Beint í leiðarkerfi vefsins.
Samgöngur og umhverfismál var yfirskrift fundar samgönguráðs í vikunni þar sem fjallað var um það hvernig akstur, flug og siglingar hafa áhrif á umhverfið. Er þetta fjórði fundurinn í fundaröð samgönguráðs og sátu hann um 40 manns.
Kristján L. Möller samgönguráðherra og Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra ræddu málefni ráðuneyta sinna á opnum fundi á Höfn í Hornafirði í gærkvöld. Samgönguráðherra greindi frá fyrirhuguðum framkvæmdum við Hringveginn svo sem styttingu vegarins vestan við Höfn.
Samgönguráð efnir í næstu viku til fjórða fundar síns um stefnumótun í samgöngum. Verður þá fjallað um samgöngur og umhverfi. Fundurinn fer fram á Grand hóteli við Sigtún í Reykjavík miðvikudaginn 21. nóvember klukkan 15 til 17.
Lesa meira
Nærri 150 manns sátu daglanga rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar í gær þar sem flutt voru 20 erindi um ýmis rannsóknarverkefni. Var þetta sjötta ráðstefnan af þessum toga en rannsóknasjóður Vegagerðarinnar hefur um 100 milljónir króna til að ráðstafa í styrki árlega.
Kristján L. Möller samgönguráðherra ræddi samgöngu- og fjarskiptamál á almennum fundi á Patreksfirði í gærkvöld. Segir hann miklar umræður hafa skapast á fundinum og menn fagnað því að flýta á framkvæmdum og jafnframt lýst óþreyju sinni eftir meira átaki á þessum sviðum.
Unnt er að draga strax verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda frá bílaumferð og meðal möguleika til þess er að taka upp blöndun á eldsneyti með etanóli, lífolíu eða metanóli. Leggja þarf í ýmsar rannsóknir og skapa skattalegar forsendur til að ýta undir þessa þróun. Íslensk yfirvöld eru að kanna slíka möguleika.
Lesa meira
Samgönguráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna hittust á árlegum sumarfundi í Finnlandi á miðvikudag. Er þetta fyrsti fundur þeirra eftir að Kristján L. Möller tók við embætti samgönguráðherra.
Lesa meira
Á ársfundi Samtaka sveitarfélaga í Norðurlandi vestra sem nú stendur á Húnavöllum sagði Kristján L. Möller samgönguráðherra að hafinn væri undirbúningur að flutningi á málefnum sveitastjórna frá félagsmálaráðuneyti til samgönguráðuneytis.
Lesa meira
Fulltrúar sveitastjórna á Mið-Austurlandi áttu í fyrradag fund með samgönguráðherra um samgöngumál og einkum jarðgangagerð á Austurlandi. Sveitastjórnarmenn hafa sett fram hugmyndir um mikið átak í jarðgangagerð í fjórðungnum sem kynnt voru ráðherra.
Lesa meira
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. hefur lokið mati á kostnaði við gerð jarðganga sem vegtengingu milli Vestmannaeyja og Landeyja. Niðurstaða matsins er sú að tæknilega sé mögulegt að gera slík göng og að kostnaðurinn verði líklega á bilinu 50 til 80 milljarðar króna eftir gerð ganganna en áhætta er talin mikil.
Lesa meira
Flýta á vegaframkvæmdum á ellefu stöðum á landinu á næstu þremur árum og verða fluttir til 6,5 milljarðar króna vegna þessa. Framkvæmdirnar eru við Vestfjarðaveg, Arnarfjarðargöng, Strandaveg, Norðausturveg, Dettifossveg, Norðfjarðargöng, Axarveg, Suðurstrandarveg og Fróðárheiði.
Lesa meira
Fulltrúar Félags íslenskra bifreiðaeigenda, Umferðarstofu og samgönguráðherra skrifuðu í dag undir samning um áframhaldandi úttekt á þjóðvegakerfinu, staðlaðri gæða- og öryggiskönnun undir formerkjum EuroRap. Stefnt er að því að ljúka úttekt á öllum hringveginum á árinu og nokkrum öðrum vegarköflum einnig.
Lesa meiraVaðlaheiðargöng, uppbyggður vegur um Kjöl, Grímseyjarferja og flugvallamál komu til umræðu á fundum Kristjáns L. Möller samgönguráðherra með fulltrúum aðila þessara mála á Akureyri í gær. Ráðherrann hefur að undanförnu sett sig inn í verkefni ráðuneytisins og er nú að ljúka yfirferð í stofnanir þess.
Lesa meiraRíkisstjórnin hefur að tillögu samgönguráðherra ákveðið að ferðum Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs verði fjölgað í sumar. Áætlað er að bæta við rúmlega 20 ferðum á mikilvægum ferðadögum og þá daga verða því þrjár ferðir á dag.
Lesa meira
Flutningafyrirtæki innan vébanda Samtaka verslunar og þjónustu hafa hrundið af stað átaki til að minna vegfarendur á gildi vörudreifingar fyrir landsmenn. Um 100 vöruflutningabílar í þjónustu ýmissa aðila verða merktir sérstaklega og hleypti Kristján L. Möller samgönguráðherra átakinu formlega af stað í dag.
Lesa meira
Fjallað var um ýmsar hliðar á fjármögnun samgöngumannvirkja á þriðja fundi samgönguráðs um stefnumótun í samgöngum í gær. Kom þar meðal annars fram að einkaframkvæmd með veggjöldum sé leið til að auka tekjur til gerðar samgöngumannvirkja og að brýnt sé að finna fjáröflunarleiðir til að sinna brýnum samgönguframkvæmdum.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra skipaði í dag í starfshóp til að vinna að eflingu almenningssamgangna sveitarfélaga. Er það í framhaldi af samkomulagi Halldórs Halldórssonar, formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga, og ráðherra sem þeir skrifuðu undir 27. apríl.
Lesa meiraÞriðji fundur samgönguráðs um stefnumótun í samgöngum verður haldinn fimmtudaginn 24. maí kl. 15 til 17 á Grand hóteli í Reykjavík. Fjallað verður um fjármögnun samgöngumannvirkja.
Lesa meiraUmhverfisráðherra hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofnunar um nýjan Gjábakkaveg þess efnis að áhrif hans teljist ekki umtalsverð. Úrskurðurinn hefur í för með sér að Vegagerðinni er nú unnt að hefja hönnun og undirbúning útboðs í samræmi við fjárveitingar samgönguáætlunar.
Lesa meiraÁ vegum samgönguráðuneytisins er nú unnið að því að kanna hvort lækka megi flutningskostnað svo að Vestfirðingar sitji við sama borð og aðrir landsmenn í því efni. Skýrsla hefur verið unnin á vegum samgönguráðherra þar sem fram koma hugmyndir um hvernig hægt sé að leysa málið. Hugmyndirnar eru nú til meðferðar hjá samgönguráðuneytinu í tengslum við tillögur Vestfjarðarnefndarinnar.
Lesa meira
Samgönguráðherra hefur skipað nefnd sem leggja á tillögur fyrir ráðherra um hlutverk og gerð hálendisvega og slóða utan og innan friðlanda og þjóðgarða. Einnig er nefndinni falið að leggja fram hugmyndir um framtíðarþróun vegakerfis hálendisins.
Lesa meira
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar fékk Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra á fund sinn á föstdag til að ræða við hann um vegamál, fjarskipti og ferðamál. Var ráðherra meðal annars afhent úttekt á hættulegum vegamótum í sveitarfélaginu og rætt um mögulegar úrbætur.
Lesa meiraHalldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, hafa undirritað samkomulag um samstarf um að efla almenningssamgöngur sveitarfélaga. Samkomulagið er í samræmi við stefnumótun í samgönguáætlun fyrir árin 2007 til 2010.
Lesa meiraGengið hefur verið frá samningi um gerð nýs Tröllatunguvegar. Vegagerðin skrifaði undir samning um verkið við lægstbjóðanda, Ingileif Jónsson ehf. í Reykjavík og var Sturla Böðvarsson samgönguráðherra viðstaddur undirritunina á Ísafirði á föstudag.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur falið Vegagerðinni að hefja undirbúning að útboði á tvöföldun Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar út frá Reykjavík. Verður skipuð verkefnisstjórn til að vinna frumáætlun um fjármögnun og rekstrarfyrirkomulag og undirbúa samráð við viðkomandi sveitarfélög.
Lesa meiraSamgönguáætlanir fyrir árin 2007 til 2010 og 2007 til 2018 voru til umfjöllunar á síðustu starfsdögum Alþingis. Fjögurra ára áætlunin var samþykkt en tólf ára áætlunin var ekki afgreidd eins og gerðist með nokkur önnur frumvörp ríkisstjórnarinnar.
Lesa meiraÍ skýrslu samgönguráðherra um framkvæmd vegáætlunar 2006, sem dreift hefur verið á Alþingi, kemur meðal annars fram að tæplega 14 milljarðar króna fóru til hvers kyns vegamála á síðasta ári. Einnig hefur verið dreift á Alþingi skýrslu um stöðu umferðaröryggismála á síðasta ári.
Lesa meiraÁkveðið hefur verið að leggja mat á kostnað við gerð jarðganga milli lands og Eyja. Fengið verði óháð ráðgjafafyrirtæki til að annast verkefnið sem fælist í því að lesa úr fyrirliggjandi gögnum um rannsóknir og kostnaðarmat við hugmynd um jarðgöng.
Lesa meiraSiglingastofnun Íslands er nú að ljúka rannsóknum á mögulegum endurbótum á innsiglingunni á Rifshöfn á Snæfellsnesi. Starfsmenn stofnunarinnar kynntu í dag ráðherrum og þingmönnum helstu niðurstöður rannsóknarinnar en líkantilraunir hófust í nóvember síðastliðnum.
Lesa meiraTekið hefur gildi endurskoðuð reglugerð um stærð og þyngd ökutækja sem snertir einkum vöruflutningabíla. Markmið breytinganna er meðal annars að fella almennar undanþágur inní reglugerðina vegna stærðarmarka og hafa til þessa verið heimilaðar með undanþágum.
Lesa meiraFerðamálaráð leggst alfarið gegn hugmyndum um heilsársveg yfir Kjöl en telur að skoða beri til hlítar mögulegan ferðamannaveg, eins og fram kemur í núverandi skipulagi miðhálendisins, segir í ályktun sem ráðið samþykkti á fundi sínum nýverið.
Lesa meiraVegagerðin hefur auglýst eftir tilboðum í gerð nýs Trollatunguvegar sem verður alls 24,5 km langur. Verkinu á að vera lokið fyrir 1. september 2009.
Lesa meiraSamgönguráð og samgönguráðuneytið standa næstkomandi fimmtudag, 22. febrúar, fyrir fundi um öryggi vega. Er þetta annar fundurinn í fundaröð samgönguráðs um stefnumótun í samgöngum.
Lesa meiraTillaga til þingsályktunar um tólf ára samgönguáætlun áranna 2007 til 2018 er viðamikið plagg. Henni fylgir fjögurra ára áætlun 2007 til 2010. Vekja má athygli á því að báðar þessar áætlanir má finna á vefsíðu Alþingis.
Lesa meiraÖflugasta leiðin til að draga úr megnandi útblæstri frá bílum á Íslandi er að auka hlut dísilbíla; yfir 50% ferða fólks í Reykjavík til og frá vinnu eru styttri en 2 km; gera þarf ráð fyrir reiðhjólum í umferðinni og hætta að miða allt skipulag við bíla.
Lesa meiraMeð auknum flutningum á landi hafa málefni sem varða stærð og þyngd ökutækja í flutningum á vegum verið í brennidepli og hvernig málum verði best háttað án þess að það komi niður á umferðaröryggi.
Lesa meiraUmhverfismat samgönguáætlunar fyrir árin 2007 til 2018 fylgir nú áætluninni í fyrsta sinn og er það í samræmi við ný lög frá Alþingi á liðnu vori. Í skýrslu um matið er gerð grein fyrir heildarmati á afleiðingum áætlunarinnar á umhverfi og samfélag. Ísland er meðal fyrstu landa í Evrópu sem hrint hafa í framkvæmd mati á umhverfisáhrifum samgönguáætlunar á landsvísu en nokkur Evrópulönd hafa lagt fram umhverfisskýrslur með áætlunum sem ná til einstakra landsvæða.
Lesa meiraFrumvarp til nýrra vegalaga er nú til meðferðar á Alþingi en meðal breytinga sem þar eru lagðar til má nefna almenna heimild til gjaldtöku af umferð, breytingar á flokkun og veghaldi á vegum, nýmæli varðandi skipulag, hönnun og öryggi í umferð og ýmis nýmæli er varða kostnaðarskiptingu vegna aðgerða til að draga úr áhrifum frá umferðarhávaða.
