Beint í leiðarkerfi vefsins.
Hafin er endurskoðun á sveitarstjórnarlögum á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. Trausti Fannar Valsson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, hefur verið ráðinn verkefnisstjóri starfshóps sem ráðherra hefur skipað til verksins.
Lesa meiraSamgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt endurskoðaða tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun og uppgjör á 1.000 milljóna króna aukaframlagi úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga árið 2009.
Lesa meiraTekjustofnanefnd hefur skilað áfangaskýrslu til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra en nefndinni var falið að yfirfara lög um tekjustofna sveitarfélaga. Meðal ábendinga nefndarinnar er að kanna hvernig jafna megi byrðar vegna endurgreiðslu sveitarfélaga á gengistryggðum lánum næstu árin.
Lesa meiraFern lagafrumvörp sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra lagði fyrir Alþingi í haust urðu að lögum um helgina og í dag. Fjalla þau um fjarskipti, áhafnir skipa, vitamál, Siglingastofnun Íslands og samruna Flugstoða ohf. og Keflavíkurflugvallar ohf.
Lesa meiraRáðherrar Evrópusambandsins hafa sett sér það markmið að háhraðanet nái til allra íbúa sambandsins árið 2013.
Lesa meira
Ísland og Noregur hafa gerst aðilar að loftferðasamningi Evrópusambandsins og Bandaríkjanna sem skrifað var undir í apríl 2007 og tók gildi vorið 2008. Samningurinn veitir flugfélögum í löndunum tveimur aukinn rétt til farþega- og fraktflugs milli Evrópu og Bandaríkjanna.
Lesa meiraSamgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 8. desember síðastliðinn um áætluð framlög til sveitarfélaga á árinu 2010 vegna reksturs grunnskóla.
Lesa meiraDrög að reglugerðum um flugsýningar og fallhlífarstökk eru nú til umsagnar hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Þeir sem óska eftir að veita umsagnir um reglugerðirnar hafa frest til 18. janúar og skulu þær sendar á netfagið postur@sam.stjr.is.
Lesa meiraÁ fundi samgönguráðherra ESB þann 17. desember 2009 náðist sátt um drög að nýrri reglugerð um réttindi farþega með hópbifreiðum. Eins og við var búist bættu ráðherrarnir við möguleikum á undanþágum, auk annarra ákvæða sem líkleg eru til að draga úr áhrifum reglugerðarinnar. Ráðherraráðið fjallaði um drögin eftir að Evrópuþingið hafði komist að samkomulagi um þau.
Lesa meiraDrög að reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 944/2000 um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga er nú til umsagnar á vef samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. Unnt er að senda ráðuneytinu athugasemdir til 22. desember næstkomandi á netfangið postur@sam.stjr.is.
Lesa meiraFramkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur kynnt ráðherraráðinu drög að nýrri reglugerð, sem breytir reglugerð 272/2009, og framlengir banni við að taka með vökva í handfarangri um borð í flugvélar til 29. apríl 2013.
Lesa meira
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samband sveitarfélaga á Austurlandi boða til sameiginlegs kynningarfundar um nýjar leiðir til að efla sveitarstjórnarstigið, á Egilsstöðum mánudaginn 14. desember.
Lesa meiraFyrirhugað er að leggja fram á Alþingi fljótlega eftir áramót tillögu til þingsályktunar um næstu fjögurra ára samgönguáætlun. Lokið verður við áætlunina þegar fjárlög næsta árs hafa verið samþykkt.
Lesa meira
Fulltrúar nokkurra kvennahreyfinga, Jafnréttisráðs og fleiri aðila komu á fund samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í gærmorgun til að heyra af greinargerð starfshóps og tillögur um aðgerðir til að jafna hlut kynja í sveitarstjórnum.
Lesa meiraDrög að breytingu á reglugerð nr. 53/2006 um tilkynningarskyldu flugslysa, alvarlegra flugatvika og atvika eru nú til umsagnar hér á vef samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. Þess er óskað að athugasemdir berist eigi síðar en 23. desember.
Lesa meiraFyrsti alheimsfundur samgönguráðherra heimsins stendur nú yfir í Moskvu og er þar fjallað um umferðaröryggismál. Fulltrúi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra er sendiherra Íslands í Moskvu en auk um 50 ráðherra sitja fundinn fjölmargir sérfræðingar um umferðarmál.
Lesa meiraReikningsskila- og upplýsinganefnd hélt í gær málstofu í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um reikningsskil sveitarfélaga. Þátttakendur voru framkvæmdastjórar sveitarfélaga, fjármálastjórar, aðalbókarar og starfmenn endurskoðunarskrifstofa.
Lesa meiraVegagerðin kynnti í gær nýjar reglur um vetrarþjónustu sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt. Kostnaður lækkar um 200 milljónir króna á næsta ári en þjónustan verður svipuð og var árið 2006.
Lesa meira
Greinargerð starfshóps um aðgerðir til að jafna betur stöðu kynjanna í sveitarstjórnum var rædd í dag á fundi sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra boðaði fulltrúa stjórnmálaflokkanna á.
Lesa meiraDrög að nýrri reglugerð um rekstrartakmarkanir á flugvöllum vegna hávaða er nú til umsagnar hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Þeir sem vilja koma á framfæri umsögn um reglugerðardrögin geta gert það til 2. desember næstkomandi á netfangið postur@sam.stjr.is.
Lesa meiraDrög að frumvarpi til nýrra umferðarlaga eru nú til umsagnar öðru sinni hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Unnt er að senda inn umsögn um drögin til og með 26. nóvember næstkomandi á netfangið postur@sam.stjr.is.
Lesa meira
Komin er út ný handbók um umferðarfræðslu fyrir grunnskólanema. Kristján L. Möller samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra veitti fyrsta eintakinu viðtöku á skrifstofu sinni í dag.
Lesa meiraVegna umfjöllunar um fjárhagsstöðu sveitarfélaga og aðkomu eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga þykir rétt að draga hér saman helstu atriði um hlutverk og skipan nefndarinnar.
Lesa meiraNý drög að breytingu á reglugerð nr. 501/1997 um ökuskírteini og drög að breytingu á reglugerð nr. 327/1999 um löggildingu ökukennara og starfsleyfi ökuskóla eru nú til umsagnar hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Óskað er umsagnar um reglugerðirnar eigi síðar en 8. nóvember.
Lesa meiraSiglingastofnun Íslands stendur í dag fyrir málþingi um rekstur og öryggi farþegaskipa. Fjallað er meðal annars um menntun og þjálfun áhafna, neytendavernd og öryggisstjórnunarkerfi um borð.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 22. október um áætlaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga á árinu 2009.
Lesa meira
Nefnd sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipaði til að fjalla um almenningssamgöngur á Norðurlandi eystra hefur skilað tillögum sínum. Meðal annars er lagt til að stofnað verði samgöngufélag sem skipuleggi samhæft almenningssamgöngukerfi sem rekið verði sem þróunarlíkan.
Lesa meira
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur gefið út reglur um úthlutun aukaframlags Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til sveitarfélaga á árinu 2009.
Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri opnuðu formlega nýjan veg um Arnkötludal í dag. Vegurinn liggur milli Vestfjarðavegar í Króksfirði og Steingrímsfjarðar og opnar nýja leið milli Dala og Stranda.
Starfshópur um umferðarfræðslu í skólum hefur nýverið skilað skýrslu til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Unnið úr tillögum sem fram koma í skýrslunni á næstunni í því skyni að efla umferðarfræðslu í skólum.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur kveðið upp tvo úrskurði í málum er varða ferðaþjónustu fatlaðra íbúa Sólheima í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Sex loftferðasamningar voru áritaðir fyrir hönd Íslands á ráðstefnu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar um loftferðasamninga sem fram fór í Istanbúl í Tyrklandi 28. september til 2. október.
Lesa meira
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga undirrituðu í gær vegvísi að gerð hagstjórnarsamnings. Tilgangur hans er að tryggja samráð ríkis og sveitarfélaga á sviði opinberra fjármála.
Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur samþykkt að leggja til við samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að beiðni Sambands íslenkra sveitarfélaga um að styrkja áfram rekstur skrifstofu þess í Brussel verði samþykkt.
Formlegur samráðsfundur ríkis og sveitarfélaga var haldinn í samgönguráðuneytinu 29. september og sátu hann fulltrúar fjármálaráðuneytis, samgönguráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Farið var yfir stöðu og horfur í búskap ríkis og sveitarfélaga og fjallað um eflingu sveitarfélaga.
Lesa meira
Samgönguráðherra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga undirrituðu í dag yfirlýsingu um að skipa samstarfsnefnd til að ræða og meta sameiningarkosti sveitarfélaga í hverjum landshluta.
Lesa meiraFöstudaginn 2. október verður haldinn ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Hefst hann með ávarpi Kristjáns L. Möller samgönguráðherra.
Samgönguráðherra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga nýttu tækifærið í tengslum við hátíðarfund Fjórðungsþings Vestfirðinga sem haldinn var á Ísafirði í síðustu viku og funduðu um sameiningarmál sveitarfélaga.
Lesa meira
Sala á háhraðanettengingum á vegum fjarskiptasjóðs er hafin í Skagafirði og Akrahreppi. Uppbygginu kerfis er lokið og við tekur sala og uppsetning á þeim 374 stöðum á þessu fyrsta markaðssvæði verkefnisins sem byggist á markmiði fjarskiptaáætlunar samgönguráðuneytisins um að gefa öllum landsmönnum sem þess óska kost á háhraðanettengingu.
Lokasprettur við nýjan kafla á Norðfjarðarvegi um Hólmaháls stendur nú yfir en verklok eru samkvæmt áætlun í byrjun október. Nýi vegurinn verður 5,1 km að lengd og liggur talsvert lægra í hálsinum en núverandi vegur.
Samgönguráðherra hefur samþykkt skipulagsreglur fyrir Reykjavíkurflugvöll og öðlast þær gildi við birtingu í Lögbirtingablaðinu í dag, föstudag 7. ágúst. Reglurnar og uppdrætti má sjá hér að neðan.
Lesa meiraSamgönguráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp til að hefja undirbúning við nýjan veg um Dynjandisheiði. Hópurinn á að taka til starfa með haustinu.
Tvær nýjar leiðir verða senn opnaðar í vegakerfinu á Vestfjörðum. Annars vegar er það nýr vegarkafli í Ísafjarðardjúpi við Mjóafjörð og hins vegar nýr vegur um Gautsdal og Arnkötludal.
Meðal atriða í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er að almenningssamgöngur verði sjálfsagður hluti samgönguáætlunar. Tilgangurinn er meðal annars sá að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda sem stafar frá samgöngum.
Ökuhraði verður samræmdur í 90 km á klukkustund, bílprófsaldur hækkaður í 18 ár og ökuskólar verða þungamiðja ökukennslu er meðal tillagna í frumvarpsdrögum til nýrra umferðarlaga. Unnt er að gera athugasemdir við frumvarpið til 15. september á netfangið postur@sam.stjr.is.
Lesa meira
Nefnd sem skipuð var til að fylgja eftir samstarfssáttmála ríkis og sveitarfélaga hefur fundað stíft að undanförnu og meðal annars fjallað um húsaleigubætur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og aðrar efnahagsráðstafanir og samskiptareglur ríkis og sveitarfélaga.
Samgönguráðuneytið hefur kveðið upp úrskurð í máli er varðar skyldu Grímsnes- og Grafningshrepps til að veita fötluðum íbúa sveitarfélagsins sem búsettur er að Sólheimum ferðaþjónustu.
Samgönguráðuneytið hefur kveðið upp úrskurð í máli þar sem krafist var ógildingar á ákvörðun Hrunamannahrepps um töku lands eignarnámi samkvæmt 32. grein skipulags- og byggingarlaga, til vegagerðar.
Komin er út skýrsla um framkvæmd umferðaöryggisáætlunar 2008 þar sem fram kemur meðal annars að varið var 427 milljónum króna til ýmissa verkefna á því sviði. Yfir helmingur fjárins fer í eftirlit með hraðakstri og eyðingu svartbletta í vegakerfinu.
Kristján L. Möller samgönguráðherra hefur skipað nefnd til að vinna tillögu um að breikka og styrkja tekjustofna sveitarfélaga.
Samgönguráðherra og Umferðarstofa annars vegar og dómsmálaráðherra og lögreglustjórinn á Selfossi hins vegar skrifuðu í dag undir samning um fjármögnun á búnaði til bíltæknirannsókna vegna umferðarslysa. Aðsetur rannsóknanna verður hjá lögreglunni á Selfossi.
Samgönguráðherra og fleiri fulltrúar samgönguráðuneytisins áttu í dag fund með forstöðumönnum stofnana og hlutafélaga ráðuneytisins vegna stöðunnar í ríkisfjármálum og tillagna um hagræðingu og sparnað.
Samgönguráðuneytið hefur kveðið upp úrskurð í máli er varðar afturköllun Skeiða- og Gnúpverjahrepps á fyrri ákvörðun um afhendingu lóðarskika. Niðurstaða ráðuneytisins var sú að afturköllunin hefði ekki verið framkvæmd með lögmætum hætti og sé því ógild.
Fulltrúar sveitarfélaganna Djúpavogshrepps og Fljótsdalshéraðs áttu á þriðjudag fund með samgönguráðherra og fleiri fulltrúum samgönguráðuneytisins á Egilsstöðum. Fundarefnið var hugsanleg sameining sveitarfélaganna sem nú er til athugunar.
Lesa meira
Á aðalfundi Keflavíkurflugvallar ohf. sem haldinn var í gær kom fram að nýjar áætlanir bendi til að um 20% samdráttur verði í sumarumferð um flugvölinn á árinu og að heildarfarþegafjöldi verði svipaður og hann var árið 2004.
Aðalfundur Flugstoða ohf. fór fram miðvikudaginn 27. maí þar sem fram fóru hefðbundin aðalfundarstörf. Fram kom í ávarpi bæði samgönguráðherra og stjórnarformanns að mikilvægt væri að samgöngumiðstöð á Reykjavíkurflugvelli kæmist í gagnið.
Íslandspóstur opnaði fimmtudaginn 28. maí fimmta nýja pósthús sitt og að þessu sinni á Sauðárkróki. Kristján L. Möller samgönguráðherra tók fyrstu skóflustunguna fyrir um ári og flutti hann ávarp við opnun hússins.
Kristján L. Möller samgönguráðherra afhenti í dag fyrir hönd Flugmálastjórnar Íslands Flugstoðum ohf. og Keflavíkurflugvelli starfsleyfi fyrir flugleiðsöguþjónustu. Einnig afhenti hann Keflavíkurflugvelli flugvallarskírteini.
Bílaklúbbur Akureyrar er að hefja framkvæmdir við akstursíþróttasvæði og ökugerði. Kristján L. Möller samgönguráðherra tók ásamt fleirum fyrstu skóflustungurnar fyrir framkvæmdirnar í gær.
Loftferðasamningur milli Tyrklands og Íslands var áritaður í gær í utanríkisráðuneytinu. Þetta er fyrsti loftferðasamningur landanna en Tyrkland er meðal þeirra ríkja sem Ísland hefur átt í viðræðum við að undanförnu.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur ákveðið að halda áfram þróunarvinnu varðandi leiðir við eflingu sveitarstjórnarstigsins.
Lesa meira
Samgönguráðherra samþykkti siðareglur fyrir starfsfólk ráðuneytisins í október á liðnu ári og eru þær nú aðgengilegar á vef ráðuneytisins.
Frumvarp samgönguráðherra um breytta starfsemi Bjargráðasjóðs varð að lögum á Alþingi í gær. Meginbreytingin er sú að sveitarfélögin hætta afskiptum af sjóðnum og fá greiddan út eignarhlut sinn í sjóðnum.
Nær öll sveitarfélög landsins hafa skilað fjárhagsáætlunum vegna yfirstandandi árs í rafrænu formi til ráðuneytisins í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 og reglum þar að lútandi.
Kristján L. Möller samgönguráðherra afhenti í gær Karli Alvarssyni lögfræðingi skipunarbréf sem skrifstofustjóri samgönguskrifstofu samgönguráðuneytisins.
Tilbúin er í drögum reglugerð um öryggisráðstafanir vegna vegaframkvæmda. Tilgangurinn er að auka öryggi á vinnusvæðum við vegi og skulu verktakar gera öryggisáætlun sem veghaldari skal samþykkja. Óskað er eftir umsögnum í síðasta lagi 28. apríl næstkomandi.
Kjörskrár vegna kosninga um sameiningu sveitarfélaganna Akureyrarkaupstaðar og Grímseyjarhrepps 25. apríl verða lagðar fram eigi síðar en á morgun, miðvikudaginn 15. apríl.
Kristján L. Möller samgönguráðherra sprengdi á skírdag síðasta haftið í Héðinsfjarðargöngunum, leggnum milli Héðinsfjarðar og Ólafsfjarðar. Gert er ráð fyrir að göngin verði tekin í gagnið um mitt næsta ár.
Í dag, miðvikudaginn 1. apríl, verður breytt tilhögun við útgáfu bráðabirgðaakstursheimilda til þeirra sem eru að fá sín fyrstu ökuréttindi á fólksbifreið. Ökunemar sem standast próf fá strax bráðabirgðaakstursheimild hjá prófdómara en þurfa ekki að sækja hana á afgreiðslu sýslumanns eða lögreglu eins og fyrirkomulagið hefur verið.
