Fréttir - sveitarstjórnarmál

Lög um fjárhagsskil sveitarfélaga samþykkt

27.4.2010

Alþingi samþykkti í dag breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998 sem kveða á um að samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sé heimilt að setja reglugerð sem mæli fyrir um ársfjórðungsleg skil sveitarfélaga á upplýsingum úr bókhaldi sínu og reikningsskilum.

Kristján L. Möller lagði frumvarpið fram í mars en tilgangur þess var að að tryggja nauðsynlegar heimildir til þess annars vegar að afla ársfjórðungslega fjármálaupplýsinga frá sveitarfélögum og hins vegar til þess að tryggja betra og markvissara aðgengi eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga að upplýsingum úr bókhaldi og reikningsskilum sveitarfélaga.

Með þessari breytingu á að tryggja að ráðuneytið, eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, aðrir opinberir aðilar og Samband íslenskra sveitarfélaga geti fylgst betur með framvindu og þróun fjármála sveitarfélaganna. Í reglugerð skal nánar mælt fyrir um framsetningu og form slíkra upplýsinga, sem og um rafræn skil þeirra eftir því sem við á.

Tilgangurinn er eins og áður sagði að því að gera nauðsynlegar breytingar á tilteknum ákvæðum laganna er varða regluleg skil fjármálaupplýsinga sveitarfélaga og heimildir eftirlitsnefndar til að afla upplýsinga úr bókhaldi og reikningsskilum sveitarfélaga. Ráðuneytið telur afar mikilvægt að umrædd ákvæði verði sett inn strax en ekki beðið heildarendurskoðunar sveitarstjórnarlaganna sem nú stendur yfir, enda leggur það ákveðinn grunn að þeirri endurskipulagningu sem nú er unnið að varðandi samráð ríkis og sveitarfélaga um efnahagsmál.

 

Senda grein


Fréttir eftir árum


Eldri fréttir

Sveitarstjórnarmál fluttust frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu í ársbyrjun 2008.

Fréttir af sveitarstjórnarmálum frá árunum 2000-2008 er að finna í fréttalista félags- og tryggingmálaráðuneytisins.

Fréttalisti 2000-2008

Þetta vefsvæði byggir á Eplica