Beint í leiðarkerfi vefsins.
Sex nýir loftferðasamningar voru áritaðir fyrir Íslands hönd á ráðstefnu Alþjóðaflugmála-stofnunarinnar um loftferðasamninga, ICAN 2010, sem fram fór í Montego Bay um mánaðamótin. Samningarnir eru við Armeníu, Barbados, Brasilíu, Chile, Jamaíku og Kólumbíu. Jafnframt var undirrituð viljayfirlýsing um gerð loftferðasamnings við Panama.
Lesa meiraVegna greinar Kára Kárasonar, formanns öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna, í Morgunblaðinu 2. júlí, vill samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið taka eftirfarandi fram:
Lesa meira
Fundur Evrópusamtaka flugmannafélaga, European Cockpit Association (ECA), er haldinn í Reykjavík í dag og í gær og ræða fulltrúar flugmannafélaganna meðal annars ýmsar hliðar öryggismála og áhrif öskufalls á flug. Nærri 80 manns sitja fundinn.
Lesa meira
Flugakademía Keilis heldur í haust ráðstefnu í samvinnu við ýmsa innlenda og erlenda aðila, meðal annars samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, þar sem fjalla á um eldgosið í Eyjafjallajökli og áhrif öskufalls á flugrekstur. Til ráðstefnunnar hefur verið boðið vísindamönnum, forráðamönnum í flugrekstri og fulltrúum opinberra aðila.
Lesa meiraTil umsagnar eru nú hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu reglugerðardrög um notendanefndir flugvalla. Þeir sem þess óska geta sent umsagnir sínar á netfangið postur@sam.stjr.is eigi síðar en 30. júní.
Lesa meira