Þrettán tilboð bárust í lagningu nýs Norðausturvegar milli Bunguflóa og Vopnafjarðar og hluta Hofsárdalsvegar og voru tilboðsfjárhæðir allt frá rúmum 2,7 milljöðrum í 738 milljónir króna. Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar hljóðaði uppá 1.440 milljónir króna.
Vel á annað hundrað manns sótti borgarafund Kristjáns L. Möller samgönguráðherra á Neskaupstað í gær. Ráðherrann fjallaði um samgöngumál á Austurlandi og sérstaklega Norðfjarðargöng og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri greindi frá undirbúningi verksins.
Undirrituð var í dag viljayfirlýsing milli ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga um að sveitarfélög landsins taki við málefnum fatlaðra af ríkinu árið 2011. Heildarkostnaður þjónustu ríkisins við fatlaða nemur nú kringum 10 milljörðum króna árlega.
Efling sveitarfélaga var meðal umfjöllunarefna Kristjáns L. Möller samgönguráðherra þegar hann flutti ávarp við setningu landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga í dag. Ráðherrann setti fram þá hugmynd að Alþingi myndi ákveða sameiningarkosti með samráði við sveitarfélög að fengnum tillögum starfshóps fulltrúa stjórnvalda og sveitarfélaga.
Lesa meiraSettur hefur verið upp nýr hlekkur á vefsíðu samgönguráðuneytisins um Evrópumál. Er hann undir: Ráðuneyti-Evrópumál.
Framlag til umferðaröryggisáætlunar verður í ár alls 367 milljónir króna. Samgönguráðherra kynnti áætlunina í dag og um leið var skrifað undir samninga um umferðareftirlit milli Ríkislögreglustjóra annars vegar og hins vegar Vegagerðarinnar og Umferðarstofu.
Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og lögum um gatnagerðargjöld. Breytingin er gerð að frumkvæði samgönguráðherra og í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Tilgangur hennar er að skapa sveitarfélögunum betri rekstrarlegar forsendur vegna efnahagsástandsins.
Lesa meira
Framkvæmdir við Landeyjahöfn hófust á liðnu hausti í framhaldi af undirritun samnings Siglingastofnunar Íslands og Vegagerðarinnar við Suðurverk sem bauð lægst fjögurra bjóðenda og var tilboðsupphæðin 1,9 milljarðar króna. Hafnargerðinni á að vera lokið um mitt næsta ár.
Fjarskiptasjóður og Síminn undirrituðu í dag samning um uppbyggingu háhraðanets um allt land. Með samningum er öllum landsmönnum tryggt háhraðanet fyrir árslok 2010. Um er að ræða tæplega 1800 heimili og verða þau fyrstu tengd innan mánaðar.
Umsóknarfrestur um stöður tveggja skrifstofustjóra í samgönguráðuneytinu runnu út 16. febrúar síðastliðinn. Alls bárust 65 umsóknir um stöðu skrifstofustjóra samskiptaskrifstofu og 59 umsóknir um stöðu skrifstofustjóra samgönguskrifstofu. Allmargir sækja um báðar stöðurnar. Nöfn umsækjenda fara hér á eftir:
Komin er út skýrsla um umferðarfræðslu í skólum sem tekin var saman að beiðni samgönguráðherra. Hefur hún að geyma stutta lýsingu á umferðaröryggi barna á Íslandi og tillögur um að styrkja umferðarfræðslu í skólum.
Umferðarráð hélt í gær fyrsta fund sinn eftir nýja skipan og samþykkti ályktun þar sem hvatt er til þess að yfirvöld og landsmenn stuðli að framtíðarsýn um að enginn látist í umferðarslysum og að alvarlegum slysum fækki til muna. Ályktunin fer hér á eftir.
Stýrihópur sem samgönguráðherra skipaði á síðasta ári til að fylgjast með þróun mála varðandi losun koltvísýrings í siglingum hefur skilað ráðherra áfangaskýrslu. Hópurinn telur mikilvægt að Íslendingar fylgist vel með vinnu innan ESB og Alþjóða siglingamálastofnuninni um mögulega setningu viðskiptakerfis á losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda í siglingum.
Í framhaldi af kynningarfundi og birtingu skýrslu og umræðuskjals á vef samgönguráðuneytisins um aðgerðir til að auka netöryggi á Íslandi er nú birt samantekt á umsögnum sem borist hafa um málið..
Starfshópur sem samgönguráðherra skipaði til að vinna að heildarendurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga kom saman til fyrsta fundar í dag. Verkefni hópsins er að meta gæði núverandi jöfnunarkerfis og setja fram hugmyndir um mögulega heildarendurskoðun.
Skipuð hefur verið ný úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála. Nefndina skipa þrjár konur: Jóna Björk Helgadóttir héraðsdómslögmaður er formaður nefndarinnar, Brynja I. Hafstensdóttir lögfræðingur og Kirstín Flygenring hagfræðingur. Nefndin er skipuð til fjögurra ára.
Vegna skipulagsbreytinga eru lausar til umsóknar tvær stöður skrifstofustjóra hjá samgönguráðuneytinu. Umsóknarfrestur er til 16. febrúar næstkomandi. Umsækjendur eru beðnir að fylla út umsóknir á vefsíðunni: hagvangur.is.
Kristján L. Möller gegnir áfram embætti samgönguráðherra í nýrri ríkisstjórn undir forsæti Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Ný ríkisstjórn tók formlega við á ríkisráðsfundi á Bessastöðum nú síðdegis.
Nýtt skipurit samgönguráðuneytis tekur gildi 1. febrúar. Skrifstofum ráðuneytisins er fækkað, málefni flutt milli skrifstofa og verkaskipting þeirra gerð skýrari.
Samgönguráðherra hefur staðfest breytingu á reglugerð um sektir og viðurlög vegna brota á reglum um akstur og hvíld ökumanna. Með breytingunni er aukið svigrúm vegna frávika frá reglunum. Þannig er nú ekki sektað fyrr en akstur er orðinn 10% yfir aksturstíma en var áður 5-10%.
Flugstoðir og Langanesbyggð hafa gert með sér þjónustusamning um rekstur Þórshafnarflugvallar. Var hann undirritaður í samgönguráðuneytinu í gær og staðfesti Kristján L. Möller samninginn með undirritun sinni.
Samgönguráðherra hefur skipað tvo starfshópa til að hefja athugun annars vegar á hugsanlegri sameiningu samgöngustofnana og hins vegar á sameiningu Flugstoða ohf. og Keflavíkurflugvallar ohf. Markmið þessara athugana er að auka hagkvæmni við rekstur og uppbyggingu í samgöngukerfi landsmanna.
Samgönguráðherra samþykkti á liðnu hausti siðareglur fyrir samgönguráðuneytið. Reglurnar ná yfir ýmis atriði í daglegum verkefnum og framgöngu starfsmanna.
Til umsagnar eru nú hjá samgönguráðuneytinu drög að breytingum á reglugerðum um starfsleyfi og eftirlit með flugleiðsöguþjónustu. Þess er óskað að hagsmunaaðilar sem vilja veita umsögn sína geri það í síðasta lagi fyrir 15. febrúar næstkomandi.
Kristján L. Möller samgönguráðherra tók nýlega á móti þremur mönnum frá Bandaríkjunum sem kanna hugsanlega lagningu sæstrengs milli Íslands og Bandaríkjanna. Þeir kynntu ráðherra áform sín en engar ákvarðanir hafa verið teknar.
Samgöngu- og öryggisskóli Keilis flugakademíu á Keflavíkurflugvelli tók í dag í notkun tvær nýjar kennsluflugvélar og um leið fór fram skólasetning næsta hóps í einkaflugnámi sem fer fram með fjarkennslu. Í skólanum eru kenndar ýmsar greinar sem tengjast flugi og flugþjónustu.
Kristján L. Möller átti í dag fund með fulltrúum flugrekenda og þeirra opinberu aðila sem sinna rekstri flugvalla og flugleiðsöguþjónustu. Nærri 30 manns sátu fundinn þar sem skipst var á skoðunum um ýmsa þætti í flugrekstri svo sem gjaldamál, útblásturskvóta, loftferðasamninga og innanlandsflug svo nokkuð sé nefnt.
Unnið er nú að undirbúningi tilraunar með rafrænar sveitastjórnarkosningar árið 2010. Tilraunin yrði bundin við tvö sveitarfélög. Fulltrúar samgönguráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og dóms- og kirkjumálaráðuneytisins skipa starfshóp sem undirbýr tilraunina.