Hér getur að líta skýrslu Rannsóknarnefndar umferðarslysa um banaslys í umferðinni fyrir árið 2003. Er efni skýrslunnar með svipuðu sniði og áður, þar sem tölfræði slysa er gerð ítarleg skil.
Lesa meira
Markviss skráning umferðarslysa hófst hér á landi árið 1966. Hugmyndin var sú að fá marktækan samanburð á slysatíðni fyrir og eftir árið 1968, þegar hægri umferð tók gildi. Umferðarráð var stofnað árið 1969 og var slysaskráningin í höndum þess allar götur fram til ársins 2002 þegar það var sameinað Skráningarstofunni og úr varð Umferðarstofa.
Lesa meira
Á hverju ári stendur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (World Health Organization - WHO) fyrir alþjóðlegum heilbrigðisdegi og í ár er hann helgaður umferðaröryggismálum.