Lesa meiraÍ nýjasta tölublaði Framkvæmdafrétta, fréttablaði Vegagerðarinnar, ber Hreinn Haraldsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs, saman kostnað við tvær leiðir fyrir nýbyggingu á kafla Vestfjarðavegar í Gufudalssveit. Segir hann jarðgangaleið munu verða tveimur til þremur milljörðum króna dýrari en fyrirhuguð leið um utanverðan Þorskafjörð og þverun Djúpafjarðar og Gufufjarðar.
Lesa meira
Komin er út bókin Brýr að baki, fjórða bindið í ritröð Verkfræðingafélags Íslands sem mun enda á 10. bindinu árið 2012 með því að fjalla um 100 ára sögu félagsins. Brýr að baki fjallar um brýr á Íslandi í 1100 ár og er höfundur hennar Sveinn Þórðarson sagnfræðingur.
Lesa meira
Rætt var um ferðir, búsetur og samgöngukerfi á fundi í dag, þeim fyrsta í fundaröð sem samgönguráð og samgönguráðuneyti standa fyrir næstu mánuði. Flutt voru þrjú erindi og í framhaldinu voru umræður og fyrirspurnir.
Lesa meira
Vegagerðin og verktakafyrirtækin KNH ehf. og Vestfirskir verktakar skrifuðu í dag undir verksamning um vegagerð á Djúpvegi í framhaldi af útboði sem fram fór í lok síðasta árs. Verksamningurinn tekur til 14,5 km kafla Djúpvegar milli Reykjaness og Hörtnár utarlega við vestanverðan Mjóafjörð. Verkinu á að ljúka fyrir 1. nóvember á næsta ári.
Lesa meira
Samgöngumál, fjarskipti og markaðsmál í ferðaþjónustu voru meðal umræðuefna í ávarpi Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra á aðalfundi Ferðamálasamtaka Íslands sem nú stendur á Ísafirði. Auk hefðbundinna aðalfundastarfa eru á fundinum flutt erindi um uppbyggingu markaðsstofu Vestfjarða og stefnumótun og miðlun upplýsinga.
Lesa meiraSamgönguráð og samgönguráðuneytið efna á næstunni til fundaraðar um samgöngumál. Sá fyrsti fer fram fimmtudaginn 25. janúar á Grand hóteli í Reykjavík og stendur milli kl. 15 og 17. Fundarefnið er: Ferðir, búseta og samgöngukerfi.
Lesa meiraSamgönguráðherra hefur ákveðið að veita samgönguverðlaun. Viðurkenningin verður veitt árlega þeim einstaklingi, samtökum eða stofnun sem þykir hafa lagt fram verðmætan skerf á einhverju sviði samgöngumála. Veitt verða peningaverðlaun auk verðlaunagrips.
Lesa meiraNefnd sem falið var að leggja fram tillögur um hvenær einkaframkvæmd í samgöngum gæti talist vænlegur kostur hefur skilað skýrslu. Kemst hún meðal annars að þeirri niðurstöðu að einkaframkvæmd sé álitleg leið sé hún ódýrari kostur en eiginframkvæmd ef annar kostur er um leiðaval og sértækri gjaldtöku beitt. Nefndin telur mikilvægt að finna nýjar fjáröflunarleiðir til að sinna brýnum samgönguframkvæmdum þar sem markaðir tekjustofnar standi greinilega ekki undir þeim öllum eins og staðan er nú.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra boðaði til fundar um samgöngu og fjarskiptamál á Café Riis á Hólmavík í gærkvöld, miðvikudagskvöldið 10. janúar. Um áttatíu manns mættu til fundarins.
Lesa meiraUmhverfisráðherra hefur kveðið upp úrskurð í kæru vegna úrskurðar Skipulagsstofnunar um vegagerð á Vestfjarðavegi nr. 60 þar sem hann liggur milli Bjarkarlundar og Eyrar í Kollafirði. Tillaga Vegagerðarinnar er að leggja nýjan veg á kafla meðfram ströndum og þvera Þorskafjörð, Djúpafjörð og Gufufjörð í stað þess að fylgja núverandi vegarstæði. Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra fellst á þessa tillögu Vegagerðarinnar með nokkrum skilyrðum, meðal annars að ræktaður yrði sambærilegur birkiskógur og raskast myndi við framkvæmdina.
Lesa meira