Um fjarskipta- og póstmál
Leiðarljós ráðuneytisins í fjarskipta- og póstmálum eru örugg, hagkvæm og góð þjónusta
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fer með yfirstjórn fjarskipta og póstmála, en umsjón með fjarskiptum og póstmálum er í höndum Póst- og fjarskiptastofnunar. Stofnunin starfar samkvæmt lögum um Póst- og fjarskiptastofnun nr. 69/2003 og hefur hún eftirlit með framkvæmd laga um póstþjónustu nr. 19/2002 og laga um fjarskipti nr. 81/2003. Einnig starfar stofnunin samkvæmt fjarskiptaáætlun 2005-2010.
Undanfarin ár hefur orðið bylting í fjarskiptamálum þjóðarinnar. Framkvæmd fjarskiptaáætlunar áranna 2005 til 2010 hefur verið fyrirferðamikil. Umfangsmikil verkefni á fjarskiptasviðinu tryggja samkeppni og stuðla þannig að góðri þjónustu og góðu verði til neytenda. Meðal markmiða fjarskiptaáætlunar 2005-2010 var að stórbæta farsímasamband á þjóðvegum landsins og að stefna að því að öllum landsmönnum standi til boða háhraðanettenging. Endurskoðun fjarskiptaáætlunar stendur nú yfir og ráðgert er að gefa út nýja samskiptaáætlun sem mun auk fjarskipta taka til póstmála og rafrænna samskipta eins og við á. Mun hin nýja samskiptaáætlun gilda frá 2011-2022.
Um póstþjónustu gilda lög nr. 19/2002. Póst og fjarskiptastofnun veitir leyfi til að starfrækja póstþjónustu og hefur eftirlit með póstmálum og framkvæmd laga um póstþjónustu. Íslenska ríkið hefur einkarétt á póstþjónustu vegna póstsendinga bréfa allt að 50 g að þyngd, en til stendur að afnema einkaréttinn fyrir árið 2013.
