Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ýmsar breytingar verða í samgönguráðuneytinu nú um áramótin. Verkefni verða færð til samgönguráðuneytisins og fjölgar starfsmönnum í samræmi við það um 8 og verða alls 32.
Sex krossar voru í dag reistir við Kögunarhól til viðbótar við þá 52 sem þar voru settir upp í fyrra til að minnast þeirra sem látist hafa í umferðarslysum á Suðurlandsvegi milli Reykjavíkur og Selfoss undanfarin ár.
Málefni flugstarfsemi á Keflavíkurflugvelli og þjónustu í flugstöð Leifs Eiríkssonar flytjast um áramótin til samgönguráðuneytisins. Er það í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að öll flugstarfsemi skuli tilheyra samgönguráðuneyti en ábyrgð á varnarmálum heyri áfram undir utanríkisráðuneytið.
Kristján L. Möller samgönguráðherra hefur skipað nefnd til að endurskoða umferðarlögin í heild sinni. Núgildandi umferðarlög eru frá árinu 1987 með síðari breytingum.
Samið hefur verið við Vodafone um að fyrirtækið taki að sér verkefni vegna síðari áfanga á uppbyggingu GSM þjónustu á Íslandi. Snýst það um uppbyggingu á þjónustu á völdum svæðum þar sem markaðslegar forsendur standa ekki undir rekstri slíks kerfis.
Lesa meiraÚtboðsgögn fyrir síðustu verkefnin við nýja Grímseyjarferju hafa verið send fjórum skipasmíðastöðvum. Opna á tilboðin 4. janúar.
Lesa meiraSamgönguráðuneytið hefur auglýst stöður tveggja lögfræðinga með umsóknarfresti til 27. desember. Verkefni annars lögfræðingsins snúast um málefni sveitarfélaga en hins um verkefni á sviði fjarskipta.
Síðustu vikur og mánuði hefur staðið yfir í samgönguráðuneytinu undirbúningur vegna flutnings á málaflokkum ráðuneytisins. Breytingarnar taka gildi um áramótin eins og aðrar breytingar sem framundan eru á skipulagi Stjórnarráðsins.
Fimmtíu umsóknir bárust um embætti ferðamálastjóra sem samgönguráðuneytið auglýsti á dögunum. Umsóknarfrestur rann út 2. desember og verður farið yfir umsóknir næstu daga og vikur.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda fagnaði fyrir helgina 75 ára afmæli sínu. Auk aðalfundarstarfa var efnt til ráðstefnu um umferðaröryggismál sem félagið hefur haft á stefnuskrá sinni frá upphafi.
Landkynningarsvæði hefur verið tekið í notkun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Kristján L. Möller samgönguráðherra og Jón Gunnarsson, formaður stjórnar FLE, klipptu á borða í dag og opnuðu svæðið.
Lesa meiraFlugvélar á og yfir Íslandi er nafn bókar Baldurs Sveinssonar flugvélaljósmyndara sem Mál og menning hefur gefið út. Baldur afhenti Kristjáni L. Möller samgönguráðherra eintak í dag en í bókinni eru yfir 500 myndir af flugvélum sem teknar hafa verið síðustu 44 árin.
Lesa meiraUndirbúningur að gerð hafnar í Bakkafjöru í Austur-Landeyjum stendur nú yfir og eru ýmis atriði skipulags- og umhverfismála nú til meðferðar hjá þar til bærum yfirvöldum. Gert er ráð fyrir að ný ferjuleið milli Vestmannaeyja og lands verði komin á síðla árs 2010.
Lesa meiraVélsmiðja Orms og Víglundar í Hafnarfirði vinnur nú að síðustu verkunum við endurbætur á nýrri Grímseyjarferju sem valið hefur verið nafnið Sæfari. Kristján L. Möller samgönguráðherra leit á skipið í gær og ræddi við fulltrúa verktakans.
Lesa meiraFundur um öryggismál sjómanna verður haldinn í Þorlákshöfn annað kvöld, fimmtudag 29. nóvember, klukkan 19. Er það annar fundurinn í röð funda um öryggismál sjómanna sem haldnir verða víða um land í vetur.
Lesa meiraVistakstur á ekki að vera fylgiskjal eða viðhengi í umræðunni um umhverfismál eins og hann hefur verið til þessa, hann á að vera aðalatriðið. Með vistakstri skapast ný viðhorf og ný umferðarmenning og hann hefur bæði einstaklingsbundinn og þjóðfélagslegan ávinning í för með sér.
Samgönguráðuneytið hefur auglýst tvær nýjar stöður sérfræðinga í ráðuneytinu. Önnur staðan varðar málefni Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga en hin mál er varða Keflavíkurflugvöll, flugvöllinn og flugstöðina.
Lesa meiraSamgöngur og umhverfismál var yfirskrift fundar samgönguráðs í vikunni þar sem fjallað var um það hvernig akstur, flug og siglingar hafa áhrif á umhverfið. Er þetta fjórði fundurinn í fundaröð samgönguráðs og sátu hann um 40 manns.
Bíltæknirannsóknir sem unnar eru í kjölfar alvarlegra umferðarslysa geta gefið mikilvægar upplýsingar um orsök slysa, ástand ökutækja og fleira. Brýnt er að mati Rannsóknarnefndar umferðarslysa að slíkum rannsóknum sé komið í varanlegan og samræmdan farveg á landinu öllu.
Drög að frumvarpi til breytingar á lögum um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa nr. 76/2001 er nú til umsagnar á vef samgönguráðuneytisins. Unnt er að skila umsögnum til ráðuneytisins til 26. nóvember næstkomandi.
Lesa meira
Kristján L. Möller samgönguráðherra afhenti í dag íslensku gæðaverðlaunin og er Landsvirkjun handhafi þeirra í ár. Fjórir aðilar standa að Íslensku gæðaverðlaununum, Stjórnvísi, forsætisráðuneytið, Háskóli Íslands og VR og voru þau veitt í níunda sinn.
Rannsóknarnefnd umferðarslysa beinir því til samgönguyfirvalda að endurskoða strax reglur um ökuhæfni og heilbrigðisskilyrði. Bent er á að fleiri aðilar verði fengnir til samráðs svo sem heilbrigðisráðuneytið, dómsmálaráðuneytið og lögreglustjórar.
Lesa meira
Kristján L. Möller samgönguráðherra og Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra ræddu málefni ráðuneyta sinna á opnum fundi á Höfn í Hornafirði í gærkvöld. Samgönguráðherra greindi frá fyrirhuguðum framkvæmdum við Hringveginn svo sem styttingu vegarins vestan við Höfn.
Fjarskiptabúnaður í Vaktstöð siglinga verður endurnýjaður á næstu mánuðum en skrifað var undir samning við austurríska fyrirtækið Frequentis í gær. Tilboð bárust frá fjórum aðilum.
Lesa meiraSamgönguráð efnir í næstu viku til fjórða fundar síns um stefnumótun í samgöngum. Verður þá fjallað um samgöngur og umhverfi. Fundurinn fer fram á Grand hóteli við Sigtún í Reykjavík miðvikudaginn 21. nóvember klukkan 15 til 17.
Lesa meiraSamgönguráðuneytið hefur auglýst starf ferðamálastjóra laust til umsóknar og verður skipað í starfið til fimm ára í senn frá 1. janúar 2008. Umsóknarfrestur er til 2. desember næstkomandi.
Lesa meiraFlugsafn Íslands á Akureyrarflugvelli var formlega opnað í gær. Þar er að finna allnokkrar flugvélar af ýmsum stærðum og gerðum og fjölda ljósmynda og gagna sem áhugamenn um flugminjar hafa haldið til haga.
Nærri 150 manns sátu daglanga rannsóknaráðstefnu Vegagerðarinnar í gær þar sem flutt voru 20 erindi um ýmis rannsóknarverkefni. Var þetta sjötta ráðstefnan af þessum toga en rannsóknasjóður Vegagerðarinnar hefur um 100 milljónir króna til að ráðstafa í styrki árlega.
Drög að breytingum á reglugerð um gerð og búnað ökutækja nr. 822/2004 eru nú til umsagnar á vef samgönguráðuneytisins. Unnt er að skila umsögnum til ráðuneytisins til 7. nóvember næstkomandi.
Kristján L. Möller samgönguráðherra ræddi samgöngu- og fjarskiptamál á almennum fundi á Patreksfirði í gærkvöld. Segir hann miklar umræður hafa skapast á fundinum og menn fagnað því að flýta á framkvæmdum og jafnframt lýst óþreyju sinni eftir meira átaki á þessum sviðum.
Drög að nýrri reglugerð um alþjónustu í fjarskiptaþjónustu eru nú til umsagnar á vef samgönguráðuneytisins. Unnt er að senda inn umsagnir til 13. nóvember.
Bandalag íslenskra bílablaðamanna veitti í gær viðurkenninguna ,,Bíll ársins 2008? en nafnbótina hlaut Land Rover Freelandar. Kristján L. Möller samgönguráðherra afhenti verðlaunagripinn, stálstýrið, í athöfn sem fram fór í safni Ásmundar Sveinssonar við Sigtún.
Rétt rúmlega 40 þúsund þotur og skrúfuþotur eru á skrá í dag í heiminum, vélar sem notaðar eru í atvinnuflugi og eru einkaþotur þar meðtaldar. Þotur eru alls 20.262, skrúfuþotur 6.350 og einkaþotur eða smáþotur 13.853.
Þrjú tilboð bárust í síðari áfanga GSM-farsímaþjónustu á landinu en tilboðin voru opnuð í dag. Tvö eru frá innlendum fyrirtækjum og eitt frá svissnesku. Tilboðin voru öll undir kostnaðaráætlun fjarskiptasjóðs sem var 732 milljónir króna.
Lesa meiraGSM-sendir hefur verið tekinn í gagnið í Flatey á Breiðafirði. Með tilkomu hans verður meðal annars bætt mjög farsímaþjónusta á Vestfjarðavegi milli Þorskafjarðar og Vatnsfjarðar.
Lesa meira
Nýskipað flugráð kom saman til fundar í samgönguráðuneytinu í vikunni í fyrsta sinn undir forsæti formannsins, Gunnlaugs S. Stefánssonar, sem Kristján L. Möller samgönguráðherra skipaði á dögunum. Ráðherra ávarpaði flugráðsmenn í upphafi fundar og óskaði þeim góðs gengis.
Lesa meiraTvær sjálfvirkar hraðamyndavélar hafa verið í notkun á Hringveginum í Hvalfjarðarsveit frá byrjun júlímánuðar og hafa þær myndað alls 3.152 hraðabrot í júlí, ágúst og september. Verið er að koma upp sjö slíkum vélum til viðótar og síðari hluta næsta árs verða vélarnar alls orðrnar 16.
Lesa meira
Unnið er nú við lokahnykkinn í endurbótum á nýrri Grímseyjarferju. Kristján L. Möller samgönguráðherra kynnti sér stöðu verksins í gær þegar hann heimsótti Vélsmiðju Orms og Víglundar í Hafnarfirði.
Lesa meiraTilbúin eru drög að lagafrumvarpi um samgönguáætlun sem koma eiga í stað gildandi laga nr. 71/2002. Þeir sem óska geta komið athugasemdum á framfæri við samgönguráðuneytið á netfangið postur@sam.stjr. í síðasta lagi 23. október.
Drög að fimm reglugerðum varðandi flugmál eru nú tilbúin og er hagsmunaaðilum boðið að senda samgönguráðuneytinu umsagnir sínar. Reglugerðardrögin má sjá hér.
Einföldunaráætlun samgönguráðuneytisins er unnin með það markmið í huga að útrýma óþarfa, flóknum eða óljósum stjórnsýslulegum byrðum á fólk og fyrirtæki sem leita þurfa til ráðuneytisins eða stofnana þess.
Lesa meiraÞað sem ógnar flugöryggi í dag er meðal annars hraður vöxtur í flugi, flugmannaskortur sem fyrirsjáanlegur er í öllum heimshlutum og lítill pólitískur vilji í sumum heimshlutum til að takast á við þennan vanda.
Samin hafa verið drög að nýrri reglugerð sem fjallar um sveigjanlega notkun loftrýmisins. Samgönguráðuneytið býður þeim sem óska að senda ábendingar og athugasemdir í síðasta lagi fyrir 18. október á netfang ráðuneytisins.
Unnt er að draga strax verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda frá bílaumferð og meðal möguleika til þess er að taka upp blöndun á eldsneyti með etanóli, lífolíu eða metanóli. Leggja þarf í ýmsar rannsóknir og skapa skattalegar forsendur til að ýta undir þessa þróun. Íslensk yfirvöld eru að kanna slíka möguleika.
Lesa meiraDrög að lagafrumvörpum vegna breytinga á hafnalögum, siglingalögum og lögum um skipan ferðamála voru kynnt í ríkisstjórn í morgun og samþykkt að þau færu til umfjöllunar í þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna.
Lesa meira
Nú stendur yfir 36. þing Alþjóðaflugmálastjórnarinnar í Montreal í Kanada sem haldið er á þriggja ára fresti. Þingið er hið fjölsóttasta til þessa en þar eru nú 1.150 fulltrúar frá 170 þjóðum saman komnir og frá Íslandi sækja þingið fulltrúar samgönguráðuneytis, Flugmálastjórnar Íslands og Flugstoða.
Lesa meira
Stöðugt bætast við nýir sendar fyrir GSM-farsímaþjónustuna á Hringveginum. Áætlað er að í árslok verði boðið uppá GSM-þjónustu á öllum Hringveginum.
Lesa meiraKristján L. Möller samgönguráðherra flutti ávarp á fundi Hafnarsambands Íslands á Ísafirði síðastliðinn föstudag. Á fundinum var meðal annars fjallað um vigtarmál, umhverfismál öryggismál og fleira.
Lesa meiraNýr sendiherra Kína á Íslandi, Zhang Keyuan, heimsótti Kristján L. Möller samgönguráðherra í vikunni.
Lesa meira
Kristján L. Möller samgönguráðherra var heiðursgestur á vestnorrænu ferðakaupstefnunni sem haldin var í Færeyjum í byrjun vikunnar og lauk í gær.
Lesa meira
Samgönguráðherra hefur skipað Valgerði Baldursdóttur, eiganda og fjármálastjóra ferðaskrifstofunnar Lax-á ehf., formann Iceland Naturally í Evrópu.
Lesa meiraFulltrúar Íslands og Malasíu hafa áritað fyrsta loftferðasamninginn sem gerður er milli landanna. Samningurinn tekur gildi þegar við áritun.
Lesa meira
Samgönguráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna hittust á árlegum sumarfundi í Finnlandi á miðvikudag. Er þetta fyrsti fundur þeirra eftir að Kristján L. Möller tók við embætti samgönguráðherra.
Lesa meiraUnnin hafa verið drög að breytingum á lögum um skipan ferðamála nr. 73/2005. Þeir sem óska eftir að koma á framfæri umsögnum geta send erindi sín á tölvupóstfang samgönguráðuneytisins, postur@sam.stjr.is, fyrir 14. september næstkomandi.
Lesa meira
Ferðamálasamtök Vestfjarða hafa gefið út fjögur göngukort af suðurhluta Vestfjarða. Fulltrúar samtakanna afhentu Kristjáni L. Möller samgönguráðherra kortin á dögunum. Þrjú kort til viðbótar eru væntanleg á næsta ári.
Lesa meiraSamgönguráðherra hefur skipað Skúla Helgason, framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar, formann Iceland Naturally. Hann tekur við af Ingimundi Sigurpálssyni, forstjóra Íslandspósts.
Lesa meiraÁ vegum samgönguráðuneytisins hefur verið unnið frumvarp til breytinga á siglingalögum númer 34/1985. Lúta breytingar einkum að takmörkunarfjárhæðum vegna ábyrgðar útgerðarmanns.
Lesa meira
Á ársfundi Samtaka sveitarfélaga í Norðurlandi vestra sem nú stendur á Húnavöllum sagði Kristján L. Möller samgönguráðherra að hafinn væri undirbúningur að flutningi á málefnum sveitastjórna frá félagsmálaráðuneyti til samgönguráðuneytis.
Lesa meira
Icelandair Group hlaut samgönguverðlaun samgönguráðherra sem veitt voru í fyrsta sinn í dag. Verðlaunin fær fyrirtækið og fyrirrennarar þess á sviði flugmála fyrir brautryðjendastarf og áratuga uppbyggingu á flugsamgöngum um Ísland og milli landa.
Lesa meira
Nýtt pósthús Íslandspósts á Húsavík hefur verið tekið í notkun og var það rétt tæplega ár í byggingu. Pósthúsið er það fyrsta í röð 10 nýrra húsa sem Íslandspóstur byggir og tekur í notkun næstu misserin.
Lesa meiraNýr sendir fyrir farsímaþjónustu var tekinn í notkun í dag í Norðurárdal í Skagafirði og þjónar hann Hringveginum í dalnum og stærstum hluta Öxnadalsheiðar. Á næstu vikum koma inn fleiri kaflar á Hringveginum og gert er ráð fyrir að hægt verði að nota GSM-farsíma allan hringinn í lok ársins.
Fulltrúar sveitastjórna á Mið-Austurlandi áttu í fyrradag fund með samgönguráðherra um samgöngumál og einkum jarðgangagerð á Austurlandi. Sveitastjórnarmenn hafa sett fram hugmyndir um mikið átak í jarðgangagerð í fjórðungnum sem kynnt voru ráðherra.
Lesa meiraGreinargerð Ríkisendurskoðunar um kaup og endurnýjun Grímseyjarferju var kynnt í ríkisstjórn í dag. Helstu niðurstöður hennar eru að undirbúningur málsins hafi verið ófullnægjandi og losarabragur á kostnaðaráætlun. Einnig er margt í störfum verksalans gagnrýnt. Í framhaldi af þessu leggur samgönguráðherra til eftirfarandi aðgerðir.
Lesa meiraKristján L. Möller samgönguráðherra heimsótti í dag höfuðstöðvar Íslandspósts hf. í Reykjavík. Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri félagsins, tók á móti ráðherra og greindi frá helstu þáttum í starfseminni.
Lesa meiraÍ undirbúningi er breyting á reglugerð um flutningaflug nr. 193/2006. Þeir sem óska eftir að senda inn umsögn vegna breytingarinnar geta sent tölvupóst á netfang samgönguráðuneytisins.
Lesa meiraAkureyrarflugvöllur verður betur í stakk búinn til þjóna millilandaflugi með farþega og frakt eftir fyrirhugaða lengingu flugbrautarinnar á næsta ári. Auk lengingar á flugbraut er ætlunin að stækka öryggissvæði, endurnýja malbik brautarinnar og bæta tækjabúnað fyrir aðflug.
Lesa meiraHert viðurlög við umferðarlagabrotum, áherslur í umferðaröryggi og upplýsingagjöf fyrir erlenda ökumenn á Íslandi voru umfjöllunarefni blaðamannafundar, sem samgönguráðherra efndi til í dag, í samstarfi við Umferðarstofu, Vegagerðina, lögregluna á Hvolsvelli og Sjóvá.
Lesa meira
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. hefur lokið mati á kostnaði við gerð jarðganga sem vegtengingu milli Vestmannaeyja og Landeyja. Niðurstaða matsins er sú að tæknilega sé mögulegt að gera slík göng og að kostnaðurinn verði líklega á bilinu 50 til 80 milljarðar króna eftir gerð ganganna en áhætta er talin mikil.
Lesa meira
Áttatíu og tvær stórar flugvélar og þotur voru á skrá hjá Flugmálastjórn Íslands um síðustu áramót og 29 léttari vélar. Þá voru hátt í 300 litlar vélar í eigu ýmissa aðila. Alls voru 407 flugvélar á skrá í árslok og fjölgaði þeim um 10 á síðasta ári.
Lesa meiraÁritaður hefur verið nýr loftferðasamningur milli Íslands og Kanada sem veitir íslenskum flugrekendum víðtæk réttindi til áætlunarflugs milli landanna. Samningurinn heimilar meðal annars einnig millilendingar og flug til áfangastaða utan Kanada.
Lesa meira
Flýta á vegaframkvæmdum á ellefu stöðum á landinu á næstu þremur árum og verða fluttir til 6,5 milljarðar króna vegna þessa. Framkvæmdirnar eru við Vestfjarðaveg, Arnarfjarðargöng, Strandaveg, Norðausturveg, Dettifossveg, Norðfjarðargöng, Axarveg, Suðurstrandarveg og Fróðárheiði.
Lesa meira
Flugfélag Íslands á áratuga langa sögu um flug milli Íslands og Grænlands. Á það bæði við núverandi og fyrrverandi Flugfélag Íslands, svo og Flugfélag Norðurlands. Félagið flýgur í sumar 19 ferðir í viku milli landanna.
Lesa meiraFyrsta flugferð sumarsins á vegum Flugfélags Íslands milli Reykjavíkur og Narsarsuaq var farin síðastliðinn þriðjudag en félagið flýgur þessa leið tvisvar í viku. Alls flýgur félagið 19 ferðir í viku milli Íslands og þriggja staða á Grænlandi.
Lesa meira
Fulltrúar Félags íslenskra bifreiðaeigenda, Umferðarstofu og samgönguráðherra skrifuðu í dag undir samning um áframhaldandi úttekt á þjóðvegakerfinu, staðlaðri gæða- og öryggiskönnun undir formerkjum EuroRap. Stefnt er að því að ljúka úttekt á öllum hringveginum á árinu og nokkrum öðrum vegarköflum einnig.
Lesa meiraSamgöngunefnd Evrópuþingsins hefur ákveðið að fresta um tvö ár afnámi einkaréttar í póstdreifingu sem taka átti gildi í ársbyrjun 2009 og mun hún því fyrst taka gildi 2011. Einkaréttarmörkin voru fyrst ákveðin fyrir bréf undir 350 grömmum og þau síðan lækkuð í 100 g og í 50 g frá ársbyrjun 2006.
Sigfús Grétarsson, skólastjóri Grunnskóla Seltjarnarness, og Karl Ragnars, forstjóri Umferðarstofu, rituðu í gær undir samstarfssamning um að skólinn yrði leiðtogaskóli í umferðarfræðslu grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Viðstaddir undirritunina voru Kristján L. Möller samgönguráðherra og Guðbjartur Hannesson, skólastjóri Grundarskóla á Akranesi.
Samgönguráðuneytið óskar eftir umsögn þeirra sem málið varðar um drög á reglugerð um takmarkanir á hávaða frá þotum sem fljúga undir hljóðhraða í almenningsflugi. Frestur til að skila umsögn er til þriðjudags 10. júlí.
Talið er að fjögur til fimm þúsund manns hafi tekið þátt í göngunni gegn umferðarslysum í Reykjavík í dag og nokkur hundruð á Selfossi og á Akureyri. Frumkvæði að göngunni eiga nokkrir hjúkrunarfræðingar á Landspítala - háskólasjúkrahúsi.
Lesa meiraHjúkrunarfræðingar á Landspítala-háskólasjúkrahúsi efna í dag til fjöldagöngu gegn umferðarslysum til að vekja almenning til umhugsunar um afleiðingar hraðaksturs og þess að aka bíl undir áhrifum áfengis, fíkniefna eða lyfja. Skipulagðar eru göngur í Reykjavík og á Akureyri.
Lesa meira
Flughelgi stendur nú yfir á Akureyrarflugvelli og sagði Kristján L. Möller samgönguráðherra í ávarpi við setningu hátíðarinnar að þar mætti sjá getu og hæfni íslenskra flugmanna og flugvéla þeirra.
Lesa meiraFrestir til að koma með athugasemdir vegna heildarendurskoðunar laga um loftferðir hefur verið lengdur til 1. ágúst næstkomandi. Fyrri frestur var til 22. júní.
Lesa meiraKristján L. Möller samgönguráðherra hefur skipað Svanhildi Konráðsdóttur formann ferðamálaráðs. Ráðherra hefur einnig skipað Einar Karl Haraldsson, aðstoðarmann iðnaðarráðherra, sem varaformann ferðamálaráðs.
Lesa meira
Drög að tveimur reglugerðum um flugmál eru kynnt um þessar mundir, reglugerðardrög sem annars vegar fjalla um úttektir á öryggi loftfara og hins vegar fjalla reglugerðardrög um flugleiðsögu á sameiginlega evrópska loftrýminu.
Íslenskir flugrekendur eiga fulltrúa sína á flugsýningunni í París sem hófst í gær og stendur út vikuna. Hér eru meðal annars fulltrúar frá Icelandair Group, Avion Aircraft Trading og Air Atlanta Icelandic og eru þeir í hópi um 200 þúsund annarra fulltrúa kaupenda og seljenda flugvéla sem hér leiða saman hesta sína.
Lesa meiraSamin hafa verið drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um fis nr. 780/2006. Reglugerðina má sjá hér að neðan og er unnt að senda inn umsagnir til 28. júní næstkomandi.
Lesa meira
Þriðjungur þeirra sem telja líklegt að þeir muni ferðast til Íslands næstu fimm árin segir að hvalveiðar muni minnka líkurnar á að þeir heimsæki landið. Tæp 10% segja að veiðar myndu auka líkur á Íslandsferð.
Lesa meiraVaðlaheiðargöng, uppbyggður vegur um Kjöl, Grímseyjarferja og flugvallamál komu til umræðu á fundum Kristjáns L. Möller samgönguráðherra með fulltrúum aðila þessara mála á Akureyri í gær. Ráðherrann hefur að undanförnu sett sig inn í verkefni ráðuneytisins og er nú að ljúka yfirferð í stofnanir þess.
Lesa meiraRíkisstjórnin hefur að tillögu samgönguráðherra ákveðið að ferðum Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs verði fjölgað í sumar. Áætlað er að bæta við rúmlega 20 ferðum á mikilvægum ferðadögum og þá daga verða því þrjár ferðir á dag.
Lesa meiraStýrihópur, sem vinnur að endurskoðun ferðamálaáætlunar 2006 til 2015, hefur farið yfir þrjá málaflokka áætlunarinnar: umhverfismál, gæða- og öryggismál og grunngerð. Hægt er að koma á framfæri ábendingum vegna þessara málaflokka til 17. júní.
Lesa meira
Flutningafyrirtæki innan vébanda Samtaka verslunar og þjónustu hafa hrundið af stað átaki til að minna vegfarendur á gildi vörudreifingar fyrir landsmenn. Um 100 vöruflutningabílar í þjónustu ýmissa aðila verða merktir sérstaklega og hleypti Kristján L. Möller samgönguráðherra átakinu formlega af stað í dag.
Lesa meira
Kristján L. Möller samgönguráðherra kynnti sér í dag starf Póst- og fjarskiptastofnunar en ráðherrann hefur undanfarna daga heimsótt stofnanir samgönguráðuneytisins. Ráðherra sagði brýnt að ljúka sem fyrst verkefnum fjarskiptaáætlunar, að koma upp háhraðatengingum sem víðast á landinu og þétta farsímanetið.
Lesa meira
Samstaða, áhugahópur um slysalausa sýn í umferðinni, afhenti í gær Sturlu Böðvarssyni, fyrrverandi samgönguráðherra, fyrstu heiðursverðlaun samtakanna fyrir framlag hans til umferðaröryggismála. Um leið færði Sturla nýjum samgönguráðherra, Kristjáni L. Möller, kefli fyrir hönd Samstöðu til merkis um að halda áfram starfi samgönguyfirvalda að fækkun umferðarslysa.
Lesa meira
Norðanflug ehf. hóf á sunnudag reglulegt fraktflug milli Akureyrar og Belgíu. Áætlað er að fljúga þrjár ferðir í viku og er önnur ferðin farin í dag, þriðjudag. Norðanflug er nýtt fyrirtæki í eigu Samherja, Saga Capital bankans og Eimskips.
Lesa meira
Fagnað var 70 ára afmæli Icelandair og forvera þess á Akureyrarflugvelli í dag. Kristján L. Möller samgöngráðherra óskaði fyrirtækinu heilla á þessum tímamótum og Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, færði Flugsafninu á Akureyri að gjöf gamla flugvél ásamt rekstrarstyrk.
Lesa meira
Með lögum nr. 69/2007 um breytingu á umferðarlögum nr. 50/1987 urðu ýmsar breytingar á umferðarlögum. Meðal annars voru reglur um unga ökumenn hertar nokkuð. Sjá nánar á vef Alþingis.
Lesa meiraNú stendur yfir endurskoðun á ferðamálaáætlun 2006-2015 og hefur verið ákveðið að óska eftir viðbrögðum við afmörkuðum þáttum verkefnisins eftir því sem því vindur fram.
Lesa meira
Kristján L. Möller, samgönguráðherra, hefur ráðið Róbert Marshall sem aðstoðarmann sinn í samgönguráðuneytinu. Róbert hefur störf í fyrramálið.
Lesa meiraKristján L. Möller samgönguráðherra hefur í dag og í gær heimsótt nokkrar stofnanir sem heyra undir samgönguráðuneytið. Næstu daga mun hann halda áfram þeirri vegferð og segir hann þýðingarmikið að kynnast sem best allri starfsemi ráðuneytisins, innan þess sem utan.
Lesa meira
Fjallað var um ýmsar hliðar á fjármögnun samgöngumannvirkja á þriðja fundi samgönguráðs um stefnumótun í samgöngum í gær. Kom þar meðal annars fram að einkaframkvæmd með veggjöldum sé leið til að auka tekjur til gerðar samgöngumannvirkja og að brýnt sé að finna fjáröflunarleiðir til að sinna brýnum samgönguframkvæmdum.
Lesa meiraKristján L. Möller tók við embætti samgönguráðherra og fékk lyklavöld af skrifstofu ráðuneytisins hjá Sturlu Böðvarssyni, fráfarandi samgönguráðherra. Kristján er þingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi og hefur setið á Alþingi frá árinu 1999.
Lesa meira
Vegamót eru framundan hjá mér. Þær breytingar verða nú að ég læt af embætti samgönguráðherra eftir átta ára starf á vettvangi þessa umfangsmikla málaflokks. Nýtt verkefni tekur við, að gerast forseti Alþingis, og þykist ég vita að það verður áhugavert og krefjandi verkefni.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra skipaði í dag í starfshóp til að vinna að eflingu almenningssamgangna sveitarfélaga. Er það í framhaldi af samkomulagi Halldórs Halldórssonar, formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga, og ráðherra sem þeir skrifuðu undir 27. apríl.
Lesa meiraFinnsk yfirvöld eru duglegust við að fá íbúa til liðs við sig í umferðaröryggisaðgerðum, Danir eru duglegastir við að virkja skólana í þessum efnum og sveitarfélög ættu að nýta hvers kyns áhugahópa til samvinnu við umferðaröryggi.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra og Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra, sem báðir eru þingmenn Norðvesturkjördæmis, áttu með sér fund í félagsmálaráðuneytinu í morgun þar sem þeir fóru meðal annars yfir stöðu atvinnumála á Vestfjörðum sem verið hafa í brennidepli undanfarið.
Lesa meiraÞriðji fundur samgönguráðs um stefnumótun í samgöngum verður haldinn fimmtudaginn 24. maí kl. 15 til 17 á Grand hóteli í Reykjavík. Fjallað verður um fjármögnun samgöngumannvirkja.
Lesa meiraUmhverfisráðherra hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofnunar um nýjan Gjábakkaveg þess efnis að áhrif hans teljist ekki umtalsverð. Úrskurðurinn hefur í för með sér að Vegagerðinni er nú unnt að hefja hönnun og undirbúning útboðs í samræmi við fjárveitingar samgönguáætlunar.
Lesa meiraÁ vegum samgönguráðuneytisins er nú unnið að því að kanna hvort lækka megi flutningskostnað svo að Vestfirðingar sitji við sama borð og aðrir landsmenn í því efni. Skýrsla hefur verið unnin á vegum samgönguráðherra þar sem fram koma hugmyndir um hvernig hægt sé að leysa málið. Hugmyndirnar eru nú til meðferðar hjá samgönguráðuneytinu í tengslum við tillögur Vestfjarðarnefndarinnar.
Lesa meiraStarfsemi Flugskóla Íslands hefur síðustu misserin náð út fyrir landsteinana með því að skólinn hefur sinnt kennslu og þjálfun erlendra flugmanna. Hefur skólinn þannig bæði sinnt verkefnum fyrir erlend flugfélög og fyrir íslensk flugfélög sem ráðið hafa erlenda flugmenn.
Lesa meira
Samgönguráðherra hefur skipað nefnd sem leggja á tillögur fyrir ráðherra um hlutverk og gerð hálendisvega og slóða utan og innan friðlanda og þjóðgarða. Einnig er nefndinni falið að leggja fram hugmyndir um framtíðarþróun vegakerfis hálendisins.
Lesa meira
Rætt var um stöðu, þróun, árangur og framtíð ökukennslu á Íslandi á málþingi sem Ökukennarafélag Íslands hafði forgöngu að ásamt samgönguráðuneytinu og Umferðarstofu. Fluttur var yfir tugur fyrirlestra um efnið og í lok fundar voru pallborðsumræður.
Lesa meiraSamgönguráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp sem falið verður að annast heildarendurskoðun umferðarlaga nr. 50/1987 með síðari breytingum. Óskað er eftir að hópurinn leggi fyrir ráðherra drög að frumvarpi til nýrra umferðarlaga þann 15. desember.
Lesa meira
Flugmálafélag Íslands og Félag íslenskra einkaflugmanna efndu í morgun til opins fundar um almannaflug. Þar fluttu fulltrúar hagsmunaaðila stutt erindi og fulltrúar stjórnmálaflokkanna reifuðu sjónarmið sín um þýðingu almannaflugs.
Lesa meiraStefnt er að því að nauðsynlegar botnrannsóknir vegna lagningar nýs sæstrengs milli Íslands og Evrópu fari fram í sumar. Samgönguráðuneytið hefur haft forgöngu um undirbúningsvinnuna og er stefnt að því að nýr sæstrengur verði tekinn í notkun haustið 2008.
Lesa meira
Ítarleg úttekt samráðsnefndar samgönguráðherra og borgarstjóra um framtíðarkosti Reykjavíkurflugvallar er nú komin út. Skýrslan er aðgengileg hér á vefnum svo og nokkrar aðrar skýrslur sem tengjast úttekt nefndarinnar.
Lesa meira
Menningarsamningar menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis við sveitarfélög á Vestfjörðum og sveitarfélög á Norðurlandi vestra voru undirritaðir í gær. Tilgangur þeirra er að efla menningarstarf sveitarfélaganna og beina stuðningi ríkis og sveitarfélaganna við slíkt starf í einn farveg.
Fyrsta skóflustunga að nýju pósthúsi Íslandspósts var tekin á Akranesi síðastliðinn föstudag. Er það fjórða nýja pósthúsið sem fyrirtækið ræðst í að byggja á síðustu misserum.
Lesa meira
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar fékk Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra á fund sinn á föstdag til að ræða við hann um vegamál, fjarskipti og ferðamál. Var ráðherra meðal annars afhent úttekt á hættulegum vegamótum í sveitarfélaginu og rætt um mögulegar úrbætur.
Lesa meiraHalldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, hafa undirritað samkomulag um samstarf um að efla almenningssamgöngur sveitarfélaga. Samkomulagið er í samræmi við stefnumótun í samgönguáætlun fyrir árin 2007 til 2010.
Lesa meira
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra kynnti sér í gær starfsemi Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar. Markmið félagsins er meðal annars að leiða umbreytingu á varnarsvæðinu fyrrverandi til borgaralegra nota.
Lesa meiraBrýnt er að herða aðgerðir til að lagfæra umhverfi vega í því skyni að draga úr slysahættu vegna umferðaróhapps til dæmis ef bíll ekur útaf. Þetta kom meðal annars fram í máli Auðar Þóru Árnadóttur, deildarstjóra hjá Vegagerðinni, á fundi um umferðaröryggismál í dag.
Lesa meiraÁ morgun, föstudaginn 27. apríl undir lok umferðaröryggisviku, ganga í gildi breytingar á umferðarlögum sem varða meðal annars hert viðurlög við umferðarlagabrotum og breytingar á reglugerð um gerð og búnað ökutækja sem flytja hreyfihamlaða. Einnig hefur tekið gildi ný reglugerð um öryggisbúnað fyrir börn og notkun öryggisbelta.
Lesa meiraEfnt verður í fyrramálið til fræðslufundar um stöðu umferðaröryggismála og er hann sérstaklega ætlaður stjórnmálamönnum en þó opinn öllum. Fundurinn er liður í dagskrá umferðaröryggisviku. Tilgangur hennar er meðal annars að auka og efla vitund stjórnmálamanna fyrir umferðaröryggi.
Lesa meiraSýningin umferðaröryggi fjölskyldunnar var opnuð í dag þegar Sturla Böðvarsson samgönguráðherra setti alþjóðlega umferðaröryggisviku. Meðal dagskráratriða í vikunni eru fræðslufundir, tónleikar, æfingaakstur og fleira.
Á sýningunni sem opnuð var í dag hjá Sjóvá forvarnahúsi við Kringluna í Reykjavík eru kynnt umferðaröryggismál sem varða alla fjölskylduna. Þar er að finna veltibíl, bílbeltasleða, ökuhermi og fleira forvitnilegt sem undirstrikar nauðsyn þess að nota öryggisbúnað bílsins. Einnig verða veittar upplýsingar um notkun barnabílstóla, reiðhjólahjálma og fleira.
Gengið hefur verið frá samningi um gerð nýs Tröllatunguvegar. Vegagerðin skrifaði undir samning um verkið við lægstbjóðanda, Ingileif Jónsson ehf. í Reykjavík og var Sturla Böðvarsson samgönguráðherra viðstaddur undirritunina á Ísafirði á föstudag.
Lesa meiraSkýrsla samráðsnefndar samgönguráðherra og borgarstjóra um úttekt á framtíðarkostum Reykjavíkurflugvallar verður tilbúin í lok næstu viku og stefnt að birtingu hennar þá. Meðal helstu niðurstaðna nefndarinnar er að núverandi flugvöllur í Vatnsmýri sé á góðum stað fyrir flugsamgöngur en að flugvallarsvæðið sé dýrmætt sem byggingarland.
Lesa meiraAðalfundur Flugstoða ohf. var haldinn í dag og gerði Ólafur Sveinsson, formaður stjórnar, grein fyrir helstu störfum stjórnarinnar frá því félagið var stofnað 6. júlí 2006.
Lesa meiraAthuganir sem gerðar hafa verið á vegum Verkfræðistofnunar Háskóla Íslands á gögnum frá Rannsóknarnefnd flugslysa og Flugmálastjórn Íslands um tíðni flugslysa og alvarlegra flugatvika benda sterklega til þess að flugöryggi í atvinnuflugi hafi aukist hér á landi. Skýrslu um athugunina má sjá á vef Rannsóknarnefndar flugslysa.
Lesa meiraLagðar hafa verið fram tillögur um að komið verði á leiðastjórnun við siglingar skilgreindra skipa á ákveðnum siglingaleiðum við suður- og suðvesturströnd landsins. Samgönguráðherra hefur falið Siglingastofnun Íslands að kynna tillögurnar hið fyrsta fyrir Alþjóða siglingamálastofnuninni.
Lesa meiraÍ framhaldi af umfjöllun á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins um starfsumhverfi atvinnubílstjóra vill samgönguráðuneytið árétta nokkur atriði sem þar koma fram. Bent skal á í upphafi að reglur um aksturs- og hvíldartíma atvinnubílstjóra hafa ekki verið hertar heldur hefur eftirlit aukist og viðurlög verið hert eins og gert hefur verið varðandi ýmis önnur brot á umferðarlögum og á við um alla bílstjóra en ekki aðeins atvinnubílstjóra.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur falið Vegagerðinni að hefja undirbúning að útboði á tvöföldun Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar út frá Reykjavík. Verður skipuð verkefnisstjórn til að vinna frumáætlun um fjármögnun og rekstrarfyrirkomulag og undirbúa samráð við viðkomandi sveitarfélög.
Lesa meiraSíminn hefur lokið fyrsta áfanganum í þéttingu GSM farsímanetsins á Hringveginum í samræmi við samning Fjarskiptasjóðs og Símans um verkið sem nær auk þessara kafla til fimm fjallvega. Næsti áfangi er Norðurárdalur og Öxnadalur og sunnanvert Vatnsnesfjall sem ljúka á í júlí.
Lesa meiraRíkisútvarpið er að hefja stafræna dreifingu á dagskrá sjónvarps og útvarps gegnum gervihnött til sjómanna á miðum við landið og til strjálbýlla svæða landsins. Er það gert í krafti samnings stjórnar fjarskiptasjóðs og RÚV við norska fjarskiptafyrirtækið Telenor.
Lesa meiraNokkuð á annan tug flugekenda ásamt fulltrúum samgönguráðuneytisins, Flugmálastjórnar Íslands og Flugstoða ohf. sátu fund sem Sturla Böðvarsson samgönguráðherra boðaði til í dag. Fjallað var um breytingar á skipulagi flugmála sem gengu í gildi um síðustu áramót og greindu flugrekendur frá reynslu sinni og viðruðu sjónarmið sín.
Lesa meira
Skrifað var undir samninga um fimm stærstu styrkina til úrbóta á ferðamannastöðum á Akureyri í vikunni. Fulltrúar styrkþega og Magnús Oddsson ferðamálastjóri skrifuðu undir samningana að viðstöddum samgönguráðherra, Sturlu Böðvarssyni.
Lesa meiraRekstrarskilyrði ferðaþjónustu á Íslandi koma vel út í samanburði við Noreg, Svíþjóð og Danmörku og Ísland er samkeppnishæfast af þessum fjórum löndum þegar litið er til niðurstöðu Alþjóðlegu efnahagsstofnunarinnar í fyrra þar sem metin er samkeppnishæfni 124 landa í ferðaþjónustu. Ísland er í fjórða sæti af þessum 124 löndum.
Lesa meiraSkýrsla Umferðarstofu um umferðarslys á síðasta ári var kynnt á blaðamannafundi í dag. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sagði við það tækifæri að slysin á síðasta ári hefðu verið of mörg og ekki í samræmi við markmið umferðaröryggisáætlunar um fækkun slysa.
Lesa meiraAð undanförnu hefur kastljósi fjölmiðla verið beint að skorti á reglum um öryggisbelti fyrir farþega í bifreiðum sem ætlaðar eru til flutnings hreyfihömluðum og sitja í hjólastól sem festur er við gólf bifreiðarinnar.
Lesa meiraSamgönguáætlanir fyrir árin 2007 til 2010 og 2007 til 2018 voru til umfjöllunar á síðustu starfsdögum Alþingis. Fjögurra ára áætlunin var samþykkt en tólf ára áætlunin var ekki afgreidd eins og gerðist með nokkur önnur frumvörp ríkisstjórnarinnar.
Lesa meiraUmferðarráð samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum 15. mars. Er þar fagnað þeirri fyrirætlun að skilja að akstursstefnur á fjölförnustu þjóðvegunum í nágrenni Reykjavíkur.
Lesa meiraÍ skýrslu samgönguráðherra um framkvæmd vegáætlunar 2006, sem dreift hefur verið á Alþingi, kemur meðal annars fram að tæplega 14 milljarðar króna fóru til hvers kyns vegamála á síðasta ári. Einnig hefur verið dreift á Alþingi skýrslu um stöðu umferðaröryggismála á síðasta ári.
Lesa meiraÍslenskur bás er nú í fyrsta sinn á árlegri kaupstefnu og ráðstefnu um siglingar skemmtiferðaskipa um höfin sjö sem nú stendur í Miami í Flórída í Bandaríkjunum. Alls höfðu erlend skemmtiferðaskip viðkomur 185 sinnum í íslenskum höfnum í fyrra.
Lesa meiraStjórn fjarskiptasjóðs hefur auglýst forval vegna síðari áfanga í þéttingu gsm-farsímanetsins á þjóðvegakerfinu. Senda skal inn þátttökutilkynningar fyrir kl. 11 fimmtudaginn 12. apríl.
Lesa meiraLagðar hafa verið fram á Alþingi skýrslur Rannsóknarnefndar flugslysa og Rannsóknarnefndar sjóslysa fyrir síðasta ár. Þar kemur meðal annars fram að ekkert banaslys varð í flugi á síðasta ári en fjórir fórust á sjó.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra mælti í dag á Alþingi fyrir lagafrumvarpi um íslenska alþjóðlega skipaskrá. Markmið þess er að stuðla að skráningu kaupskipa á Íslandi, íslenskra sem erlendra.
Lesa meiraNærri níu af hverjum tíu nettengdum heimilum á Íslandi notuðu hraðvirka tengingu í fyrra en 62% í löndum Evrópusambandsins. Að meðaltali voru tölvur á 84% íslenskra heimila og 83% heimila voru tengd netinu árið 2006. Það ár höfðu 62% heimila í ESB-löndum tölvu og 51% voru tengd netinu.
Hafin er á vegum samgönguráðuneytisins könnun á áhrifum hvalveiða á stærstu markaðssvæðum íslenskrar ferðaþjónustu og á ímynd landsins. Ferðamálastofu var falið að sjá um verkefnið.
Lesa meiraÁkveðið hefur verið að leggja mat á kostnað við gerð jarðganga milli lands og Eyja. Fengið verði óháð ráðgjafafyrirtæki til að annast verkefnið sem fælist í því að lesa úr fyrirliggjandi gögnum um rannsóknir og kostnaðarmat við hugmynd um jarðgöng.
Lesa meiraSiglingastofnun Íslands er nú að ljúka rannsóknum á mögulegum endurbótum á innsiglingunni á Rifshöfn á Snæfellsnesi. Starfsmenn stofnunarinnar kynntu í dag ráðherrum og þingmönnum helstu niðurstöður rannsóknarinnar en líkantilraunir hófust í nóvember síðastliðnum.
Lesa meiraSamkeppnisstaða íslenskrar ferðaþjónustu er í fjórða sæti af 124 löndum samkvæmt könnun Alþjóðlegu efnahagsstofnunarinnar, World Economic Forum. Iðntæknistofnun er samstarfsaðili stofnunarinnar hér á landi en hún hefur meðal annars það hlutverk að fylgjast með framleiðni einstakra atvinnugreina.
Lesa meiraMeð breytingu á reglugerð nr. 501/1997 um ökuskírteini verður ökunemum skylt frá ársbyrjun 2008 að gangast undir þjálfun í ökugerði. Skulu þeir gera það á ökunámstímanum eða áður en fullnaðarskírteini er gefið út. Nokkrir aðilar hafa lýst áhuga á að reka ökugerði hérlendis.
Lesa meiraSamgönguráðuneytið og Flugfélag Íslands undirrituðu í dag samning til þriggja ára til að tryggja flug á milli Íslands og Suður-Grænlands.
Lesa meiraTekið hefur gildi endurskoðuð reglugerð um stærð og þyngd ökutækja sem snertir einkum vöruflutningabíla. Markmið breytinganna er meðal annars að fella almennar undanþágur inní reglugerðina vegna stærðarmarka og hafa til þessa verið heimilaðar með undanþágum.
Lesa meiraDreift hefur verið á Alþingi frumvarpi til laga um íslenska alþjóðlega skipaskrá sem samið var á vegum samgönguráðuneytis. Jafnframt er dreift frumvarpi fjármálaráðherra varðandi skattaleg atriði slíkrar skrár.
Lesa meiraNýlega gengu í gildi breytingar á skipulagi samgönguráðuneytisins. Markmiðið með breytingunum er að auka skilvirkni og bæta verklag ráðuneytisins og einstakra eininga þess. Aukin áhersla verður lögð á forgangsröðun verkefna, eftirfylgd og mat á árangri.
Lesa meiraFerðamálaráð leggst alfarið gegn hugmyndum um heilsársveg yfir Kjöl en telur að skoða beri til hlítar mögulegan ferðamannaveg, eins og fram kemur í núverandi skipulagi miðhálendisins, segir í ályktun sem ráðið samþykkti á fundi sínum nýverið.
Lesa meiraSkipaður hefur verið starfshópur til að skilgreina þarfir varðandi uppbyggingu hafna og þjónustu við skemmtiferðaskip sem leggja leið sína til Íslands. Er honum einkum ætlað að fjalla um nauðsynlega aðstöðu í höfnum og aðra innviði til að þessi grein ferðaþjónustunnar geti blómstrað.
Lesa meiraÖryggi vega var yfirskrift fundar samgönguráðs og samgönguráðuneytis í dag í fundaröðinni um stefnumótun í samgöngum. Þrír sérfræðingar ræddu þar um öryggisaðgerðir á vegum og öryggi vegamannvirkja.
Lesa meiraVegagerðin hefur auglýst eftir tilboðum í gerð nýs Trollatunguvegar sem verður alls 24,5 km langur. Verkinu á að vera lokið fyrir 1. september 2009.
Lesa meiraUndirritaður hefur verið árangursstjórnunarsamningur milli samgönguráðuneytisins og Ferðamálastofu. Tilgangur hans er að festa í sessi ákveðið samskiptaferli milli þessara aðila og skerpa áherslur í framkvæmd verkefna.
Lesa meiraSamgönguráð og samgönguráðuneytið standa næstkomandi fimmtudag, 22. febrúar, fyrir fundi um öryggi vega. Er þetta annar fundurinn í fundaröð samgönguráðs um stefnumótun í samgöngum.
Lesa meiraVegna umræðu síðustu daga og vikur um siglingar flutningaskipa við landið og hugsanlega takmörkun á siglingaleiðum vill samgönguráðuneytið taka fram eftirfarandi:
Lesa meiraÁkveðið hefur verið að hefja endurskoðun á ferðamálaáætlun 2006 til 2015 en hún var samþykkt á Alþingi á vordögum 2005. Gert var ráð fyrir því að endurskoðunin færi fram fyrir árslok 2009 en þar sem vel hefur gengið að hrinda verkefnum áætlunarinnar í framkvæmd hefur samgönguráðherra ákveðið að ráðist verði í endurskoðunina fyrr.
Lesa meiraTillaga til þingsályktunar um tólf ára samgönguáætlun áranna 2007 til 2018 er viðamikið plagg. Henni fylgir fjögurra ára áætlun 2007 til 2010. Vekja má athygli á því að báðar þessar áætlanir má finna á vefsíðu Alþingis.
Lesa meiraSamgönguáætlun 20007 til 2018 felur í sér stefnumótun og helstu markmið í samgöngumálum sem unnið skal að, skilgreiningu á grunnneti, áætlun um fjáröflun og yfirlit um útgjöld til helstu þátta í rekstri samgöngustofnana svo og við halds, öryggismála og nýframkvæmda á sviði flugmála, siglingamála og vegamála.
Lesa meiraÖflugasta leiðin til að draga úr megnandi útblæstri frá bílum á Íslandi er að auka hlut dísilbíla; yfir 50% ferða fólks í Reykjavík til og frá vinnu eru styttri en 2 km; gera þarf ráð fyrir reiðhjólum í umferðinni og hætta að miða allt skipulag við bíla.
Lesa meiraMeð auknum flutningum á landi hafa málefni sem varða stærð og þyngd ökutækja í flutningum á vegum verið í brennidepli og hvernig málum verði best háttað án þess að það komi niður á umferðaröryggi.
Lesa meiraSamgönguráðherra og formaður stjórnar Flugstoða ohf. hafa skrifað undir viljayfirlýsingu þar sem Flugstoðum er falinn undirbúningur að byggingu og rekstri samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýri í Reykjavík samkvæmt gildandi skipulagi. Nánari tilhögun undirbúnings og framkvæmdarinnar verður ákveðin síðar.
Lesa meiraÍ frumvarpi sem Sturla Böðvarsson samgönguráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun er meðal annars gert ráð fyrir verulegri einföldun á leyfisveitingum í atvinnugreininni.
Lesa meiraUmhverfismat samgönguáætlunar fyrir árin 2007 til 2018 fylgir nú áætluninni í fyrsta sinn og er það í samræmi við ný lög frá Alþingi á liðnu vori. Í skýrslu um matið er gerð grein fyrir heildarmati á afleiðingum áætlunarinnar á umhverfi og samfélag. Ísland er meðal fyrstu landa í Evrópu sem hrint hafa í framkvæmd mati á umhverfisáhrifum samgönguáætlunar á landsvísu en nokkur Evrópulönd hafa lagt fram umhverfisskýrslur með áætlunum sem ná til einstakra landsvæða.
Lesa meiraÁkveðið hefur verið að ráðast í endurskoðun á lögum nr. 34/1985, siglingalögum. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hyggst á næstunni skipa starfshóp sem falið verður að leggja fram tillögur um hugsanlegar lagabreytingar.
Lesa meiraMeðal markmiða fjarskiptaáætlunar 2005 til 2010 er að sjónvarps- og útvarpsdagskrá RÚV verði dreift með stafrænum hætti um gervihnött til sjómanna á miðum við landið og strjálbýlla svæða landsins. Skrifað var í dag undir samning við Telenor á grundvelli samningskaupaferlis um að annast verkefnið. Þrjú tilboð bárust öll frá erlendum aðilum.
Lesa meira
Skipaður hefur verið nýr formaður Umferðarráðs og er það Kjartan Magnússon borgarfulltrúi. Kjartan tekur við af Óla H. Þórðarsyni sem lét af embættinu síðastliðið haust.
Lesa meira
Gengið hefur verið frá samningum milli Ríkislögreglustjórans, Vegagerðarinnar og Umferðarstofu fyrir hönd samgönguráðuneytisins um aukið umferðareftirlit lögreglunnar um land allt. Samningarnir eru grundvallaðir á umferðaröryggisáætlun sem gilt hefur fyrir árin 2005 til 2008 og endurskoðaðri áætlun sem lögð verður fyrir Alþingi á næstu dögum. Verður 218 milljónum króna varið til verkefna á þessum sviðum árin 2007 og 2008.
Lesa meiraBjarni Djurholm samgönguráðherra Færeyja, sem staddur er á Íslandi, heimsótti í dag Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra. Áttu þeir fund í samgönguráðuneytinu ásamt nokkrum samstarfsmönnum sínum.
Lesa meiraFrumvarp til nýrra vegalaga er nú til meðferðar á Alþingi en meðal breytinga sem þar eru lagðar til má nefna almenna heimild til gjaldtöku af umferð, breytingar á flokkun og veghaldi á vegum, nýmæli varðandi skipulag, hönnun og öryggi í umferð og ýmis nýmæli er varða kostnaðarskiptingu vegna aðgerða til að draga úr áhrifum frá umferðarhávaða.
Lesa meiraÍ nýjasta tölublaði Framkvæmdafrétta, fréttablaði Vegagerðarinnar, ber Hreinn Haraldsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs, saman kostnað við tvær leiðir fyrir nýbyggingu á kafla Vestfjarðavegar í Gufudalssveit. Segir hann jarðgangaleið munu verða tveimur til þremur milljörðum króna dýrari en fyrirhuguð leið um utanverðan Þorskafjörð og þverun Djúpafjarðar og Gufufjarðar.
Lesa meira
Komin er út bókin Brýr að baki, fjórða bindið í ritröð Verkfræðingafélags Íslands sem mun enda á 10. bindinu árið 2012 með því að fjalla um 100 ára sögu félagsins. Brýr að baki fjallar um brýr á Íslandi í 1100 ár og er höfundur hennar Sveinn Þórðarson sagnfræðingur.
Lesa meira
Rætt var um ferðir, búsetur og samgöngukerfi á fundi í dag, þeim fyrsta í fundaröð sem samgönguráð og samgönguráðuneyti standa fyrir næstu mánuði. Flutt voru þrjú erindi og í framhaldinu voru umræður og fyrirspurnir.
Lesa meira
Vegagerðin og verktakafyrirtækin KNH ehf. og Vestfirskir verktakar skrifuðu í dag undir verksamning um vegagerð á Djúpvegi í framhaldi af útboði sem fram fór í lok síðasta árs. Verksamningurinn tekur til 14,5 km kafla Djúpvegar milli Reykjaness og Hörtnár utarlega við vestanverðan Mjóafjörð. Verkinu á að ljúka fyrir 1. nóvember á næsta ári.
Lesa meira
Samgöngumál, fjarskipti og markaðsmál í ferðaþjónustu voru meðal umræðuefna í ávarpi Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra á aðalfundi Ferðamálasamtaka Íslands sem nú stendur á Ísafirði. Auk hefðbundinna aðalfundastarfa eru á fundinum flutt erindi um uppbyggingu markaðsstofu Vestfjarða og stefnumótun og miðlun upplýsinga.
Lesa meiraSamgönguráð og samgönguráðuneytið efna á næstunni til fundaraðar um samgöngumál. Sá fyrsti fer fram fimmtudaginn 25. janúar á Grand hóteli í Reykjavík og stendur milli kl. 15 og 17. Fundarefnið er: Ferðir, búseta og samgöngukerfi.
Lesa meiraSamgönguráðherra hefur ákveðið að veita samgönguverðlaun. Viðurkenningin verður veitt árlega þeim einstaklingi, samtökum eða stofnun sem þykir hafa lagt fram verðmætan skerf á einhverju sviði samgöngumála. Veitt verða peningaverðlaun auk verðlaunagrips.
Lesa meira
Engar bylgjur ekkert samband var yfirskrift fundar sem Skýrslutæknifélag Ísland (Ský) stóð fyrir í hádeginu í dag. Var þar meðal annars rætt um nýjan sæstreng, áhrif sambandsrofa í millilandasamskiptum, hagsmuni fjármálageirans og fleira. Fundinn sóttu liðlega 70 manns.
Lesa meiraNefnd sem falið var að leggja fram tillögur um hvenær einkaframkvæmd í samgöngum gæti talist vænlegur kostur hefur skilað skýrslu. Kemst hún meðal annars að þeirri niðurstöðu að einkaframkvæmd sé álitleg leið sé hún ódýrari kostur en eiginframkvæmd ef annar kostur er um leiðaval og sértækri gjaldtöku beitt. Nefndin telur mikilvægt að finna nýjar fjáröflunarleiðir til að sinna brýnum samgönguframkvæmdum þar sem markaðir tekjustofnar standi greinilega ekki undir þeim öllum eins og staðan er nú.
Lesa meiraÁkveðið hefur verið að vinna að gerðs svonefnds hliðarreiknings fyrir ferðaþjónustu á Íslandi en með því er átt við víðtæka gagnasöfnun um umfang ferðaþjónustu í íslensku efnahagslífi. Samgönguráðuneytið hefur samið við Hagstofu Íslands um verkefnið og veitir til þess sjö milljónum króna.
Lesa meira
Farskiptasjóður og Síminn hf. skrifuðu í dag, 12. janúar, undir samkomulag um að Síminn taki að sér verkefni við uppbyggingu GSM-farsímanetsins. Bryjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, og Friðrik Már Baldursson, formaður stjórnar fjarskiptasjóðs, skrifuðu undir samninginn ásamt Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra. Vottar voru þau Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri og Júlíus Sæberg Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa.
Lesa meiraÍ framhaldi af umfjöllun um viðgerð sem stendur fyrir dyrum á sæstrengnum Cantat-3 sem er í eigu erlendra aðila og möguleika á varasambandi vill samgönguráðuneytið taka eftirfarandi fram:
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra boðaði til fundar um samgöngu og fjarskiptamál á Café Riis á Hólmavík í gærkvöld, miðvikudagskvöldið 10. janúar. Um áttatíu manns mættu til fundarins.
Lesa meiraVakin skal athygli á því að lagabreytingar um síðustu áramót um fækkun tollstjóraembætta hafa áhrif á þjónustu sem snýr að lögskráningu sjómanna og er á ábyrgð samgönguráðuneytisins. Sums staðar á landinu verður um lengri veg að fara til að reka erindi er varða lögskráningu sjómanna í þeim tilvikum sem krafist er mætingar hjá lögskráningarstjóra.
Lesa meiraUnnin hafa verið drög að nýrri reglugerð um flugvelli en meðal breytinga eru ný orðtök og orðskýringar og margs konar ákvæði eru sett inn er varða girðingar umhverfis flugvelli, vottun og umferð og öryggi á flugvöllum. Hagsmunaaðilar og aðrir sem hafa áhuga á að kynna sér reglugerðina geta sent athugasemdir til samgönguráðuneytisins til 28. janúar á netfangið postur@sam.stjr.is.
Lesa meira
Umhverfisráðherra hefur kveðið upp úrskurð í kæru vegna úrskurðar Skipulagsstofnunar um vegagerð á Vestfjarðavegi nr. 60 þar sem hann liggur milli Bjarkarlundar og Eyrar í Kollafirði. Tillaga Vegagerðarinnar er að leggja nýjan veg á kafla meðfram ströndum og þvera Þorskafjörð, Djúpafjörð og Gufufjörð í stað þess að fylgja núverandi vegarstæði. Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra fellst á þessa tillögu Vegagerðarinnar með nokkrum skilyrðum, meðal annars að ræktaður yrði sambærilegur birkiskógur og raskast myndi við framkvæmdina.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra heimsótti í dag Flugstoðir ohf. og ræddi við starfsmenn í flugstjórnarmiðstöðinni og flugturninum í Reykjavík. Var tilgangurinn meðal annars að þakka starfsmönnum fyrir vel unnin störf nú þegar félagið er að hefja göngu sína.
Lesa meiraUndirritaður hefur verið nýr samningur milli Íslands, Grænlands og Færeyja um ferðamálasamstarf milli landanna. Samningurinn kallast NATA, North Atlantic Tourism Association. Fulltrúar Íslands í stjórninni eru Áslaug Alfreðsdóttir, Gunnar Sigurðsson og Magnús Oddsson. Ráðherrar ferðamála frá löndunum þremur, Sturla Böðvarsson, Bjarni Djurholm frá Færeyjum og Grænlendingurinn Siverth Heilmann gengu frá samkomulaginu.
Lesa meiraBiskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, gerði umferðarslys að umtalsefni í nýársprédikun sinni í guðsþjónustu í Dómkirkjunni í gærmorgun. Sagði hann að skelfileg umferðarslys sem hafi valdið dauða 30 karla, kvenna og barna skilja eftir sig harm og sorg. Slíkt væri ægileg blóðtaka sem líkja mætti við hamfarir.
Lesa meira