Beint í leiðarkerfi vefsins.
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur svarað bréfi frá Öryggisnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna sem honum barst að kvöldi 30. desember en þar lýsir nefndin áhyggjum vegna ,,þeirrar stöðu sem fyrirsjáanleg er í flugumferðarstjórn í íslenska flugstjórnarsvæðinu nú um áramót,? eins og segir í bréfinu. Í svari samgönguráðherra segir að fyllsta flugöryggis sé gætt þrátt fyrir að þjónusta verði takmörkuð í byrjun.
Lesa meiraRíkisstjórnin hefur samþykkt að tillögu Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra að hefja undirbúning að lagningu nýs sæstrengs milli Íslands og Evrópu. Samgönguráðherra mun fyrstu dagana í janúar ræða við þá sem málið snertir, fulltrúa fjarskiptafyrirtækjanna, stjórn Farice og aðra hagsmunaaðila.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra sagði í nýársboði Flugmálastjórnar í gær að með breyttri skipan flugmála væri verið að auka sveigjanleika og hagkvæmni til að geta brugðist sem skjótast við nýjum hugmyndum og möguleikum í þjónustu við flugstarfsemi. Boðið var haldið í tilefni af þeim tímamótum sem framundan eru með breyttu skipulagi Flugmálastjórnar Íslands og stofnun Flugstoða ohf.
Lesa meiraFlugfélagið Ernir hefur tekið nýja vél í þjónustu sína, Jetstream Super 32, 19 farþega vél sem notuð verður bæði í áætlunarflugi félagsins innanlands sem hefst í byrjun janúar og leiguflugi innanlands og utan. Kaupverð vélarinnar er liðlega 100 milljónir króna að meðtöldum varahlutum.
Lesa meiraOpinbera hlutafélagið Flugstoðir og samgönguráðuneytið gengu í dag frá þjónustusamningi um starfsemi félagsins næstu tvö árin. Tekur hann til kaupa ráðuneytisins á þjónustu Flugstoða ohf. á sviði reksturs flugvalla og flugleiðsöguþjónustu. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Ólafur Sveinsson, formaður stjórnar Flugstoða, skrifuðu undir samninginn ásamt Baldri Guðlaugssyni, ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytis.
Lesa meiraFlugmálastjórn Íslands hefur lagt fram aðgerðaáætlun sem gripið verður til ef til þess kemur að flugumferðarstjórar verði of fáir við störf þann 1. janúar þegar Flugstoðir ohf. taka við flugumferðarþjónustunni. Alþjóðaflugmálastofnunin í Montreal, ICAO, hefur samþykkt aðgerðaáætlunina.
Lesa meiraÞjóðhagslega hagkvæmt er að ráðast í lagningu nýs sæstrengs milli Íslands og Evrópu fyrr en síðar og hagkvæmara að ráðast þegar í verkið með þátttöku Færeyinga fremur en fresta lagningu hans. Með tryggu fjarskiptasambandi yrði mögulegt að byggja upp hérlendis alþjóðlega fjármálaþjónustu og gagnaþjónustumiðstöðvar.
Lesa meira
Minningarskjöldur um þá sem látist hafa í umferðarslysum á Suðurlandsvegi var afhjúpaður í gær þar sem komið hefur verið fyrir 54 krossum við Kögunarhól. Viðstaddir voru samgönguráðherra, sýslumaðurinn á Selfossi, fulltrúar sveitarfélaga í byggðinni og fulltrúar áhugahóps um tvöföldun Suðurlandsvegar.
Lesa meira
Fulltrúar St. Franciskureglunnar og ríkisins undirrituðu í gær samkomulag um kaup ríkisins á eignarhlut reglunnar í St. Franciskuspítalanum í Stykkishólmi. Tekuð ríkið við rekstri spítalans um áramótin.
Lesa meiraTilboð voru opnuð í morgun hjá Ríkiskaupum í verkefni á sviði gsm-farsímaþjónustu á landinu. Þrjú tilboð bárust, eitt frá Og fjarskiptum ehf. og tvö frá Símanum hf., annað frávikstilboð.
Lesa meiraStarfshópur um öruggt varasamband fjarskipta við umheiminn hefur skilað áliti og leggur til að ríkið og aðrir hluthafar í Faice hf. hefji viðræður um fjármögnun og rekstrarfyrirkomulag á nýjum sæstreng sem tengir Ísland við Evrópu. Einnig er lagt til að kannaður verði áhugi annarra íslenskra aðila og stefnt skuli að því að ljúka lagningu nýs sæstrengs haustið 2008. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra kynnti niðurstöðu hópsins í ríkisstjórn í morgun.
