Beint í leiðarkerfi vefsins.
Fyrsti alheimsfundur samgönguráðherra heimsins stendur nú yfir í Moskvu og er þar fjallað um umferðaröryggismál. Fulltrúi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra er sendiherra Íslands í Moskvu en auk um 50 ráðherra sitja fundinn fjölmargir sérfræðingar um umferðarmál.
Lesa meiraDrög að frumvarpi til nýrra umferðarlaga eru nú til umsagnar öðru sinni hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Unnt er að senda inn umsögn um drögin til og með 26. nóvember næstkomandi á netfangið postur@sam.stjr.is.
Lesa meiraNý drög að breytingu á reglugerð nr. 501/1997 um ökuskírteini og drög að breytingu á reglugerð nr. 327/1999 um löggildingu ökukennara og starfsleyfi ökuskóla eru nú til umsagnar hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Óskað er umsagnar um reglugerðirnar eigi síðar en 8. nóvember.
Lesa meiraNefnd sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipaði til að fjalla um almenningssamgöngur á Norðurlandi eystra hefur skilað tillögum sínum. Meðal annars er lagt til að stofnað verði samgöngufélag sem skipuleggi samhæft almenningssamgöngukerfi sem rekið verði sem þróunarlíkan.
Lesa meiraStarfshópur um umferðarfræðslu í skólum hefur nýverið skilað skýrslu til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Unnið úr tillögum sem fram koma í skýrslunni á næstunni í því skyni að efla umferðarfræðslu í skólum.
Ökuhraði verður samræmdur í 90 km á klukkustund, bílprófsaldur hækkaður í 18 ár og ökuskólar verða þungamiðja ökukennslu er meðal tillagna í frumvarpsdrögum til nýrra umferðarlaga. Unnt er að gera athugasemdir við frumvarpið til 15. september á netfangið postur@sam.stjr.is.
Lesa meira
Komin er út skýrsla um framkvæmd umferðaöryggisáætlunar 2008 þar sem fram kemur meðal annars að varið var 427 milljónum króna til ýmissa verkefna á því sviði. Yfir helmingur fjárins fer í eftirlit með hraðakstri og eyðingu svartbletta í vegakerfinu.
Samgönguráðherra og Umferðarstofa annars vegar og dómsmálaráðherra og lögreglustjórinn á Selfossi hins vegar skrifuðu í dag undir samning um fjármögnun á búnaði til bíltæknirannsókna vegna umferðarslysa. Aðsetur rannsóknanna verður hjá lögreglunni á Selfossi.
Bílaklúbbur Akureyrar er að hefja framkvæmdir við akstursíþróttasvæði og ökugerði. Kristján L. Möller samgönguráðherra tók ásamt fleirum fyrstu skóflustungurnar fyrir framkvæmdirnar í gær.
Tilbúin er í drögum reglugerð um öryggisráðstafanir vegna vegaframkvæmda. Tilgangurinn er að auka öryggi á vinnusvæðum við vegi og skulu verktakar gera öryggisáætlun sem veghaldari skal samþykkja. Óskað er eftir umsögnum í síðasta lagi 28. apríl næstkomandi.
Í dag, miðvikudaginn 1. apríl, verður breytt tilhögun við útgáfu bráðabirgðaakstursheimilda til þeirra sem eru að fá sín fyrstu ökuréttindi á fólksbifreið. Ökunemar sem standast próf fá strax bráðabirgðaakstursheimild hjá prófdómara en þurfa ekki að sækja hana á afgreiðslu sýslumanns eða lögreglu eins og fyrirkomulagið hefur verið.
Framlag til umferðaröryggisáætlunar verður í ár alls 367 milljónir króna. Samgönguráðherra kynnti áætlunina í dag og um leið var skrifað undir samninga um umferðareftirlit milli Ríkislögreglustjóra annars vegar og hins vegar Vegagerðarinnar og Umferðarstofu.
Framkvæmdir við Landeyjahöfn hófust á liðnu hausti í framhaldi af undirritun samnings Siglingastofnunar Íslands og Vegagerðarinnar við Suðurverk sem bauð lægst fjögurra bjóðenda og var tilboðsupphæðin 1,9 milljarðar króna. Hafnargerðinni á að vera lokið um mitt næsta ár.
Komin er út skýrsla um umferðarfræðslu í skólum sem tekin var saman að beiðni samgönguráðherra. Hefur hún að geyma stutta lýsingu á umferðaröryggi barna á Íslandi og tillögur um að styrkja umferðarfræðslu í skólum.
Umferðarráð hélt í gær fyrsta fund sinn eftir nýja skipan og samþykkti ályktun þar sem hvatt er til þess að yfirvöld og landsmenn stuðli að framtíðarsýn um að enginn látist í umferðarslysum og að alvarlegum slysum fækki til muna. Ályktunin fer hér á eftir.
Samgönguráðherra hefur staðfest breytingu á reglugerð um sektir og viðurlög vegna brota á reglum um akstur og hvíld ökumanna. Með breytingunni er aukið svigrúm vegna frávika frá reglunum. Þannig er nú ekki sektað fyrr en akstur er orðinn 10% yfir aksturstíma en var áður 5-10%.