Siglingastofnun Íslands
Siglingastofnun Íslands varð til við samruna Hafnamálastofnunar ríkisins, Siglingamálastofnunar ríkisins og Vitastofnunar Íslands þann 1. október 1996.
Almennt lúta verkefni stofnunarinnar að því, að skapa hagkvæmar og öruggar aðstæður til siglinga og fiskveiða við landið, annast þjónustu við sjófarendur og sinna öryggismálum þeirra. Samkvæmt lögum nr. 6/1996 um Siglingastofnun Íslands skal stofnunin annast framkvæmd eftirtalinna laga; laga um eftirlit með skipum, laga um mælingu skipa, laga um skráningu skipa, laga um vitamál, laga um leiðsögu skipa og laga um kafarastörf. Þá skal stofnunin annast þátt ríkisins í framkvæmd hafnalaga. Jafnframt fer stofnunin með mál er varða lög um varnir gegn mengun sjávar og mál er varða siglinga- og sjómannalög að því leyti sem þau tengjast skipum, skráningu þeirra, búnaði og siglingaöryggi.
Starfsemi siglingastofnunar er skipt upp í fimm svið; vita-,hafna-, skipa-, skoðunar- og skrifstofusvið. Undir skipasvið falla reglugerðir, skipatækni, slysarannsóknir, skipaskrá og réttindamál sjómanna. Undir hafnasvið falla hafnamálin; rannsóknir, áætlanir, hönnun og umsjón með framkvæmdum. Undir vitasvið fellur rekstur vita, fasteigna og verkstæða svo og DGPS-leiðsögukerfið og upplýsingakerfi um veður og sjólag. Undir skoðunarsviðið fellur eftirlit með nýsmíði og breytingum á skipum svo og lögbundið eftirlit með skipum. Til að sinna eftirlitinu rekur skoðunarsviðið sex umdæmi úti á landi. Ein þeirra er í aðalstöðvunum í Kópavogi en fimm úti á landsbyggðinni.
Aðsetur: Vesturvör 2, Kópavogi
Póstfang: Pósthólf 120, 202 Kópavogur
Heimasíða: http://www.sigling.is
Upplýsingar um veður og sjólag
Sjálfvirkur símsvari á símatorgi opinn allan sólarhringinn; Sími 902 1000
Sími: 560 0000 Fax: 5600060
- Umdæmi skoðunarsviðs í Ólafsvík, Hjarðartúni 6
Sími: 436 1502 Fax 436 1552 - Umdæmi skoðunarsviðs á Ísafirði, Hafnarstræti 1
Sími: 456 4758 Fax 456 3846 - Umdæmi skoðunarsviðs á Akureyri, Furuvöllum 3
Sími: 462 4433 Fax: 461 2414 - Umdæmi skoðunarsviðs á Fáskrúðsfirði, Skólavegi 53
Sími: 475 1455 Fax: 475 1450 - Umdæmi skoðunarsviðs í Vestmannaeyjum, Heiðarvegi 15
Sími: 481 2145 Fax: 481 3228
