Fréttir - sveitarstjórnarmál

Áætluð framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til reksturs grunnskóla 2010

18.12.2009

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 8. desember síðastliðinn um áætluð framlög til sveitarfélaga á árinu 2010 vegna reksturs grunnskóla.

 

Áætluð framlög vegna sérþarfa fatlaðra nemenda

Ráðgjafarnefndin leggur til að áætlun um úthlutun framlaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda á árinu 2010, sbr. 4. gr. rgl. nr. 351/2002, nemi samtals um 1.383 milljónum króna. Annars vegar er um að ræða áætlað framlag til Reykjavíkurborgar að fjárhæð 650 milljónir króna á grundvelli samnings vegna reksturs sérskóla/sérdeilda, sem áður voru rekin af ríkinu, en hins vegar er áætlað framlag að fjárhæð um 733 milljónir vegna sérþarfa fatlaðra nemenda á grunnskólaaldri í öðrum sveitarfélögum en Reykjavíkurborg.

Áætluð framlög vegna nýbúafræðslu

Ráðgjafarnefndin  leggur til að áætlun um úthlutun framlaga vegna  nýbúafræðslu árið 2010, sbr. 5. gr. rgl. nr. 351/2002, nemi samtals um 140 milljónum króna. 

 Almenn framlög til reksturs grunnskóla

Áætlað er að ráðstöfunarfjármagn Jöfnunarsjóðs til greiðslu almennra framlaga til reksturs grunnskóla, sbr. 3. gr. rgl. nr. 351/2002, muni lækka um 3% milli áranna 2009 og 2010.

Stefnt er að því að áætlun um úthlutun almennra framlaga  eftir sveitarfélögum liggi fyrir í byrjun janúar 2010.

 

Senda grein


Fréttir eftir árum


Eldri fréttir

Sveitarstjórnarmál fluttust frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu í ársbyrjun 2008.

Fréttir af sveitarstjórnarmálum frá árunum 2000-2008 er að finna í fréttalista félags- og tryggingmálaráðuneytisins.

Fréttalisti 2000-2008

Þetta vefsvæði byggir á Eplica