Fréttir - sveitarstjórnarmál

Kjörskrá liggur frammi frá 16. júní

13.6.2008

Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga í sameinuðu sveitarfélagi Aðaldælahrepps og Þingeyjarsveitar 28. júní næstkomandi verður lögð fram næstkomandi mánudag, 16. júní. Hægt er að gera athugasemdir við skrána fram á kjördag.

Athugasemdum eða kærum skal koma á framfæri við sveitarstjórnir sveitarfélaganna og samkvæmt 10. grein laga um kosningar til sveitarstjórna er heimilt að gera leiðréttingar á kjörskrá fram á kjördag. Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðum sveitarfélaganna, www.adaldaelahreppur.is og www.thingeyjarsveit.is.



Senda grein


Fréttir eftir árum


Eldri fréttir

Sveitarstjórnarmál fluttust frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu í ársbyrjun 2008.

Fréttir af sveitarstjórnarmálum frá árunum 2000-2008 er að finna í fréttalista félags- og tryggingmálaráðuneytisins.

Fréttalisti 2000-2008

Þetta vefsvæði byggir á Eplica