Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur lagt fram tillögu um úthlutun útgjaldajöfnunarframlaga á árinu 2009 að upphæð 3.900 milljónir króna og hefur Kristján L. Möller samgönguráðherra samþykkt tillögu nefndarinnar. Framlögin verða greidd sveitarfélögunum mánaðarlega.
Í nýjum lögum um ráðstafanir í ríkisfjármálum sem Alþingi samþykkti síðastliðinn laugardag 20.desember er sveitarfélögum heimilað að hækka útsvarshlutfall úr 13,03% í 13,28%. Gefur þetta sveitarfélögunum svigrúm til að afla aukinna tekna og mæta þar með tekjusamdrætti.
Áætlað er að framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til rekstur grunnskóla muni nema rúmlega 5,5 milljöðrum króna á næsta ári. Samgönguráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 12. desember síðastliðinn um áætluð framlög á árinu 2009.
Lesa meiraSamgönguráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 12. desember síðastliðinn um endanlega úthlutun og uppgjör á 1.400 milljón króna aukaframlagi úr Jöfnunarsjóði á árinu. Lokagreiðslan, 250 milljónir króna, fer fram á næstu dögum.
Til umsagnar eru nú hjá samgönguráðuneytinu drög að reglugerð um verkflug í atvinnuskyni. Þeir sem óska geta sent ábendingar og athugasemdir á netfangið postur@sam.stjr.is í síðasta lagi fyrir 5. janúar næstkomandi.
Fimm fyrirlestrar voru fluttir á fundi á vegum samgönguráðuneytisins um net- og upplýsingaöryggi í gær. Var þar fjallað um mögulega stofnun teymis á Íslandi sem hefði það hlutverk að bregðast við ógnum sem stafað geta að net- og upplýsingaöryggi og þýðingu þess að fyrirtæki, stofnanir og hið opinbera sinni skipulega sameiginlegum öryggishagsmunum.
Meðal niðurstaðna í EuroRap gæðamatsins á íslenska vegakerfinu er að af 4.900 kílómetrum á hliðum veganna er meira en 5 metra fall á 720 km, breidd vegar er víðast hvar of lítil og að víða er hægt að auka öryggi vegfarenda með því að fjarlægja grjót og fyrirstöður við vegi, fylla upp skurði og fleira.
Samgönguráðuneytið efnir til kynningarfundar um net- og upplýsingaöryggi næstkomandi miðvikudag, 17. desember. Fjallað verður um mögulega stofnun CERT/CSIRT teymis á Íslandi sem snýst um alþjóðlegt samstarf um netöryggi.
Lokið er fyrir nokkru úttekt ráðgjafafyrirtækisins PriceWaterhouseCoopers á starfsemi Póst- og fjarskiptastofnunar sem gerð var að beiðni samgönguráðuneytisins á síðasta ári. Í skýrslu PWC var bent á nokkra annmarka í starfsemi PFS og hefur stofnunin síðan unnið að ýmsum aðgerðum sem ráðuneytið telur til bóta.
Samgönguráðherra hefur ákveðið skiptingu 250 milljóna króna framlags úr ríkissjóði til sveitarfélaga vegna tímabundins samdráttar í aflamarki þorsks á árinu. Er framlaginu ætlað að koma til móts við tekjumissi sveitarfélaga þar sem samdráttur verður í atvinnu.
Lesa meiraTil umsagnar eru nú hjá samgönguráðuneytinu reglugerðardrög um úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála. Þeir sem óska eftir að veita umsögn eru beðnir að senda þær á netfangið postur@sam.stjr.is eigi síðar en 15. desember.
Samgönguráðuneytið óskar eftir umsögnum um hvernig best verði staðið að því að tryggja fullnægjandi net- og upplýsingaöryggi á íslenskum fjarskipta- og tölvunetum. Þess er óskað að umsagnir berist ráðuneytinu eigi síðar en 15. janúar næstkomandi.
Samgönguráðherra heimsótti í dag Flugklúbbinn Þyt þar sem fagnað var útkomu nýrrar flugvélamyndabókar Baldurs Sveinssonar. Tók ráðherra við fyrsta eintaki bókarinnar og sagði hana hafa að geyma mikilvæga skráningu á starfi grasrótar í fluginu.
Nú stendur yfir endurskoðun fjarskiptaáætlunar til sex ára. Núgildandi áætlun gildir fyrir árin 2005 til 2010 og hafa verkefni hennar einkum snúist um að bæta GSM farsímaþjónustu, háhraðatengingar og úrbætur á útsendingu stafræns sjónvarpsefnis.
Kristján L. Möller samgönguráðherra afhenti stjórnendum útvarpsþáttarins Reykjavík síðdegis á Bylgjunni viðurkenningu Umferðarráðs, Umferðarljósið, við setningu umferðarþings í dag. Á þinginu var fjallað um umferðaröryggi, ökumenn og samgöngukerfið.
Lesa meiraDrög að reglugerð um breytingu á reglugerð um úttektir á öryggi loftfara er nú til umsagnar hjá samgönguráðuneytinu. Hagsmunaaðilar geta skilað inn umsögnum á netfangið postur@sam.stjr.is í síðasta lagi 5. desember næstkomandi.
Meirihluti bjóðenda í háhraðaútboði fjarskiptasjóðs hefur samþykkt að framlengja gildistíma útboðsins. Tilboð voru opnuð 4. september síðastliðinn og bárust sjö tilboð frá fjórum aðilum.
Lesa meira
Kristján L. Möller samgönguráðherra ávarpaði í gær ársfund Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Kom meðal annars fram í máli hans þar að þrátt fyrir að draga kunni úr umfangsmiklum framkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu á næstunni yrði unnið að ýmsum úrbótum til að greiða fyrir umferð, ekki síst almenningsvagna.
Lesa meira
Flugfélag Íslands, Destination South Greenland og Norræna húsið efna í dag til sýningar um Suður-Grænland sem stendur til klukkan 19 í Norræna húsinu í Reykjavík. Kristján L. Möller samgönguráðherra opnaði sýninguna formlega í gær. Í ávarpi sínu hvatti hann til þess að gerður yrði loftferðasamningur milli landanna.
Blásið verður til umferðarþings miðvikudaginn 26. nóvember næstkomandi og stendur það daglangt á Grand hóteli í Reykjavík. Meðal umfjöllunarefna eru umferðaröryggisáætlun, umferðaröryggi í sveitarfélögum, endurskoðun umferðarlaga og umferðarfræðsla í skólum.
Lesa meira
Kristján L. Möller samgönguráðherra flutti ræðu á ársþingi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga í dag og ræddi meðal annars áhrif efnahagskreppunnar á sveitarfélögin og viðbrögð samgönguráðuneytisins við þeim, hugsanlega stækkun sveitarfélaga og fleira.
Lesa meiraReglugerð um aðgang að flugafgreiðslu á flugvöllum er nú til umsagnar hjá samgönguráðuneytinu. Þeir sem þess óska geta sent umsagnir sínar um reglugerðardrögin á netfangið postur@sam.stjr.is fyrir 5. desember næstkomandi.
Lesa meiraRíkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að hætt skuli frekari samningaviðræðum við þýsku skipasmíðastöðina Fassmer um smíði nýs Herjólfs og stöðinni tilkynnt að tilboði hennar yrði ekki tekið. Ástæðan eru aðstæður í efnahagslífi landsins.
Lesa meira
,,Sveitarfélögin standa á tímamótum. Lokið er miklu hagvaxtar- og uppgangstímabili í sögu landsins og framundan er dýfa sem mun reyna á allt okkar samfélag," sagði Kristján L. Möller samgönguráðherra í upphafi ræðu sinnar á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga í dag.
Lesa meiraKristján L. Möller samgönguráðherra ræddi í dag um sameiningarmál sveitarfélaga við fulltrúa fámennra sveitarfélaga sem hafa með sér óformleg samtök innan Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ráðherran lýsti hugmynd sinni um að hækka lágmarksíbúafjölda úr 50 í 1.000 og skiptist á skoðunum við fundarmenn.
Lesa meiraSamgönguráðherra hefur breytt reglugerð um eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga sem gilda á tímabundið vegna efnhagsástandsins á Íslandi. Sett er inn bráðabirgðaákvæði sem gilda skal til ársloka 2009.
Vegrið, klór í steyptum brúargólfum, þróun þungaumferðar, hálendisvegir, skipulagsáætlanir og umferðaröryggi voru meðal fjölbreytilegra umfjöllunarefna á árlegri rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar síðastliðinn föstudag. Fjallað var um efni í fjórum flokkum: Mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.
Lesa meiraDrög að reglugerð um flutningaflug flugvéla er nú til umsagnar hjá samgönguráðuneytinu. Hagsmunaaðilum er boðið að gera athugasemdir og senda þær í síðasta lagi fyrir 24. nóvember næstkomandi á netfangið postur@sam.stjr.is.
Lesa meiraNauðsynlegt er að efla sveitastjórnarstigið með því að færa ýmsa nærþjónustu frá ríki til sveitarfélaga og gera verður sveitarstjórnum kleift að taka við fleiri verkefnum og veita nýja þjónustu. Þetta er meðal þess sem fram kemur í úttekt Stjórnsýsluráðgjafar ehf. um eflingu sveitarstjórnarstigsins.
Undirbúningur að rekstri Keflavíkurflugvallar ohf. sem tekur við rekstri Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar um næstu áramót gengur vel. Fer hann annars vegar fram á vegum stjórnar félagsins og hins vegar stýrihóps samgönguráðuneytisins.
Lesa meira
Drög að endurskoðaðri reglugerð um skoðun ökutækja eru nú til umsagnar á vef samgönguráðuneytis. Frestur til að skila umsögnum um ofangreind reglugerðardrög er til 14. nóvember og skulu þær sendar á netfangið postur@sam.stjr.is.
Stjórnklefi Gullfaxa, fyrstu farþegaþotu í eigu Íslendinga, var afhjúpaður í Flugsafni Íslands á Akureyri í gær að viðstöddu fjölmenni. Flugfélag Íslands tók vélina í notkun glænýja sumarið 1967 og var hún í þjónustu þess og síðar Flugleiða í nærri tvo áratugi.
Í tilefni úrskurðar sem kveðinn hefur verið upp í máli er laut að heimild sveitarfélags til þess að breyta samþykktum sínum vill samgönguráðuneytið beina þeim tilmælum til sveitarfélaga að við slíkar breytingar sé gætt þeirra formreglna sem kveðið er um í sveitarstjórnarlögum nr. 45/1998.
Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur lokið rannsókn tveggja banaslysa á þessu ári og rekur orsakir þeirra til hraðaksturs og vítaverðs aksturslags. Í framhaldi af því leggur nefndin til að ökuleyfisaldur verði hækkaður í 18 ár og að settar verði takmarkanir á akstur handhafa bráðabirgðaökuskírteina.
Kristján L. Möller samgönguráðherra sagðist á hádegisfundi á vegum sveitastjórnar- og skipulagsnefndar Sjálfstæðisflokksins um fjármál sveitarfélaga leggja áherslu á gott samband samgönguráðuneytis og sveitarfélaga.
Samgönguráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 17. október sl. um áætlaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga á árinu 2008 á grundvelli 12. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 113/2003. Áætluð heildarfjárhæð framlaganna nemur um 1.321 milljón króna.
Lesa meiraDrög að reglugerð um innleiðingu á reglugerð (EB) nr. 593/2007 frá 31. maí 2007 um gjöld og þóknanir sem Flugöryggisstofnun Evrópu leggur á er nú til umsagnar hjá samgönguráðuneytinu. Hagsmunaaðilar geta sent umsagnir sínar til 3. nóvember á póstfangið postur@sam.stjr.is.
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga lýkur á mánudag greiðslu framlaga að fjárhæð rúmlega tveir milljarðar króna til sveitarfélaga í landinu en framlögin áttu að berast sveitarfélögunum um næstu mánaðamót. Greiðslunum er flýtt til að bæta fjárhagsstöðu sveitarfélaga.
Starfshópur sem samgönguráðherra skipaði í febrúar 2008 til að fjalla um málefni ökunáms og ökukennslu hefur skilað niðurstöðum. Leggur hann til ýmsar breytingar á fyrirkomulagi ökunáms og framkvæmd ökuprófa, tilhögun ökukennaranáms og starfsemi ökuskóla.
Lesa meiraLögð hafa verið fram til kynningar drög að reglugerð um markaðsgreiningar á sviði fjarskipta. Samgönguráðuneytið óskar eftir umsögn hagsmunaaðila eigi síðar en 5. nóvember næstkomandi.
Lesa meira
Nýr kafli á Reykjanesbraut var tekinn í notkun í dag og er brautin nú orðin tvöföld að undanskildum stuttum kafla gegnum Hafnarfjörð. Kristján L. Möller samgönguráðherra klippti á borða og opnaði brautina formlega að viðstöddum vegamálastjóra og ýmsum gestum.
Kristján L. Möller samgönguráðherra sagði á fyrsta ársfundi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í dag að samgönguráðuneytið væri að undirbúa aðgerðir vegna bágrar fjárhagsstöðu sveitarfélaga. Verður hraðað greiðslum úr Jöfnunarsjóði og flýtt 250 milljóna króna greiðslu til sveitarfélaga vegna samdráttar í aflamarki.
Lesa meiraRannsóknarnefnd umferðarslysa leggur til að hámarkshraði á Hringveginum milli Hveragerðis og Selfoss verði lækkaður í 70 km/klst. samhliða öflugri löggæslu og að unnið verði að því að bæta tengingar inn á veginn með betri merkingum og auknu rými.
Lesa meira
Fulltrúar Grundaskóla á Akranesi og Umferðarstofu skrifuðu ásamt samgönguráðherra undir nýjan samning um umferðarfræðslu í grunnskólum. Grundaskóli verður áfram móðurskóli á þessu sviði og tekur auk þess að sér að semja handbók um umferðarfræðslu í grunnskólum.
Lesa meiraSamgönguráðherra og stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa sent frá sér yfirlýsingu um að tryggja verði að grunnþjónusta hins opinbera skerðist ekki þrátt fyrir tekjusamdrátt og kostnaðarhækkanir.
Lesa meira
Nýr vegarkafli á Hringveginum í Hrútafjarðarbotni var formlega opnaður í gær. Á þeim kafla er ný brú yfir Hrútafjarðará og eru þar með allar einbreiðar brýr á Hringveginum milli Akureyrar og Reykjavíkur aflagðar.
Kristján L. Möller samgönguráðherra opnaði á sjávarútvegssýningunni í Kópavogi í morgun fyrir hönd Símans net langdrægra 3G senda á miðunum við Ísland. Netið veitir sjófarendum 3G samband á miðunum umhverfis landið.
Lesa meira
Tvær lagabreytingar er lúta að fjarskiptamálum voru samþykktar á Alþingi á dögunum og snertir önnur þeirra meðal annars gjald fyrir reikisímtöl og hin felur í sér breytingar á úrskurðarnefnd um fjarskipta- og póstmál.
Lesa meiraSamgönguráðherra, borgarstjóri og framkvæmdastjóri Strætó opnuðu í gær sameiginlega viðbót við forgangsakrein fyrir almenningssamgöngur á Miklubraut. Er hún framlenging á akrein þegar ekið er til vesturs og nær slík akrein nú allt frá Skeiðarvogi að Lönguhlíð.
Lesa meira
Björn Óli Hauksson rekstrarverkfræðingur hefur verið ráðinn forstjóri Keflavíkurflugvallar ohf., nýs opinbers hlutafélags sem tekur formlega við rekstri Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar ohf. 1. janúar 2009. Björn Óli heimsótti í dag Kristján L. Möller samgönguráðherra á skrifstofu hans af þessu tilefni.
Gengið hefur í gildi breyting á reglugerð um ökuskírteini þess efnis að ökuskírteini í D-flokki, sem veita réttindi til farþegaflutninga í atvinnuskyni, má nú aðeins veita þeim sem orðnir eru 23 ára í stað 21 árs áður.
Lesa meira
Þroski í heilastarfsemi, þjálfun, viðhorf, greining aðstæðna og skert hæfni til dæmis vegna vímuefna eru allt skýringar á slysatíðni ungra ökumanna í löndum OECD. Ungir ökumenn á Íslandi standa sig þokkalega vel í samaburði við önnur OECD lönd.
Lesa meira
Kristján L. Möller samgönguráðherra sagði á þingi Fjórðungssambands Vestfirðinga í gær að tímabært væri að ræða hugsanlega hækkun á lágmarksfjölda íbúa sveitarfélaga. Sagði hann töluna 1.000 hafa verið nefnda en lágmarksíbúafjöldi í dag er 50.
Lesa meira
Kristján L. Möller samgönguráðherra sprengdi í gær að viðstöddu fjölmenni fyrstu sprengingunan við framkvæmdir Bolungarvíkurganga. Sprengt var rúma tvo metra inní fjallið Bolungarvíkurmegin.
Lesa meira
Til umsagnar eru nú drög að reglugerð um flug- og vinnutímamörk og hvíldartíma flugverja. Samgönguráðuneytið býður þeim hagsmunaaðilum sem áhuga hafa að senda umsagnir sínar til ráðuneytisins í síðasta lagi fyrir 10. september næstkomandi.
Út er komið 3. tölublað á árinu 2008 af fréttabréfi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um húsaleigubætur. Þar er að finna upplýsingar um greiðslur almennra húsaleigubóta á II. ársfjórðungi 2008 ásamt upplýsingum um greiðslur sérstakra húsaleigubóta.
Lesa meira
Til umsagnar eru nú reglugerðardrög um afgreiðslutíma á flugvöllum. Ekki er um nýtt regluverk að ræða heldur er verið að fullnægja áskilnaði EES-samningsins um innleiðingu reglna sem hafa verið í gildi um skeið hérlendis. Umsagnarfrestur er til 8. september.
Skipaður hefur verið stýrihópur sem móta á flugöryggisáætlun fyrir árin 2009 til 2012. Slík áætlun er hliðstæð öryggisáætlunum á sviði siglinga og umferðar og er stefnt að því að flugöryggisáætlunin verði tilbúin um næstu áramót.
Lesa meira
Samin hafa verið drög að frumvarpi til laga um landflutninga og leysa eiga af hólmi lög nr. 24/1982 um flutningssamninga og ábyrgð við vöruflutninga. Þeir sem óska geta gert athugasemdir við drögin til 8. september næstkomandi.
Lesa meira
Drög að breyttri reglugerð um fis er nú til umsagnar hjá samgönguráðuneytinu. Megin breytingarnar frá eldri reglugerð snúast um leyfi til að starfrækja fis og kröfur til erlendra aðila sem starfrækja vilja fis hérlendis.
Lesa meiraTillögur Ríkisendurskoðunar um breytta skipan samgöngustofnana eru nú til skoðunar hjá Kristjáni L. Möller samgönguráðherra. Í dag kallaði hann til sín forstöðumenn stofnananna til að heyra ofan í þá um þessar hugmyndir. Ráðherra stefnir að því að framhald málsins verði ljóst fyrir árslok.
Lesa meiraRíkisendurskoun leggur til í stjórnsýsluúttekt á samgönguframkvæmdum að skipan stofnana samgöngumála verði breytt. Lagt er til að settar verði á fót þrjár stofnanir, ein á sviði stjórnsýslu, önnur verði framkvæmdastofnun og sú þriðja ríkisfyrirtæki á sviði.samgöngumála.
Lesa meira
Stofnfundur opinbers hlutafélags um þjónustu og uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli var haldinn í dag. Félagið tekur yfir rekstur Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar frá og með 1. janúar 2009. Félagið hlaut nafnið Keflavíkurflugvöllur ohf.
Loftferðasamningur milli Íslands og Egyptalands var áritaður í Kaíró þann 18. júní. Er þetta fyrsti loftferðasamningurinn milli ríkjanna og hefur þegar tekið gildi til bráðabirgða fram að formlegri undirritun.
Lesa meiraStofnfundur opinbers hlutafélags um sameiginlegan rekstur Keflavíkurflugvallar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar verður haldinn fimmtudaginn 26. júní næstkomandi í Leifsstöð.
Lesa meiraKjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga í sameinuðu sveitarfélagi Aðaldælahrepps og Þingeyjarsveitar 28. júní næstkomandi verður lögð fram næstkomandi mánudag, 16. júní. Hægt er að gera athugasemdir við skrána fram á kjördag.
Fjögur tilboð bárust í gerð Landeyjahafnar og Bakkafjöruvegar og voru þau öll undir kostnaðaráætlun. Tilboðin voru opnuð hjá Siglingastofnun Íslands í dag og verða þau metin nánar á næstu tveimur til þremur vikum.
Lesa meiraTil umsagnar eru nú tvær reglugerðir er varða flugmál og tekur önnur þeirra til niðurfellingar nokkurra reglugerða um en hin er breyting á reglugerð um lofthæfi og umhverfisvottun loftfara og fleira. Óskað er umsagna um þær fyrir 1. júlí næstkomandi.
Lesa meiraSamgönguráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun framlags til sveitarfélaga á grundvelli 2. gr. reglna nr. 526 frá 29. maí 2008.
Lesa meiraSamgönguráðherra hefur gefið út reglur um ráðstöfun 1.400 milljóna króna aukaframlags til sveitarfélaga árið 2008. Er framlaginu ætlað að jafna aðstöðumun sveitarfélaga sem talin eru í mestri þörf fyrir viðbótarframlag vegna erfiðra ytri aðstæðna.
Lesa meira
Drög að reglugerð um starfsleyfi flugleiðsöguþjónustu eru nú til kynningar. Reglugerðin er innleiðing á reglugerð (EB) nr. 2096/2005 sama efnis.
Lesa meiraNokkrar breytingar urðu á stjórn Flugstoða ofh. á aðalfundi félagsins sem fram fór í síðustu viku. Fram kom á aðalfundinum að halli var á hefðbundnum rekstri en afkoma samstæðunnar var jákvæð.
Lög um heimild til handa samgönguráðherra um stofnun opinbers hlutafélags um rekstur Keflavíkurflugvallar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar voru samþykkt á Alþingi á síðasta starfsdegi fyrir frestun. Gert er ráð fyrir því að hlutafélagið taki við rekstri vallarins og FLE frá ársbyrjun 2009.
Lesa meiraHreinn Haraldsson tók í dag við bréfi sem settur vegamálastjóri hjá Kristjáni L. Möller samgönguráðherra. Hreinn er settur í embættið til eins árs frá 1. maí síðastliðnum.
Ríkisstjórnin hefur að tillögu samgönguráðherra ákveðið að falla frá hugmyndum um smíði Vestmannaeyjaferju í einkaframkvæmd. Í stað þess verði smíði ferju boðin út með hefðbundnum hætti og í framhaldi af því verði rekstur hennar boðinn út sérstaklega.
Lesa meiraSamgönguráðherra hefur sett reglugerð um réttindi fatlaðra og hreyfihamlaðra farþega í flugi. Með henni er innleidd reglugerð Evrópuþingsins og Evrópuráðsins sem snýst um réttindi fatlaðra og hreyfihamlaðra farþega sem fara um flugvelli og í flug flugrekenda með útgefið flugrekstrarleyfi innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Umferðarráð stóð í dag fyrir minningarathöfn við Dómkirkjuna í Reykjavík í samvinnu við nemendur í Listaháskóla Íslands. Minnst var 916 einstaklinga sem látist hafa í umferðinni á 40 árum eða frá því að hægri umferð var lögleidd hérlendis.
Fagnað var í dag 40 ára afmæli hægri umferðar hérlendis. Umferðarráð bauð til athafnar við Skúlagötu í Reykjavík þar sem minnst var umferðarbreytingarinnar á táknrænan hátt og á hátíðarsamkomu í Þjóðmenningarhúsinu í framhaldi af því voru flutt ávörp og gullmerki Umferðarráðs afhent.
Ný flugbraut með bundnu slitlagi á Sandskeiði var formlega vígð í dag og er hún við hlið grasbrautarinnar fyrir svifflugur sem þar hefur verið í áratugi. Nýja brautin er ætluð vélflugum og verður opin öllu kennslu- og æfingaflugi.
Samgöngur þjóðar - lífæð borgar var yfirskrift fundar Flugmálafélags Íslands í morgun þar sem rætt var einkum um Reykjavíkurflugvöll og þýðingu flugs. Frummælendur voru úr ýmsum áttum og ræddu málin frá sínu sjónarhorni. Var fundurinn hluti af flugdagskrá sem staðið hefur alla vikuna.
Kristján L. Möller samgönguráðherra prófaði nýtt tæki Íslandspósts sem nota má við póstdreifingu þegar hann vígði nýtt pósthús fyrirtækisins á Akranesi á dögunum.
Þrír verkfræðingar fluttu erindi á sjöundu málstofu samgönguráðs í dag þar sem þeir kynntu ýmsar hliðar á nútíma upplýsingatækni í samgöngum. Var einkum fjallað um leiðsögutækni í flugi, á sjó og á vegum.
Sjöundi fundur samgönguráðs um stefnumótun í samgöngum verður haldinn fimmtudaginn 15. maí á Hótel Sögu í Reykjavík og hefst klukkan 15. Fjallað verður um nútíma upplýsingatækni, gjaldtöku og leiðbeiningar í samgöngum.
Siglingastofnun og Vaktstöð siglinga hafa undanfarin tvö ár unnið að gerð nýs tilkynningakerfis um komur og brottfarir skipa og flutninga með hættuleg efni í farmi. Er þetta verkefni í samræmi við tilskipun Evrópuráðsins og lög og reglugerð um Vaktstöð siglinga.
Fjölmenni var á fundi um Sundabraut sem samgönguráðherra efndi til í Ráðhúsi Reykjavíkur í gærkvöld. Á fundinum flutti Kristján L. Möller samgönguráðherra ávarp og fulltrúar Vegagerðarinnar gerðu grein fyrir undirbúningi og leiðvali við lagningu Sundabrautar í göngum eða á brú.
