Evrópuráðið
Ísland hefur sem aðili að Evrópuráðinu fullgilt tvo Evrópusáttmála sem sérstaklega varða sveitarfélög. Árið 1991 fullgilti Ísland Evrópusáttmála um sjálfsstjórn sveitarfélaga og árið 2004 fullgilti Ísland samning um þátttöku útlendinga í opinberu lífi í sveitarfélögum. Sáttmálarnir hafa verið þýddir á íslensku og má nálgast þá á neðangreindum tenglum:
- Evrópusáttmáli um sjálfsstjórn sveitarfélaga
- Samningur um þátttöku útlendinga í opinberu lífi í sveitarfélögum
Um nokkurt skeið hefur verið tekið þátt í starfi stýrinefndar um staðbundið lýðræði (CDLR) og sérfræðinganefndar um fjármál sveitarfélaga (LRFL). Á þessum vettvangi er fjallað um drög að nýjum tilmælum og unnar skýrslur um málefni sveitarfélaga og héraða. Samband íslenskra sveitarfélaga tekur ennfremur þátt í sveitarstjórnarþingi Evrópuráðsins.
Evrópuráðið hefur beint ýmsum tilmælum varðandi staðbundin stjórnvöld til aðildarríkja sinna. Tilmælin hafa sum hver verið höfð til hliðsjónar við lagasetningu hér á landi.
