Nefnd um sameiningu Flugstoða ohf. og Keflavíkurflugvallar ohf.

Skipuð hefur verið nefnd sem falið er að kanna hugsanlega sameiningu Flugstoða ohf. og Keflavíkurflugvallar ohf.

Formaður nefndarinnar er Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, og aðrir nefndarmenn eru Ólafur Nilsson og Margrét S. Björnsdóttir.

Þá mun nefndin hafa samráð við forstöðumenn viðkomandi stofnana og/eða fulltrúa starfsmanna. Áætluð lok verkefnisins eru í lok árs 2009.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica