Flugöryggisáætlun
  • Frá flugsýningu
    Frá flugsýningu

Tillögur að verkefnastofni um flugöryggi liggja fyrir

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur undirbúið áætlun um flugöryggi. Stýrihópur skipaður af samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur skilað tillögum sínum og verður áætlunin hluti af samgönguáætlun.

Ráðuneytið hefur á síðustu mánuðum staðið að undirbúningi sérstakrar áætlunar um flugöryggismál. Kristján L. Möller samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipaði stýrihóp til að móta tillögur að verkefnum sem ætlað er að benda á með hvaða hætti unnt er að treysta og auka öryggi í flugsamgöngum, móta slík verkefni og stuðla að framgangi þeirra.

Stýrihópinn skipuðu:

  • Ástríður S. Thorsteinsson, lögfræðingur í samgönguráðuneytinu (formaður)
  • Einar Örn Héðinsson, framkvæmdastjóri hjá Flugmálastjórn Íslands
  • Ágúst Guðmundsson, tilnefndur af Flugmálafélagi Íslands
  • Linda Gunnarsdóttir, formaður öryggisnefndar FÍA tilnefnd af Félagi íslenskra atvinnuflugmanna
  • Lárus Atlason, forstöðumaður öryggissviðs Air Atlanta tilnefndur af Samtökum ferðaþjónustunnar
  • Bjarki Sigfússon, flugrekstrarstjóri Bláfugls fulltrúi minni flugrekenda utan SAF
  • Matthías Sveinbjörnsson, stjórnarmaður í Flugmálafélagi Íslands fulltrúi einka- og kennsluflugs
  • Helga R. Eyjólfsdóttir, verkfræðingur tilefnd af Flugstoðum ohf.

Jafnframt störfuðu með stýrihópnum Þorkell Ágústsson, forstöðumaður Rannsóknarnefndar flugslysa, og Bragi Baldursson, aðstoðarforstöðumaður Rannsóknarnefndar flugslysa, frá og með 12. september 2008.

Stýrihópurinn skilaði af sér tillögum að verkefnastofni um flugöryggi í janúar 2009. Verkefnastofn er röð afmarkaðra innbyrðis tengdra verkefna, sett fram með heildstæðum hætti, með það sameiginlega markmið að auka öryggi í flugsamgöngum.  Ráðgert er að verkefnastofninn, eða valdar tillögur, nýtist við gerð samgönguáætlunar eins og öryggisáætlanir vegna umferðar og siglinga.  Um er að ræða alls sextíu og sjö verkefni sem stýrihópurinn lagði fram í fimm hlutum:

  1. Viðvarandi innleiðing alþjóðlegra staðla, krafna og löggjafar EB á sviði flugmála.
  2. Viðvarandi innleiðing bestu starfshátta ("best practices")
  3. Viðvarandi eftirlit með öryggi
  4. Virk rannsókn atvika og slysa
  5. Efling flugöryggis - sérstök rannsóknarverkefni og miðlun upplýsinga um flugöryggismál.

Afhverju flugöryggisáætlun/verkefnastofn ?

Öryggisáætlanir á sviði siglinga og umferðarmála hafa þegar verið í gildi um nokkurra ára skeið. Eru þar sett fram mælanleg markmið með tilliti til öryggis sem unnt er að fylgjast með frá einu tímabili áætlunar til hins næsta og þannig meta árangurinn. Með vísan til þróunar á alþjóðlegum vettvangi og mikilvægi flugsamgangna er það sérstakt áhersluverkefni nú að knýja á um aukið öryggi í flugsamgöngum.

Flugsamgöngur hafa veigamiklu hlutverki að gegna í efnahagslífi ríkja heims. Á síðasta áratug hefur flugfarþegum til og frá landinu fjölgað verulega og það sama má segja um vöruflutninga milli landa.

Það er forgangsmál að auka öryggi í flugsamgöngum. Verkefni á sviði öryggismála eru ekki aðeins knúin af staðreyndum og tölfræði heldur einnig af skilningi almennings á öryggi. Viðunandi viðmið öryggis eru nátengd því trausti sem flugsamgöngur njóta. Það traust bíður hnekki við sérhvert flugslys.

Slysatíðni í flugsamgöngum er með því lægsta sem þekkist í heiminum. Það er því mikil áskorun að fækka slysum enn frekar. Áætlunin sem hér er ætlað að koma á laggirnar miðar af því að fækka slysum og alvarlegum atvikum í flugi enn frekar en verið hefur.

Þar sem ekki hefur áður verið staðið að gerð flugöryggisáætlunar er mikilvægt að allir hagsmunaaðilar eigi aðkomu að verkefninu og komi sjónarmiðum sínum og hugmyndum á framfæri strax þegar áætlunin er í mótun. Í því skyni hefur samgönguráðuneytið sett á laggirnar gagnvirkan vef þar sem almenningur getur komið á framfæri beint til stýrihóps hugmyndum sínum og sjónarmiðum.

Komdu þínum ábendingum og hugmyndum á framfæri

Þrátt fyrir að stýrihópur hafi skilað af sér tillögum í janúar 2009 verður áfram mögulegt að koma á framfæri hugmyndum, ábendingum og tillögum að verkefnum til ráðuneytisins með því að senda póst beint til ráðuneytisins á netfangið postur@sam.stjr.is.

Allar hugmyndir, ábendingar og tillögur um verkefni í þágu aukins flugöryggis eru vel þegnar.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica