Heimasíða Flugstoða

Flugstoðir

Flugstoðir ohf. voru stofnaðar á liðnu sumri í framhaldi af setningu laga á Alþingi síðastliðið vor þar sem breytt var skipulagi flugmála á Íslandi. Fyrirtækið tók formlega til starfa 1. janúar.

Hlutverk Flugstoða ohf. er að annast flugleiðsöguþjónustu fyrir flug um Ísland og millilandaflug. Einnig annast félagið þjónustu á íslenska flugstjórnarsvæðinu sem þjónar vélum á leið milli Evrópu og Bandaríkjanna. Þá hefur félagið á sinni könnu rekstur og uppbyggingu flugvalla og lendingarstaða á Íslandi nema Keflavíkurflugvallar.

Forstjóri Flugstoða ohf. er Þorgeir Pálsson, fyrrverandi flugmálastjóri. Formaður stjórnar er Ólafur Sveinsson og aðrir stjórnarmenn eru Arnbjörg Sveinsdóttir, sem er varaformaður, Sæunn Stefánsdóttir ritari, Gunnar Finnsson og Hilmar Baldursson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica