Vegakerfi í samræmi við þarfir
Vegamál eru umfangsmesti og fjárfrekasti málaflokkur samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis.
Leiðarljós ráðuneytisins í vegamálum eru greiðar-, öruggar-, umhverfisvænar- og hagkvæmar samgöngur.
Samkvæmt vegalögum nr. 80/2007 er Vegagerðin veghaldari þjóðvega eða sú stofnun sem hefur forræði yfir hönnun og gerð umferðarmannvirkja ásamt forræði á þjónustu og viðhaldi. Vegagerðin vinnur í samræmi við samgönguáætlun, annars vegar fjögurra ára samgönguáætlun og hins vegar 12 ára samgönguáætlun.
Hlutverk Vegagerðarinnar er þannig ,,að sjá samfélaginu fyrir vegakerfi í samræmi við þarfir þess og veita þjónustu sem miðar að greiðri og öruggri umferð". Í því felst að samgöngur eru tryggðar allt árið með eins litlum tilkostnaði og eins miklum þægindum og unnt er.
