Fréttir - fjarskipti og póstmál

Verðmæti Landssíma Íslands

23.7.1999

Samgönguráðherra skipaði í gær, 1. nóvember, starfshóp sem á að framkvæma nýtt mat á verðmæti Landssíma Íslands.

Nánari upplýsignar veitir Jakob Falur, s. 560 9630 GSM 862 4272
netfang:
jakob.falur.gardarsson@sam.stjr.is
 
Starfshópinn skipa Heimir Haraldsson, endurskoðandi, sem jafnframt er formaður hópsins, Hjörleifur Pálsson, endurskoðandi og Skarphéðinn Berg Steinarsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti. Lögfræðilegur ráðgjafi starfshópsins er Baldur Guðlaugsson, hrl. Forsaga málsins er sú að hinn 23. júlí sl. skipaði samgönguráðherra starfshóp til að fjalla um niðurstöðu álits samkeppnisráðs nr. 6/1999 vegna GSM þjónustu Landssíma Íslands hf. Í skýrslu starfshópsins, sem dagsett er 6. október sl., er m.a. lagt til að fram fari nýtt mat á þeim eignum Póst- og símamálastofnunar, skuldbindingum og viðskiptavild sem Póstur og sími hf. yfirtók hinn 1. janúar 1997, sem auk matsins sem matsnefndin framkvæmdi, byggi á útreikningum á núvirtu tekjuflæði miðað við þær forsendur, áætlanir og upplýsingar í rekstri fyrirtækisins sem fyrir lágu í árslok 1996. Það er því í framahaldi þessa sem starfshópur þessi er skipaður, þ.e. til að framkvæma nýtt mat á verðmæti Landssíma Íslands hf. í samræmi við tillögur starfshópsins.



Senda grein


Þetta vefsvæði byggir á Eplica