Stofnanir, hlutafélög og rannsóknarnefndir er falla undir ráðuneytið
![]() |
Flugmálastjórn ÍslandsMegin hlutverk Flugmálastjórnar, sem breyttist 1. janúar 2007 með stofnun Flugstoða ohf., er að annast stjórnsýslu og eftirlit með flugmálum í landinu, þar með talið hvers konar heimildarveitingar, alþjóðleg samskipti og flugöryggismál. |
![]() |
Póst- og fjarskiptastofnunPóst- og fjarskiptastofnun hefur umsjón með framkvæmd fjarskipta- og póstmála hér á landi eftir því sem mælt er fyrir í lögum sem um fjarskipta- og póstmál fjalla. Meðal verkefna stofnunarinnar er úthlutun rekstrarleyfa, eftirlit með rekstrarleyfishöfum, úthlutun tíðna, úthlutun númera og númeraraða, veiting gerðarsamþykkis fyrir notendabúnað og úrlausn deilumála á markaði. |
![]() |
Siglingastofnun ÍslandsHlutverk Siglingastofnunar er að vinna að öryggi sjófarenda og að skapa hagkvæmar og öruggar aðstæður til siglinga og fiskveiða við landið. Undir stofnunina heyrir rekstur vita og leiðsögukerfa, eftirlit með skipum og búnaði þeirra, skráning og mæling skipa, aðstoð við rannsókn sjóslysa, áætlanagerð og umsjón með hafnaframkvæmdum auk rannsóknastarfa. |
![]() |
UmferðarstofaUmferðarstofa fer með stjórnsýslu á sviði umferðarmála, einkum varðandi umferðarreglur, ökutæki, ökupróf og ökunám, umferðarfræðslu, slysarannsóknir, slysaskráningar og fleira. Í Umferðarstofu sameinuðust Skráningarstofan ehf. og Umferðarráð árið 2002. |
![]() |
VegagerðinHlutverk Vegagerðinnar er að sjá samfélaginu fyrir vegakerfi í samræmi við þarfir þess og veita þjónustu sem miðar að greiðri og öruggri umferð. Með þessu er átt við að samgöngur séu tryggðar allt árið með eins litlum tilkostnaði og eins miklum þægindum og unnt er. Við gerð vega og viðhald þeirra er lögð sérstök áhersla á að slys verði sem fæst á vegfarendum - ekki síst hinum óvarða eða gangandi vegfaranda. |









