Beint í leiðarkerfi vefsins.
Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, lét af embætti sínu í dag og við því tók Ögmundur Jónasson sem jafnframt gegnir embætti dómsmála- og mannréttindaráðherra. Þessi breyting á ríkisstjórn og fleiri fóru fram á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í hádeginu.
Lesa meiraSamgöngu- og sveitastjórnarráðherra, Kristján L. Möller, hefur veitt flugmálastjóra heimild til að hefja undirbúning á skráningu loftfara fyrir hollenska fyrirtækið ECA Program Limited hér á landi.
Lesa meira
Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, greindi frá ýmsum verkefnum sem unnið er að í ráðuneyti hans og snerta endurskoðun á fjárhags- og lagagrunni sveitarstjórnarstigsins á ársfundi Sambands sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Eru þau endurskoðunarverkefni einna helst sveitarrstjórnarlögin og regluverk Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Lesa meiraDrög að reglugerð um veitingu veðurþjónustu fyrir flugleiðsögu er nú til umsagnar. Þeir sem þess óska geta sent umsagnir sínar á póstfangið postur@sam.stjr.is til 10. september næstkomandi.
Lesa meiraStefnumótun og framtíðarsýn Kristjáns L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur verið sett fram á vef ráðuneytisins. Ráðherrann kynnti stefnumótunina á blaðamannafundi í dag og hana má einnig sjá hér á vefnum.
Lesa meira
Fulltrúar Grundaskóla á Akranesi og Umferðarstofu ásamt samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skrifuðu í dag undir áframhaldandi samning um samvinnu um umferðarfræðslu í skólum. Greitt er eitt stöðugildi á þessu ári til að sinna verkefninu.
Lesa meiraDrög að reglugerð um flugreglur er nú til umsagnar. Þeir sem þess óska geta sent umsagnir sínar á póstfangið postur@sam.stjr.is til 27. ágúst.
Lesa meiraDrög að reglugerð um héraðsvegi er nú til umsagnar hjá ráðuneytinu. Þeir sem þess óska geta sent umsagnir sínar á netfangið postur@sam.stjr.is til 18. ágúst næstkomandi.
Lesa meiraUmferðaarráð minnir ökumenn og ferðamenn á að sýna varkárni og aðgæslu nú þegar umferðarþungar ferðahelgar eru framundan. Reynslan hafi sýnt að þessi árstími sé oft erfiður í umferðinni.
Lesa meiraTil umsagnar eru nú hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu drög að endurskoðaðri reglugerð um flutning á hættulegum farmi. Þeir sem óska geta sent umsagnir sínar á netfangið postur@sam.stjr.is fram til miðvikudags 11. ágúst næstkomandi.
Lesa meiraKristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur ákveðið að framlengja skipunartíma fjárhaldsstjórnar Sveitarfélagsins Álftaness til 1. nóvember næstkomandi. Upphaflegur skipunartími hennar var til 1. ágúst.
Lesa meiraDrög að breytingu á reglugerð um stærð og þyngd ökutækja nr. 155/2007 er nú til umsagnar. Þeir sem þess óska geta sent umsagnir sínar á netfangið postur@sam.stjr.is til 5. ágúst næstkomandi.
Lesa meira
Landeyjahöfn var tekin í notkun í gær þegar Herjólfur sigldi fyrstu ferðina frá Heimaey til Landeyjahafnar með gesti og fjölda Eyjamanna í blíðskaparveðri. Þá var nokkur mannfjöldi saman kominn við höfnina til fagna komu skipsins sem var fánum skreytt. Herjólfur hóf síðan siglingar samkvæmt áætlun í morgun.
Lesa meiraHerjólfur sigldi undir miðnætti í gærkvöld í Landeyjahöfn til prófunar áður en reglulegar áætlunarsiglingar hefjast milli hafnarinnar og Heimaeyjar næstkomandi miðvikudag. Skipsflautan var þeytt þegar siglt var um hafnarmynnið.
Lesa meiraDrög að reglugerð um breytingu á reglugerð um ökuskírteini nr. 501/1997 eru nú til umsagnar á vef samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. Unnt er að senda ráðuneytinu athugasemdir til 23. júlí nk.
Í skýrslu Rannsóknarnefndar umferðarslysa (RNU) fyrir árið 2009 kemur fram að nokkru færri banaslys urðu árin 2004 til 2009 eða 20 á móti 26 á árunum 1998 til 2003. Ölvunarakstur var orsök þriggja banaslysa árið 2009, hraðakstur tvisvar og veikindi aðalorsök í tveimur slysum.
Lesa meiraVegna um fjöllunar í fjölmiðlum um nýlegt álit umboðsmanns Alþingis á úrskurði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins 9. mars 2009 sem varðaði kaup Akraneskaupstaðar á tölvuþjónustu, mál nr. 67/2008, vill ráðuneytið taka fram eftirfarandi:
Lesa meira
Sveitarfélög munu um næstu áramót taka við ábyrgð og þjónustu við fatlaða þegar verkefnið verður flutt frá ríkinu. Samkomulag þessa efnis var undirritað í forsætisráðuneytinu í gær með fulltrúum ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lesa meiraVegna umfjöllunar um stefnu Vodafone á hendur fjarskiptasjóði vegna samnings um háhraðanettengingar í dreifbýli á Íslandi vill fjarskiptasjóður taka eftirfarandi fram:
Lesa meira
Sex nýir loftferðasamningar voru áritaðir fyrir Íslands hönd á ráðstefnu Alþjóðaflugmála-stofnunarinnar um loftferðasamninga, ICAN 2010, sem fram fór í Montego Bay um mánaðamótin. Samningarnir eru við Armeníu, Barbados, Brasilíu, Chile, Jamaíku og Kólumbíu. Jafnframt var undirrituð viljayfirlýsing um gerð loftferðasamnings við Panama.
Lesa meiraYfirstjórn ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, hefur samþykkt undanþágur fyrir Ísland frá nokkrum ákvæðum reglna um aksturs- og hvíldartíma atvinnubílstjóra í farmflutningum. Undanþágurnar gilda tímabundið frá 30. október 2010 til 15. apríl 2011.
Lesa meiraVegna greinar Kára Kárasonar, formanns öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna, í Morgunblaðinu 2. júlí, vill samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið taka eftirfarandi fram:
Lesa meira
Fundur Evrópusamtaka flugmannafélaga, European Cockpit Association (ECA), er haldinn í Reykjavík í dag og í gær og ræða fulltrúar flugmannafélaganna meðal annars ýmsar hliðar öryggismála og áhrif öskufalls á flug. Nærri 80 manns sitja fundinn.
Lesa meira
Flugakademía Keilis heldur í haust ráðstefnu í samvinnu við ýmsa innlenda og erlenda aðila, meðal annars samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, þar sem fjalla á um eldgosið í Eyjafjallajökli og áhrif öskufalls á flugrekstur. Til ráðstefnunnar hefur verið boðið vísindamönnum, forráðamönnum í flugrekstri og fulltrúum opinberra aðila.
Lesa meira
Starfshópur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um heildarendurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga leggur til að regluverki sjóðsins verði breytt í tveimur áföngum. Fyrst verði tekið upp nýtt kerfi útgjaldajöfnunar og síðan gerð grundvallarbreyting á jöfnunarkerfinu.
Lesa meiraEftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur sent öllum sveitarstjórnarmönnum bréf þar sem kynnt eru helstu verkefni nefndarinnar og samskipti við sveitarstjórnir. Alls fá rúmlega 500 sveitarstjórnarmenn bréfið og er tilgangur þess að greiða fyrir góðum samskiptum og að upplýsingar berist fljótt og vel á milli aðila.
Lesa meiraDrög að reglugerð um útgáfu og notkun stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða er nú til umsagnar. Þeir sem þess óska geta sent umsagnir sínar á netfangið postur@sam.stjr.is til 8. júlí.
Lesa meira
Póst- og fjarskiptstofnun hefur komið upp vefnum reiknivel.is þar sem unnt er að bera saman ýmis atriði í verði á fjarskiptaþjónustu. Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, opnaði vefinn formlega í dag.
Lesa meiraDrög að reglugerð um frístundafiskiskip og öryggi þeirra er nú til umsagnar. Þeir sem þess óska geta sent umsagnir sínar á netfangið postur@sam.stjr.is til 30. júní.
Lesa meiraTil umsagnar eru nú hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu reglugerðardrög um notendanefndir flugvalla. Þeir sem þess óska geta sent umsagnir sínar á netfangið postur@sam.stjr.is eigi síðar en 30. júní.
Lesa meiraFyrsti fundur nýrrar sveitarstjórnar hins sameinaða Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar verður föstudaginn 18. júní og hefur Kristjáni L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, verið boðið að sitja fundinn.
Lesa meiraTil umsagnar eru nú hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu reglugerðir um almannaflug, annars vegar um flugvélar og hins vegar um þyrlur. Þeir sem óska eftir að gera athugasemdir eða veita umsagnir eru beðnir að gera það eigi síðar en 25. júní á netfangið postur@sam.stjr.is.
Lesa meiraÍ kjölfar sveitarstjórnarkosninganna í lok maí eru sveitarstjórnarmenn að undirbúa fyrsta fund sem halda skal 15 dögum eftir kjördag. Talsvert er um að sveitarstjórnarmenn leiti til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um ýmsar leiðbeiningar til dæmis um framkvæmd kjörs í ráð og nefndir.
Lesa meiraAlls hlutu 512 frambjóðendur kosningu fulltrúa í sveitarstjórnir landsins í kosningunum 29. maí síðastliðinn, 308 karlar og 204 konur. Konur eru því 40% kjörinna fulltrúa og í meirihluta í 16 sveitarstjórnum af 76.
Lesa meira
Eru strandsiglingar hagkvæmar? var yfirskrift morgunverðarfundar samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í dag þar sem kynnt var niðurstaða starfshóps um mat á hagkvæmni strandflutninga. Í framhaldi af kynningunni töluðu nokkrir fulltrúar hagsmunaaðila og komu fram mörg sjónarhorn á málið.
Lesa meiraSamgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið gengst næstkomandi miðvikudag fyrir morgunverðarfundi þar sem kynntar verða niðurstöður um mat á hagkvæmni strandsiglinga. Fundurinn verður á Grand hóteli í Reykjavík og stendur milli kl. 8.15 og 10.45.
Lesa meira
Strandsiglingar eru álitlegur kostur, nægilegir flutningar virðast vera fyrir hendi, þær henta ákveðnum vöruflokkum, áhugi er hjá kaupendum slíkrar þjónustu og flutningsgjöld eru samkeppnishæf við landflutninga.
Lesa meiraKristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, heimsótti í dag Siglingastofnun og fékk á ráðherrabílinn íslenskt umhverfisvænt eldsneyti. Siglingastofnun hefur undanfarið stýrt rannsóknarverkefni um að þróa hráefni úr repju sem eldsneyti á bíla og fyrir skip.
Lesa meiraHópur sveitarmanna frá Noregi heimsótti samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið í gær. Var hópurinn staddur hérlendis til að kynna sér skipulag sveitarstjórnarstigsins og starfsemi íslenskra sveitarfélaga.
Lesa meiraVegna umfjöllunar um nýlegt álit reikningsskila- og upplýsinganefndar um færslu leigusamninga í ársreikninga vegna lóða í eigu sveitarfélaga óskar samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið eftir að taka eftirfarandi fram:
Lesa meira
Starfsmenn Sveitarfélagsins Voga heimsóttu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið í gær og fræddust um starfsemi sveitarstjórnarskrifstofu ráðuneytisins. Kristján L. Möller samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hitti hópinn og síðan kynntu starfsmenn skrifstofunnar starfsemina.
Lesa meira
Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, ávarpaði 13 flutningatækna við útskrift þeirra úr Flutningaskóla Samskipa í gær. Er þetta í annað sinn sem sem Samskip útskrifar flutningatækna.
Lesa meiraUpplýsingatæknigeirinn skapar 5% af vergri þjóðarframleiðslu (GDP) Evrópusambandsins með veltu sem nemur 660 milljörðum evra á ári auk geysimikilla áhrifa á framleiðni í öðrum geirum. Þetta kemur fram í netritinu Europolitics í grein sem byggist á drögum að skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Lesa meiraÁ þeim 185 listum sem boðnir eru fram til 76 sveitarstjórnum í kosningunum 29. maí eru alls 2.846 einstaklingar sem eru rúmlega 1,2% kjörgengnra manna í landinu. Þetta kemur meðal annars fram á vefnum kosning.is sem dómsmála- og mannréttindaráðuneytið stýrir.
Lesa meiraVegagerð á Vestfjarðavegi um Barðastrandasýslur var til umfjöllunar á borgarafundi á Patreksfirði í gær þriðjudaginn 11. maí. Til fundarins boðuðu sveitarstjórnir Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps.
Lesa meiraSamgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og vegamálastjóri verða meðal ræðumanna á almennum íbúafundi um samgöngumál á Vestfjörðum sem haldinn verður í Félagsheimilinu á Patreksfirði annað kvöld, þriðjudag 11. maí klukkan 20.
Lesa meira
Hundrað ár voru í gær liðin frá því fyrstu varnargarðarnir við Markarfljót voru reistir. Var þess minnst með opnun sýningar í Heimalandi og afmælishátíð. Aðstoðarmaður samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra afhjúpaði einnig upplýsingaskilti um garðana við þjóðveginn í Þórsmörk.
Lesa meira
Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur á Alþingi mælt fyrir frumvarpi til nýrra umferðarlaga. Lagafrumvarpið er alls 120 greinar og ítarleg greinargerð fylgir frumvarpinu þar sem fjalla er um helstu breytingar og rök fyrir þeim.
Lesa meiraSamgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og nokkrir starfsmenn ráðuneytisins skrifuðu í dag undir fyrstu samgöngusamningana sem ráðuneytið gerir við starfsmenn sína. Tilgangur þeirra er að hvetja til vistvæns samgöngumáta starfsmanna.
Lesa meira
Nýtt opinbert hlutafélag um sameinaða starfsemi Flustoða ohf. og Keflavíkurflugvallar ohf. tekur formlega til starfa á morgun, 1. maí. Félaginu var ýtt úr vör við athöfn í Nauthóli í dag og var henni varpað um netið á allar starfsstöðvarnar.
Lesa meiraKristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur mælt fyrir tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun áranna 2009 til 2012. Í áætluninni er sett fram verkefnaáætlun og fjármögnum fyrir árin 2010 til 2012.
Lesa meira
Ökukennarafélag Íslands og Frumherji opnuðu í dag formlega kennslu- og ökuprófamiðstöð á Kirkjusandi í Reykjavík, þar sem áður var athafnasvæði Strætó bs. Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sagði við það tækifæri að með því væri stigið mikilvægt skref í átt til enn betri ökukennslu.
Lesa meiraAlþingi samþykkti í dag breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998 sem kveða á um að samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sé heimilt að setja reglugerð sem mæli fyrir um ársfjórðungsleg skil sveitarfélaga á upplýsingum úr bókhaldi sínu og reikningsskilum.
Lesa meiraSamhæfing á skipulagi millilandaflugs meðan öskuský truflar bæði innanlands- og millilandaflug landsmanna fer fram á vegum aðgerðarstjórnstöðvar Flugstoða. Daglegir fundir eru þar haldnir með þeim sem koma við sögu í flugrekstri og flugþjónustu
Lesa meira
Brúin yfir Bláskeggsá í Hvalfirði var tekin í notkun á ný síðastliðinn fimmtudag, sumardaginn fyrsta, eftir að hafa verið færð í upprunalegt horf. Brúin var byggð árið 1907 og á 100 ára afmælinu var hafist handa við endurgerðina sem nú er lokið.
Lesa meiraSamtök flugfélaga í heiminum, IATA, telja að öskuskýið frá gosinu í Eyjafjallajökli muni kosta flugfélög um það bil 1,3 milljarða evra (um 1,7 milljarða dollara). Samtök flugvalla í Evrópu, ACI Europe, telja tap flugvalla verða um 250 milljónir evra.
Lesa meiraAð gefnu tilefni telur samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytið rétt að gera stutta grein fyrir skipulagi og viðbrögð við stjórnun flugumferðar við aðstæður eins og þær sem skapast hafa við eldgosið úr Eyjafjallajökli.
Lesa meiraFlugfarþegar sem verða fyrir töfum og truflunum þegar flugferðum er aflýst eða seinkað vegna eldgoss eiga rétt á að fá greiddan aukakostnað sem af töfum hlýst, til dæmis vegna máltíða eða gistinga. Um réttindi flugfarþega er fjallað í reglugerð nr. 261/2004.
Lesa meira
Norrænar rannsóknarnefndir umferðarslysa funda á Íslandi í dag og á morgun ásamt hollenskum starfsbræðrum sínum. Starfsmenn Rannsóknarnefndar umferðarslysa á Íslandi skipuleggja fundinn sem haldinn er í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.
Lesa meiraAlþjóðlegu flugöryggissamtökin Flight Safety Foundation hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau þakka Alþjóða flugmálastjórninni og þeim flugstjórnarmiðstöðvum sem hafa takmarkað flug vegna öskufalls úr gosinu í Eyjafjallajökli.
Lesa meira
Sjóvá afhenti í dag Forvarnahúsi svokallað færanlegt forvarnahús, sem er sérinnréttaður vöruflutningabíll með tengivagni sem hefur að geyma búnað og aðstöðu til ökukennslu. Ætlunin er að fara með bílinn um landið og bjóða ökunám.
Lesa meiraNærri 70 manns eru nú að margvíslegum störfum við Landeyjahöfn. Dýpkun er nýlega hafin, bygging brimvarnargarða stendur enn yfir og verið er að reisa farþegaaðstöðu.
Lesa meiraStefnt er að því að ljúka uppbyggingu fjarskiptakerfa og hefja í kjölfarið sölu til íbúa í síðasta áfanga háhraðanetsverkefni fjarskiptasjóðs í ágúst næstkomandi í stað desember eins og fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir.
Lesa meiraReikningsskila- og upplýsinganefnd hefur gefið út álit vegna færslu leigusamninga fasteigna og annarra mannvirkja í bókhaldi og reikningsskilum sveitarfélaga. Nefndin telur sveitarfélögum skylt að færa slíka samninga í efnahagsreikning til lengri tíma en þriggja ára.
Lesa meiraDrög að reglugerð um breytingu á reglugerð um ökuskírteini nr. 501/1997 er nú til umsagnar á vef samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. Unnt er að senda ráðuneytinu athugasemdir til 9. apríl næstkomandi.
Lesa meiraAlþingi hefur samþykkt lagafrumvarp sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra mælti fyrir skömmu eftir hádegi í dag þar sem verkfall Flugvirkjafélags Íslands sem hófst hjá Icelandair í nótt er lýst óheimilt. Kjarasamningur aðila er framlengdur til 30. nóvember en þeim heimilt að gera nýjan samning.
Lesa meiraTil umsagnar eru nú hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu drög að reglugerð um Landeyjahöfn í Rangárþingi eystra. Reglugerðina skal setja samkvæmt 4. grein hafnalaga nr. 61/2003. Umsagnarfrestur er til 6. apríl.
Lesa meiraSameining Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar var samþykkt í kosningum í sveitarfélögunum síðastliðinn laugardag. Sameiningin mun taka gildi í framhaldi af sveitarstjórnarkosningunum 29. maí.
Lesa meiraSamgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga sett vinnureglur um úthlutun og greiðslur framlags að fjárhæð 1.200 milljónir króna til að mæta hækkun á launakostnaði sveitarfélaga í kjölfar hækkunar á tryggingagjaldi úr 7% í 8,65% á árinu 2010.
Lesa meira
Minning Alfreðs Elíassonar, frumkvöðuls í flugmálum Íslendinga, var heiðruð í dag þegar Keilir flugakademía gaf einni af nýjustu kennsluvélum sínum nafn Alfreðs. Kristjana Milla Thorsteinsson, ekkja Alfreðs, afhjúpaði nafn hans á vélinni í fjölmennri athöfn á Reykjavíkurflugvelli.
Lesa meiraTil umsagnar eru nú hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu drög að frumvarpi til breytinga á fjarskiptalögum nr. 82/2003. Þeir sem óska geta sent umsagnir sínar á netfangið postur@sam.stjr.is fram til sunnudags 21. mars.
Lesa meira
Stjórn Flug-Kef ohf. hefur ákveðið að ráða Björn Óla Hauksson forstjóra Keflavíkurflugvallar ohf. sem forstjóra sameinaðs opinbers hlutafélags um rekstur Flugstoða og Keflavíkurflugvallar.
Lesa meiraNý drög að lagafrumvarpi um um breytingu á lögum um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum eru nú til umsagnar hjá samgönguráðuneytinu. Unnt er að senda inn umsögn um drögin til og með miðvikudagsins 18. mars næstkomandi á netfangið postur@sam.stjr.is.
Lesa meiraDreift hefur verið á Alþingi lagafrumvarpi til breytinga á sveitarstjórnarlögum sem felur í sér að sveitarfélögum verði gert að skila ársfjórðungslega upplýsingum úr bókhaldi og reikningsskilum til afnota fyrir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, aðra opinbera aðila og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Lesa meiraTvö stór verkefni í vegagerð á suðvesturhorni landsins verða boðin út í þessum mánuði. Annars vegar er það tvöföldun á 6,5 km kafla á Suðurlandsvegi og hins vegar breikkun Vesturlandsvegar á kafla í Mosfellsbæ.
Lesa meiraKjósa á laugardaginn 20. mars um sameiningu Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar í Eyjafirði.
Lesa meira
Sjöundi fundur samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og landshlutasamtaka sveitarfélaga um eflingu sveitarfélaga var haldinn í gær á Akureyri. Nálega 50 sveitarstjórnarmenn af Norðausturlandi sátu fundinn.
Lesa meiraFulltrúar íbúa á Suðurlandi afhentu í gær Kristjáni L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, undirskriftir 27 þúsund íbúa þar sem ráðherra er þakkað fyrir þann áfanga Suðurlandsvegar sem nú er boðinn út.
Lesa meiraSamgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Samband íslenskra sveitarfélaga og Eyþing (Samband sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum) boða til kynningarfundar um nýjar leiðir til að efla sveitarstjórnarstigið, á Hótel KEA fimmtudaginn 4. mars 2010 og kl. 16:30.
Lesa meiraSamgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 12. febrúar um áætlaða úthlutun framlaga til jöfnunar á tekjutapi einstakra sveitarfélaga á árinu 2010 vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti á grundvelli reglugerðar nr. 80/2001 með síðari breytingum.
Lesa meiraKosið verður um sameiningu sveitarfélaganna Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar í Eyjafirði laugardaginn 20. mars næstkomandi. Samstarfsnefnd um sameininguna hefur undirbúið kosninguna.
Lesa meira
Átak til eflingar sveitarfélögum stendur nú yfir, skattstofur landsins verða sameinaðar í eina og ráðuneyti verða sameinuð. Þetta er meðal aðgerða sem nú er unnið að varðandi endurskipulagningu opinberrar þjónustu til að unnt sé að mæta minnkandi fjármunum ríkissjóðs í ár og á næstu árum.
Lesa meiraAuglýst hefur verið laus til umsóknar staða forstjóra hins nýstofnaða sameinaða félags Flugstoð og Keflavíkurflugvallar. Umsóknarfrestur er til 3. mars.
Lesa meiraKeflavíkurflugvöllur er besti flugvöllur í Evrópu að mati þátttakenda í viðamikilli þjónustukönnun sem fram fer á 140 helstu flugvöllum um heim allan, þar af 48 í Evrópu. Keflavíkurflugvöllur hefur tekið þátt í könnuninni frá árinu 2004 og jafnan verið í efstu sætum evrópskra flugvalla.
Lesa meira
Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hélt á föstudag fund með forstöðumönnum skólaskrifstofa og grunnskólafulltrúum sveitarfélaga. Slíkir fundir eru haldnir árlega og fjallað um verkefni sjóðsins sem tengjast verkefni grunnskólans.
Lesa meira
Rúmlega 80 manns sóttu þjóðfund á Sauðárkróki á laugardag en hann var sá þriðji í röð slíkra funda sem haldnir eru um landið vítt og breitt. Næsti fundur verður á laugardaginn kemur í Borgarnesi.
Lesa meiraSamgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Samband íslenskra sveitarfélaga og Eyþing, Samband sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, boða til sameiginlegs kynningarfundar um nýjar leiðir til að efla sveitarstjórnarstigið, á Hótel KEA mánudaginn 15. febrúar 2010 og hefst hann klukkan 16:30.
Lesa meiraFjárhaldsstjórn fyrir Sveitarfélagið Álftanes hefur tekið formlega til starfa. Auglýsing um skipan fjárhaldsstjórnarinnar birtist í Stjórnartíðindum í gær.
Lesa meiraÚrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála hefur skilað samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu skýrslu sinni fyrir árið 2009. Þrír úrskurðir voru kveðnir upp á árinu og tvö mál bíða úrskurðar. Skýrslan fer hér á eftir.
Lesa meiraÁ innan við áratug er þörf á um 200 þúsund flugmönnum og rúmlega 400 þúsund flugvirkjum og öðrum tæknimönnum til að sinna viðhaldi flugflota heimsins. Þetta er niðurstaða könnunar á vegum Alþjóða flugmálastofnunarinnar, ICAO, sem greint er frá í nýlegu tímariti hennar.
Lesa meira
Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur ákveðið að fara að tillögu eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga og með vísan til 76. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, að skipa fjárhaldsstjórn til að hafa forystu um endurskipulagningu fjármála Sveitarfélagsins Álftaness.
Lesa meiraEfling sveitarstjórnarstigsins var umræðuefni á fundi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi efndu til í Borgarnesi á miðvikudag. Um fimmtíu manns sátu fundinn og urðu miklar umræður í kjölfar framsöguerinda.
Lesa meira
Nýskipuð stjórn félagsins FLUG-KEF ohf. kom saman til fundar þriðjudaginn 4. febrúar og ræddi fyrstu skrefin í starfi stjórnarinnar í því að sameina opinberu hlutafélögin Flugstoðir og Keflavíkurflugvöll. Þórólfur Árnason, formaður stjórnar, segir að framundan sé umfangsmikið verkefni.
Lesa meiraEftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga (EFS) hefur lagt til við samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að Sveitarfélaginu Álftanesi verði skipuð fjárhaldsstjórn sem hafi forystu um endurskipulagningu fjármála sveitarfélagsins. Er það með vísan til 76. greinar sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
Lesa meiraTil umsagnar eru nú hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu drög að reglugerð um símtöl og aðra virðisaukandi þjónustu í tal- og farsímanetum með yfirgjaldi. Umsagnarfrestur er til og með 26. febrúar næstkomandi.
Lesa meira
Stofnað hefur verið félag um nýtt ökugerði á Reykjanesi, nánar tiltekið á lóð á vegamótum Reykjanesbrautar og Grindavíkurvegar. Nafn félagsins er Ökugerði ehf. og er stefnt að því að opna æfingabrautir með vorinu.
Lesa meiraSamgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Slysavarnafélagið Landsbjörg hafa gert með sér nýjan þjónustusamning til þriggja ára um rekstur Slysavarnaskóla sjómanna. Samningsupphæð er 61,2 milljónir króna á ári.
Lesa meira
Meðal tillagna nefndar samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um fjárhagsvanda hafna er að endurskoða þurfi hafnalög, verkaskipting hafna verði auðvelduð og úrelding gerð möguleg og að eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga verði falið að hafa sérstakt eftirlit með rekstri hafna.
Lesa meiraSamgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi boða til sameiginlegs kynningarfundar um nýjar leiðir til að efla sveitarstjórnarstigið, í Menntaskóla Borgarfjarðar miðvikudaginn 3. febrúar kl. 17.
Lesa meira
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Kristján L. Möller, hefur skipað vinnuhóp til að fjalla um veggjöld. Tilgangurinn er að fá fram hugmyndir og ábendingar um hvaðeina er tengist fjármögnun samgönguframkvæmda til frambúðar.
Lesa meiraHlutfall kvenna í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins hækkaði mjög milli áranna 2008 og 2009. Er það í kjölfar átaks þar sem þess er gætt í ríkara mæli en áður að hlutfall kynja sé sem jafnast.
Lesa meiraStofnað var í dag opinbert hlutafélag um sameinaðan rekstur opinberu hlutafélaganna Flugstoða og Keflavíkurflugvallar. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Kristjáni L. Möller, var heimilað með lögum nr. 153/2009 sem samþykkt voru á Alþingi 21. desember 2009 að gangast fyrir stofnun félagsins.
Lesa meiraÁ morgun, föstudaginn 29. janúar, verður haldinn í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu stofnfundur opinbers hlutafélags um rekstur Flugstoða ohf. og Keflavíkurflugvallar ohf. Nafn hins nýja félags hefur ekki verið ákveðið.
Lesa meiraBoðnir verða út á næstu vikum vegarkaflar á Suðurlandsvegi og Vesturlandsvegi. Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, tilkynnti þetta á málstofu Vegagerðarinnar og ráðuneytisins í dag þar sem sérfræðingar norsku vegagerðarinnar fjalla um veggjöld.
Lesa meiraSamgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga boða til sameiginlegs kynningarfundar um nýjar leiðir til að efla sveitarstjórnarstigið, í Tryggvaskála á Selfossi, fimmtudaginn 28. janúar klukkan 16.30.
Lesa meiraSamgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Samband íslenskara sveitarfélaga og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) boða til sameiginlegs kynningarfundar um nýjar leiðir til að efla sveitarstjórnarstigið, á Hótel Blönduósi miðvikudaginn 27. janúar 2010 og hefst klukkan 16:30.
Lesa meira
Um fimmtíu manns sitja nú námsstefnu um fjármálareglur sveitarfélaga sem haldið er á vegum Evrópuráðsins og samráðsnefndar ríkis og sveitarfélaga um efnahagsmál. Námsstefnan er ætluð forráðamönnun sveitarfélaga og öðrum sérfræðingum á sviði fjármála ríkis eða sveitarfélaga.
Lesa meiraKominn er út bæklingurinn Eflum lýðræðið - konur í sveitarstjórn sem Jafnréttisstofa og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið gefa út í sameiningu í tilefni af sveitarstjórnarkosningunum í vor.
Lesa meiraFjölmennt var á kynningarfundi um sameiningu sveitarfélaga á Ísafirði föstudaginn 15. janúar. Þetta var annar fundur um kynningu á nýju átaksverkefni um eflingu sveitarstjórnarstigsins á Íslandi.
Lesa meiraKomin er út handbók um flutning á hættulegum farmi á vegum, svonefnd ADR handbók. Vinnueftirlitið gefur bókina út og er höfundur hennar Víðir Kristjánsson, deildarstjóri efna- og hollustuháttadeildar Vinnueftirlitsins.
Lesa meiraRannsóknarnefnd flugslysa stóð ásamt bandarísku flugöryggisstofnuninni Southern California Safety Institute fyrir námskeiði í vikunni um rannsóknir flugslysa. Námskeiðið sóttu 26 manns frá flugrekendum, Félagi íslenskra atvinnuflugmanna, Flugstoðum ohf. og björgunarsveitum.
Lesa meiraSamgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt eftirfarandi tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 8. janúar síðastliðinn um áætlaðar úthlutanir framlaga árið 2010.
Lesa meiraÁætlað er að framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til reksturs grunnskóla, á grundvelli reglugerðar nr. 351/2002, nemi samtals um 5,9 milljörðum króna á árinu 2010.
Lesa meiraÍ dag var undirritaður í Nýju Delí á Indlandi loftferðasamningur milli Íslands og Indlands að viðstöddum Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, og Manmohan Singh, forsætisráðherra Indlands.
Lesa meiraKristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórrnarráðherra, opnaði í dag formlega nýja skoðunarstöð Frumherja við Hólmaslóð í Reykjavík. Er það sjöunda stöð fyrirtækisins á höfuðborgarsvæðinu.
Lesa meiraStarfshópur sem samgöngu- og sveitarsjtórnarráðherra skipaði á dögunum til að endurskoða sveitarstjórnarlög kom í dag saman til fyrsta fundar. Stefnt er að því að drög að frumvarpi endurskoðaðra laga líti dagsins ljós þegar vorar og að í sumar verði leitað víðtæks samráðs.
Lesa meiraSamgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Samband íslenskra sveitarfélaga og Fjórðungssamband Vestfirðinga (FV) boða til sameiginlegs kynningarfundar á Ísafirði föstudaginn 15. janúar um nýjar leiðir til að efla sveitarstjórnarstigið.
Lesa meiraUndirritaður hefur verið nýr þjónustusamningur milli Siglingastofnunar Íslands og Neyðarlínunnar um rekstur Vaktstöðvar siglinga en eldri samningur hefur verið í gildi frá árinu 2004.
Lesa meiraRannsóknarnefnd flugslysa hefur milligöngu um námskeið um rannsóknir á flugslysum og alvarlegum flugatvikum sem haldið verður í Reykjavík 12. til 14. janúar. Námskeiðið er á vegum Southern California Safety Institute í Bandaríkjunum.
Lesa meiraNámsstefna um fjármálareglur sveitarfélaga verður haldin í Reykjavík 22. janúar næstkomandi á vegum Evrópuráðsins og samráðsnefndar ríkis og sveitarfélaga um efnahagsmál. Fjallað verður um fjármálareglur sveitarfélaga og tengslin milli fjárfestingarstefnu og hagstjórnar ríkis og sveitarfélaga.
Lesa meira