Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga

Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga

Samkvæmt ákvæðum 74. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 hefur eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga það hlutverk að fylgjast með fjármálum sveitarfélaga. Hún skal, samkvæmt ákvæðum laganna, árlega athuga reikningsskil sveitarfélaga og bera þau saman við viðmiðanir. Leiði athugun í ljós að fjármál sveitarfélags stefni í óefni skal nefndin aðvara viðkomandi sveitarfélag og samhliða upplýsa félagsmálaráðuneytið um álit sitt.

Reikningsskila- og upplýsinganefnd

Samkvæmt reglugerð um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga nr. 944/2000 er gert ráð fyrir að reikningsskila- og upplýsinganefndin stuðli að samræmingu í reikningsskilum sveitarfélaga og öðrum fjárhagslegum upplýsingum þeirra eftir því sem ráðuneytið ákveður. Nefndin semji reglur um þau atriði reikningsskila sveitarfélaga, sem eru sérstök fyrir þau. Einnig að hún fjalli um flokkun og greiningu gjalda og tekna, eigna og skulda sveitarfélaga, form fjárhagsáætlana og ársreikninga og annarra fjárhagslegra upplýsinga sveitarfélaga.

Tengt efni:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica