Beint í leiðarkerfi vefsins.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti fer með málefni sveitarfélaga. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998 skal ráðuneytið hafa eftirlit með því að sveitarstjórnir gegni skyldum sínum samkvæmt þeim lögum og öðrum löglegum fyrirmælum.
Á grundvelli sveitarstjórnarlaga úrskurðar ráðuneytið meðal annars um hvort sveitarstjórnir haldi fundi sína í samræmi við lög, svo sem varðandi fundarboðun, auglýsingu funda, hæfi einstakra sveitarstjórnarmanna o.fl.