Beint í leiðarkerfi vefsins.
Flugmál eru umfangsmikill málaflokkur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti. Leiðarljós ráðuneytisins í flugmálum eru greiðar, hagkvæmar og öruggar flugsamgöngur. Málaflokkurinn tekur m.a. til flugvalla, flugöryggismála og flugleiðsögu.
Stefnt er að því að öryggi í flugi sé með því besta sem gerist í heiminum. Þá er leitast við að greiða fyrir samgöngum með flugi, bæði með niðurgreiðslu á nokkrum leiðum innanlands og með því að greiða fyrir leið loftfara til annarra landa með gerð loftferðasamninga.