarðbærrar þjónustu.
  9. Að hafa eftirlit með fjarskiptabúnaði.
  10. Að setja reglur um úthlutun notendanúmera.
  11. Að hafa eftirlit með samtengingu fjarskiptaneta.
  12. Að veita leyfi til að annast uppsetningu og aðra tækniþjónustu við fjarskiptavirki.
  13. Að framkvæma gerðarprófanir, gefa út gerðarsamþykki og hafa umsjón með innflutningi fjarskiptabúnaðar.
  14. Að taka þátt í samstarfi sem leiðir af alþjóðlegum skuldbindingum á sviði fjarskipta- og póstmála.
  15. Að gefa út öryggisvottorð fyrir fjarskiptabúnað þar sem þess er krafist samkvæmt lögum og reglugerðum.
  16. Að annast skráningu og halda skrá yfir póstrekendur.
  17. Annað sem lýtur að framkvæmd fjarskipta- og póstmála hér á landi.

Ákvörðun stofnunarinnar má skjóta til úrskurðarnefndar, sem samgönguráðherra skipar. Hana skipa þrír menn tilnefndir af hæstarétti, Verkfræðingafélagi Íslands og samgönguráðherra.

Póst- og fjarskiptastofnun skiptist í eftirfarandi deildir:

Leyfisveitingar (LV)
Stefnumótun og alþjóðasamskipti (SA)
Fjarskipta- og póstþjónusta (FP)
Tækni (TD)
Rekstur (RE)

Yfirmenn deilda heyra beint undir forstjóra

Verksvið deilda er sem hér segir:

Leyfisveitingadeild
Útgáfa leyfa fyrir póst- og fjarskiptastarfsemi, úttekt á og eftirlit með starfsemi leyfishafa, bókhaldseftirlit, móttaka og athugun kvartana vegna starfsemi leyfishafa og lögfræðiráðgjöf fyrir aðrar deildir.

Stefnumótun og alþjóðasamtakadeild
Almenn stefnumörkun fyrir Póst- og fjarskiptastofnun, hugmyndir og tillögur um opinbera stefnumörkun í póst- og fjarskiptamálum þ.m.t. upplýsingatækni, stefnumörkun í útvarpsmálum m.a. úthlutun rása og kapalkerfi, stefna PFS í leyfisveitingum, formleg samskipti við alþjóðasamtök, EES mál.

Fjarskipta- og póstþjónustudeild
Skilgreining og skráning mismunandi þjónustu, alþjónustu, opinn aðgangur að netum, númer- og vistfangaskipulag og úthlutun, gjaldamál, lágmarkspóstþjónusta, reglugerðasmíði.

Tæknideild
Starfræksla tæknikjarna sem miðstöð upplýsinga um net, kerfi og búnað, tæknileg umfjöllun fjarskiptastaðla, rannsóknaráætlanir (einkum ESB), fagleg þátttaka í alþjóðastarfi, skipulag tíðnisviðsins, úthlutun tíðna, staðsetning stöðva, skoðun stöðva, truflanamál, tæknireglur, gerðaprófun, tæknilegar skilgreiningar á samtengingu neta, gervitunglaútvarp, afmörkun útvarpsssvæða, tölvumál og tölvutengingar og tæknihlið upplýsingakerfa.

Rekstrardeild
Fjármál þ.m.t. innheimtumál, innkaupamál, reikningsfærslur og bókhald, gjaldskrármál PFS, starfsmannamál, fjarvistaskráning, kynningar og fræðslumál, afhending leyfisbréfa, innflutningsafgreiðsla, upplýsingakerfi(innihald), skrifstofuhald.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica