Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur lagt fram tillögu um úthlutun útgjaldajöfnunarframlaga á árinu 2009 að upphæð 3.900 milljónir króna og hefur Kristján L. Möller samgönguráðherra samþykkt tillögu nefndarinnar. Framlögin verða greidd sveitarfélögunum mánaðarlega.
Í nýjum lögum um ráðstafanir í ríkisfjármálum sem Alþingi samþykkti síðastliðinn laugardag 20.desember er sveitarfélögum heimilað að hækka útsvarshlutfall úr 13,03% í 13,28%. Gefur þetta sveitarfélögunum svigrúm til að afla aukinna tekna og mæta þar með tekjusamdrætti.
Áætlað er að framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til rekstur grunnskóla muni nema rúmlega 5,5 milljöðrum króna á næsta ári. Samgönguráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 12. desember síðastliðinn um áætluð framlög á árinu 2009.
Lesa meiraSamgönguráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 12. desember síðastliðinn um endanlega úthlutun og uppgjör á 1.400 milljón króna aukaframlagi úr Jöfnunarsjóði á árinu. Lokagreiðslan, 250 milljónir króna, fer fram á næstu dögum.
Samgönguráðherra hefur ákveðið skiptingu 250 milljóna króna framlags úr ríkissjóði til sveitarfélaga vegna tímabundins samdráttar í aflamarki þorsks á árinu. Er framlaginu ætlað að koma til móts við tekjumissi sveitarfélaga þar sem samdráttur verður í atvinnu.
Lesa meira
Kristján L. Möller samgönguráðherra ávarpaði í gær ársfund Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Kom meðal annars fram í máli hans þar að þrátt fyrir að draga kunni úr umfangsmiklum framkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu á næstunni yrði unnið að ýmsum úrbótum til að greiða fyrir umferð, ekki síst almenningsvagna.
Lesa meira
Kristján L. Möller samgönguráðherra flutti ræðu á ársþingi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga í dag og ræddi meðal annars áhrif efnahagskreppunnar á sveitarfélögin og viðbrögð samgönguráðuneytisins við þeim, hugsanlega stækkun sveitarfélaga og fleira.
Lesa meira
,,Sveitarfélögin standa á tímamótum. Lokið er miklu hagvaxtar- og uppgangstímabili í sögu landsins og framundan er dýfa sem mun reyna á allt okkar samfélag," sagði Kristján L. Möller samgönguráðherra í upphafi ræðu sinnar á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga í dag.
Lesa meiraKristján L. Möller samgönguráðherra ræddi í dag um sameiningarmál sveitarfélaga við fulltrúa fámennra sveitarfélaga sem hafa með sér óformleg samtök innan Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ráðherran lýsti hugmynd sinni um að hækka lágmarksíbúafjölda úr 50 í 1.000 og skiptist á skoðunum við fundarmenn.
Lesa meiraSamgönguráðherra hefur breytt reglugerð um eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga sem gilda á tímabundið vegna efnhagsástandsins á Íslandi. Sett er inn bráðabirgðaákvæði sem gilda skal til ársloka 2009.
Nauðsynlegt er að efla sveitastjórnarstigið með því að færa ýmsa nærþjónustu frá ríki til sveitarfélaga og gera verður sveitarstjórnum kleift að taka við fleiri verkefnum og veita nýja þjónustu. Þetta er meðal þess sem fram kemur í úttekt Stjórnsýsluráðgjafar ehf. um eflingu sveitarstjórnarstigsins.
Í tilefni úrskurðar sem kveðinn hefur verið upp í máli er laut að heimild sveitarfélags til þess að breyta samþykktum sínum vill samgönguráðuneytið beina þeim tilmælum til sveitarfélaga að við slíkar breytingar sé gætt þeirra formreglna sem kveðið er um í sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998.
Kristján L. Möller samgönguráðherra sagðist á hádegisfundi á vegum sveitastjórnar- og skipulagsnefndar Sjálfstæðisflokksins um fjármál sveitarfélaga leggja áherslu á gott samband samgönguráðuneytis og sveitarfélaga.
Samgönguráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 17. október sl. um áætlaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga á árinu 2008 á grundvelli 12. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 113/2003. Áætluð heildarfjárhæð framlaganna nemur um 1.321 milljón króna.
Lesa meiraJöfnunarsjóður sveitarfélaga lýkur á mánudag greiðslu framlaga að fjárhæð rúmlega tveir milljarðar króna til sveitarfélaga í landinu en framlögin áttu að berast sveitarfélögunum um næstu mánaðamót. Greiðslunum er flýtt til að bæta fjárhagsstöðu sveitarfélaga.
Kristján L. Möller samgönguráðherra sagði á fyrsta ársfundi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í dag að samgönguráðuneytið væri að undirbúa aðgerðir vegna bágrar fjárhagsstöðu sveitarfélaga. Verður hraðað greiðslum úr Jöfnunarsjóði og flýtt 250 milljóna króna greiðslu til sveitarfélaga vegna samdráttar í aflamarki.
Lesa meiraSamgönguráðherra og stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa sent frá sér yfirlýsingu um að tryggja verði að grunnþjónusta hins opinbera skerðist ekki þrátt fyrir tekjusamdrátt og kostnaðarhækkanir.
Lesa meira
Kristján L. Möller samgönguráðherra sagði á þingi Fjórðungssambands Vestfirðinga í gær að tímabært væri að ræða hugsanlega hækkun á lágmarksfjölda íbúa sveitarfélaga. Sagði hann töluna 1.000 hafa verið nefnda en lágmarksíbúafjöldi í dag er 50.
Lesa meiraÚt er komið 3. tölublað á árinu 2008 af fréttabréfi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um húsaleigubætur. Þar er að finna upplýsingar um greiðslur almennra húsaleigubóta á II. ársfjórðungi 2008 ásamt upplýsingum um greiðslur sérstakra húsaleigubóta.
Lesa meira
Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga í sameinuðu sveitarfélagi Aðaldælahrepps og Þingeyjarsveitar 28. júní næstkomandi verður lögð fram næstkomandi mánudag, 16. júní. Hægt er að gera athugasemdir við skrána fram á kjördag.
Samgönguráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun framlags til sveitarfélaga á grundvelli 2. gr. reglna nr. 526 frá 29. maí 2008.
Lesa meiraSamgönguráðherra hefur gefið út reglur um ráðstöfun 1.400 milljóna króna aukaframlags til sveitarfélaga árið 2008. Er framlaginu ætlað að jafna aðstöðumun sveitarfélaga sem talin eru í mestri þörf fyrir viðbótarframlag vegna erfiðra ytri aðstæðna.
Lesa meiraKosið var um sameiningu sveitarfélaganna Aðaldælahrepps og Þingeyjarsveitar síðastliðinn laugardag. Tillagan um sameiningu var samþykkt af 68,6% kjósenda í Aðaldælahreppi og 57,6% í Þingeyjarsveit.
Nefnd sú, sem falið var að endurskoða III. kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 með síðari breytingum, er fjallar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, hefur skilað tillögum sínum til samgönguráðherra.
Lesa meiraKristján L Möller samgönguráðherra hefur skipað Guðmund Bjarnason, fyrrverandi bæjarstjóra í Fjarðabyggð, formann ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga fram að næstu sveitarstjórnarkosningum.
Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur samþykkt að leggja til að greiðsluhlutfall sjóðsins vegna greiðslu sveitarfélaga á húsaleigubótum á árinu 2007 væri hækkað úr 49 prósentum í 60 prósent.
Sveitarstjórnarmál fluttust frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu í ársbyrjun 2008.
Fréttir af sveitarstjórnarmálum frá árunum 2000-2008 er að finna í fréttalista félags- og tryggingmálaráðuneytisins.