Fréttir - fjarskipti og póstmál

Nýtt mál til umræðu: Breytingar á tilskipunum um fjarskipti

3.8.2006

Nýtt mál til umræðu er að finna á vef samgönguráðuneytisins á hlekknum Umræður. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tilkynnti nýlega hugmyndir sínar um breytingar á tilskipunum er varða fjarskipti og snúast þær meðal annars um stefnu í tíðnimálum, samruna á innri markaðnum, neytendavernd og fleira.

Samgönguráðuneytið óskar eftir að fá álit einstaklinga sem lögaðila um málið og er veittur frestur til 1. september. Umsagnir skal senda á netfangið postur@sam.stjr.is.

Hlekkinn Umræður er að finna vinstra megin á forsíðu á vef ráðuneytisins. Nánar hér.



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica