Fréttir - sveitarstjórnarmál

Kosið um sameiningu Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar 20. mars

8.3.2010

Kjósa á laugardaginn 20. mars um sameiningu Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar í Eyjafirði.

Kjörskrár vegna sameiningarkosninganna verða aðgengilegar almenningi annars vegar á skrifstofu Hörgárbyggðar í Þelamerkurskóla og hins vegar á skrifstofu Arnarneshrepps á Þrastarhóli frá morgundeginum, þriðjudeginum 9. mars.

Athugasemdum eða kærum skal koma á framfæri við sveitarstjórnir sveitarfélaganna og samkvæmt 10. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna er heimilt að gera leiðréttingar á kjörskrá fram á kjördag.

Fundir um sameininguna verða haldnir í Hlíðarbæ á miðvikudag 10. mars klukkan 20.30 fyrir íbúa Arnarneshrepps og fimmtudag 11. mars klukkan 20.30 fyrir íbúa Hörgárbyggðar. Gestur fundanna verður Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Einnig hefur verið gefið út kynningarrit vegna málsins og því dreift á öll heimili í sveitarfélögunum.

Nánari upplýsingar eru á vefjum sveitarfélaganna:

Vefur Arnarneshrepps

Vefur Hörgárbyggðar

 

 

Senda grein


Fréttir eftir árum


Eldri fréttir

Sveitarstjórnarmál fluttust frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu í ársbyrjun 2008.

Fréttir af sveitarstjórnarmálum frá árunum 2000-2008 er að finna í fréttalista félags- og tryggingmálaráðuneytisins.

Fréttalisti 2000-2008

Þetta vefsvæði byggir á Eplica