Lesa meiraSamgönguráðherra efnir á miðvikudagskvöld til opins fundar um Sundabraut. Fundurinn verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og hefst klukkan 20.
Framkvæmdastjóri tékkneska verktakafyrirtækisins Metrostav, Jiri Belohlav, heimsótti Kristján L. Möller samgönguráðherra í morgun. Ræddu þeir einkum verkefni Metrostav hérlendis sem er Héðinsfjarðargöngin sem unnin eru í samstarfi við Háfell en framkvæmdastjórinn var hér í stuttri heimsókn. Búið er að sprengja vel yfir 60% af lengd ganganna.
Kosið var um sameiningu sveitarfélaganna Aðaldælahrepps og Þingeyjarsveitar síðastliðinn laugardag. Tillagan um sameiningu var samþykkt af 68,6% kjósenda í Aðaldælahreppi og 57,6% í Þingeyjarsveit.
Kristján L. Möller, samgönguráðherra, hefur sett Hrein Haraldsson í embætti vegamálastjóra til eins árs, frá 1. maí. Hreinn hefur lokið doktorsnámi í jarðfræði frá Háskólanum í Uppsölum í Svíþjóð, með áherslu á mannvirkjajarðfræði og jarðverkfræði. Hreinn kom til starfa hjá Vegagerðinni árið 1981 og hefur undanfarið gegnt þar starfi framkvæmdastjóra þróunarsviðs.
Lesa meira
Yfir 20% íbúar Árborgar og 17% íbúa Reykjanessbæjar sækja atvinnu á höfuðborgarsvæðið. Stækkandi höuðborgarsvæði, vaxandi ferðatími innan þess og áhrif ferðatíma og samgöngubóta á íbúðarverð og búferlaflutninga var meðal þess sem rætt var á málstofu samgönguráðs um samgöngur og byggðaþróun sem haldin var í liðinni viku.
Lesa meira
Kristján Möller samgönguráðherra fundaði í gær með Jacques Barrot, varaforseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og framkvæmdastjóra samgöngumála, en opinber heimsókn samgönguráðherra til Brussel stendur nú yfir. Kristján og Barrot ræddu meðal annars loftferðasamninga, flugverndarmál og aksturs- og hvíldartíma vörubílstjóra.
Frestur til að sækja um stöðu vegamálastjóra er runninn út. Alls sóttu tíu manns um stöðuna. Unnið verður úr umsóknum á næstu dögum. Nöfn umsækjenda eru í stafrófsröð:
Lesa meiraMarkmiðið er að auka umferðaröryggi með því að fækka óskoðuðum ökutækjum í umferðinni.
Lesa meiraTvöföldun Suðurlandsvegar frá Litlu kaffistofu að Hveragerði og jarðgöng undir Vaðlaheiði eru meðal þeirra framkvæmda sem felast í viðauka við samgönguáætlun 2007-2010, sem kynntur var í dag. Gert er ráð fyrir að báðar þessar framkvæmdir hefjist á fyrri hluta árs 2009. Þá felur viðaukinn einnig í sér að framkvæmdum við tengivegi víða um land verður flýtt, auk tiltekinna framkvæmda við hafnir og flugvelli.
"Með þessum breytingum tel ég að skapa megi forsendur til þess að blása til sóknar í uppbyggingu hér á svæðinu, í kringum þessa mikilvægu starfsemi sem hér fer fram," sagði Kristján L. Möller samgönguráðherra á opnum fundi með starfsmönnum á Keflavíkurflugvelli í gær vegna boðaðra lagabreytinga varðandi starfsemi flugvallarins.
Lesa meiraNefnd sú, sem falið var að endurskoða III. kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 með síðari breytingum, er fjallar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, hefur skilað tillögum sínum til samgönguráðherra.
Lesa meiraVerne Holdings ehf. skrifaði í dag undir samninga við Landsvirkjun, Farice og Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar vegna starfsemi fyrir alþjóðlegt gagnaver við Keflavíkurflugvöll. Samgönguráðherra, iðnaðarráðherra og fjármálaráðherra voru viðstaddir undirritunina ásamt fulltrúum fyrirtækjanna.
Auglýst hefur verið eftir tilboðum í uppbyggingu háhraðanettenginga. Ríkiskaup auglýsa útboðið fyrir hönd fjarskiptasjóðs og er frestur til að skila tilboðum til klukkan 11 fyrir hádegi 31. júlí.
Kristján L Möller samgönguráðherra hefur skipað Guðmund Bjarnason, fyrrverandi bæjarstjóra í Fjarðabyggð, formann ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga fram að næstu sveitarstjórnarkosningum.
Nýr sendiherra Frakklands á Íslandi, Olivier Mauvisseau, heimsótti Kristján L. Möller samgönguráðherra á skrifstofu ráðuneytisins í dag.
Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur samþykkt að leggja til að greiðsluhlutfall sjóðsins vegna greiðslu sveitarfélaga á húsaleigubótum á árinu 2007 væri hækkað úr 49 prósentum í 60 prósent.
Sporvagnar, svæðis- og samgönguskipulag og skýrsludrög um almenningssamgöngur á Íslandi voru umfjöllunarefni á fimmta málfundi samgönguráðs í gær. Fram kom meðal annars að sporvagnasamgöngur geta verið kostur jafnvel fyrir bæjarfélög með um 120-150 þúsund íbúa.
Kristján L. Möller samgönguráðherra fjallaði um samgöngu- og fjarskiptamál á opnum fundi með íbúum Djúpavogs síðastliðinn þriðjudag. Fór hann meðal annars yfir þær framkvæmdir sem stæðu fyrir dyrum í vegamálum í landsfjórðungnum.
Kostir og gallar svo sem öryggismál og kostnaður 2+1 vega og 2+2 vega voru til umfjöllunar á morgunverðarfundi Slysavarnaráðs í gær. Frummælendur fjölluðu um efnið og rætt var um það í pallborði.
Lesa meiraSamgönguráð efnir til málþings um almenningssamgöngur fimmtudaginn 7. febrúar. Verður það haldið á Grand Hóteli í Reykjavík og hefst klukkan 15. Aðgangur er ókeypis.
Gunnar Guðmundsson, sérfræðingur í lungnalækningum, sagði íhugunarefni á málþingi um syfju og akstur hvort krefja ætti ökumenn læknisvottorðs um hvort þeir þjáðust af kæfisvefni rétt eins og krafist væri vottorðs um sjón ökumanna áður en ökuskírteini er gefið út.
Opnuð hefur verið vefsíða um syfju og akstur 15.is en þar er að finna ýmsar ábendingar vegna áhættu sem syfjaðir ökumenn skapa í umferðinni. Einnig eru þar ýmis heilræði sem unnt er að grípa til þegar syfja sækir að ökumönnum.
Lesa meiraSamgönguráð efnir til málþings um almenningssamgöngur fimmtudaginn 7. febrúar. Verður það haldið á Grand hóteli og hefst klukkan 15. Aðgangur er ókeypis.
Lesa meiraNiðurstöður rannsóknir á gæðum á 2.540 km á íslenska vegakerfiinu liggja nú fyrir. Meðal niðurstaðna er að á 720 km af þessum 2.450 km er of hátt fall eða bratti við hlið vega, slitlagsbreidd er undir 6 metrum á 1.106 km og fram kemur að víða er hægt að auka öryggi vegfarenda á tiltölulega einfaldan og ódýran hátt.
Reykjavíkurborg og Vegagerðin hafa tekið upp miðlæga stýringu á umferðarljósum á höfuðborgarsvæðinu. Hluti kerfisins sem nær til ljósa á 36 gatnamótum var tekinn í notkun í dag og er talið að það geti sparað ökumönnum hundruð milljóna króna í styttri aksturstíma.
Lesa meiraÍslenskir aðalverktakar og svissneska fyrirtækið Marti Contractors buðu lægst í gerð Bolungarvíkurganga eða 3.479.000.000 krónur. Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar var 3.950.000.000 krónur og er tilboðið 87,88% af áætluninni.
Lesa meiraDrög að nýrri reglugerð um töku sýna og rannsókn vegna aksturs undir áhrifum vímuefna eru nú til umsagnar á vef samgönguráðuneytisins. Þeir sem óska geta gert athugasemdir til 1. febrúar.
Rannsóknarnefnd flugslysa tók árið 2006 alls 41 mál til formlegrar rannsóknar en árið 2005 voru málin 23. Árin 2004 og 2003 var fjöldinn 41 hvort ár, 38 árið 2002 og 20 2001. Ársskýrsla nefndarinnar fyrir síðasta ár er nýverið komin út.