Fréttir - sveitarstjórnarmál

Sameining Aðaldælahrepps og Þingeyjarsveitar samþykkt

29.4.2008

Kosið var um sameiningu sveitarfélaganna Aðaldælahrepps og Þingeyjarsveitar síðastliðinn laugardag. Tillagan um sameiningu var samþykkt af 68,6% kjósenda í Aðaldælahreppi og 57,6% í Þingeyjarsveit.

Á kjörskrá voru samtals 714 einstaklingar, 199 í Aðaldælahreppi og 515 í Þingeyjarsveit. Kosningaþátttaka var góð, eða 86,6% í Þingeyjarsveit og 68.8% í Aðaldælahreppi.

Í framhaldi af þessari niðurstöðu geta sveitarfélögin hafið formlegan undirbúning fyrir sveitastjórnarkosningar í hinu sameinaða sveitarfélagi.



Senda grein


Fréttir eftir árum


Eldri fréttir

Sveitarstjórnarmál fluttust frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu í ársbyrjun 2008.

Fréttir af sveitarstjórnarmálum frá árunum 2000-2008 er að finna í fréttalista félags- og tryggingmálaráðuneytisins.

Fréttalisti 2000-2008

Þetta vefsvæði byggir á Eplica