Lesa meiraRannsóknarnefnd flugslysa hefur fengið bandaríska fyrirtækið Southern California Safety Institute til að standa fyrir námskeiði í flugslysarannsóknum í Reykjavík í byrjun næsta árs. Námskeiðið er ætlað fulltrúum flugrekenda sem þurfa að koma við sögu ef flugslys verður og verður bæði bóklegt og verklegt. Þetta er í fjórða sinn sem RNF gengst fyrir námskeiði af þessum toga.
Lesa meiraÞrír kostir eru mögulegir varðandi jarðgöng milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar og tvo þeirra má útfæra á tvo vegu. Göng yrðu frá 2,4 km löng og uppí 6,3 km og gætu kostað frá 3,3 milljörðum króna uppí rúma 5,3 milljarða með vegskálum og tilheyrandi nýjum vegaköflum.
Lesa meiraÝmsar breytingar verða á hafnalögum samkvæmt frumvarpi sem Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur mælt fyrir á Alþingi og er nú til meðferðar í samgöngunefnd þingsins. Fjalla þær meðal annars um skipulagsmál hafna, gjaldskrá og gjaldtökuheimildir. Lagafrumvarpið er byggt á tillögum nefndar sem skipuð var til að endurskoða lögin.
Lesa meira
Fyrstu skrefin í þá átt að breyta yfirstjórn Keflavíkurflugvallar hafa þegar verið stigin en þau felast meðal annars í stofnun Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar ehf., skipan nefndar sérfræðinga til að undirbúa flutning á stjórnun og rekstri flugvallarins til samgönguyfirvalda og skipan starfshóps til að móta tillögur fyrir samgönguráðherra um framtíðarskipan flugverndarmála á Keflavíkurflugvelli.
Lesa meiraPóst- og fjarskiptastofnun mun bjóða út tíðnisvið fyrir þriðju kynslóð farsíma innan skamms. Gert er ráð fyrir að tíðniheimildir verði gefnar út í byrjun annars ársfjórðungs 2007.
Lesa meira
Ísland hefur gerst formlegur aðili að undirbúningi á vegum Evrópusambandsins að því að koma á sjálfvirkri hringingu úr bílum eftir neyðarhjálp ef til slyss kemur. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra undirritaði á mánudag í Brussel viljayfirlýsingu ESB um málið en nokkur aðildarríki ESB og samstarfsríki hafa undirritað slíka yfirlýsingu.
Lesa meiraKomin er út lokaskýrsla um rannsóknarverkefnið ,,Áhrif höfuðborgarsvæðisins og helstu þéttbýlisstaða.” Ráðgjafarfyrirtækið Land-ráð sf. undir stjórn Bjarna Reynarssonar hefur unnið fimm skýrslur um málið fyrir samgönguyfirvöld en markmið rannsóknarinnar er að afla glöggra upplýsinga um ferðavenjur innanlands fyrir stefnumótun í samgöngumálum.
Lesa meiraRannsóknarnefnd umferðarslysa verður á næsta ári gert mögulegt að leggja aukna áherslu á rannsóknir alvarlegra slysa en til þessa hefur nefndin svo til eingöngu getað sinnt rannsóknum banaslysa. Hefur nýr starfsmaður, Sævar Helgi Lárusson, verkfræðingur og löggiltur bifreiðaskoðunarmaður, verið ráðinn til nefndarinnar og hefur hann hefur störf strax eftir áramót.
Lesa meiraSamgönguráðuneytið, ND á Íslandi ehf. og Neyðarlínan hafa undirritað viljayfirlýsingu um að vinna sameiginlega að því að hérlendis verði unnt að taka upp sjálfvirka hringingu úr bílum í Neyðarlínuna og þróa notkun Saga-hugbúnaðarkerfisins vegna innheimtu veggjalda og eftirlits með hvíldarákvæðum í umferðarlögum.
Lesa meiraAlþingi hefur að tillögu samgönguráðherra samþykkt sérstaka fjárveitingu á fjáraukalögum til umferðaröryggisaðgerða á Suðurlandsvegi og Vesturlandsvegi. Af því tilefni var fundur haldinn í samgönguráðuneytinu í dag um umferðaröryggismál og framkvæmdir við endurbætur á Suðurlandsvegi og Vesturlandsvegi og voru málin rædd frá ýmsum hliðum.
Lesa meiraNú stendur yfir meðal sjómanna á fiskiskipum viðhorfskönnun um öryggi um borð í íslenskum fiskiskipum. Könnunin er alþjóðlegt rannsóknarverkefni og hefur að geyma 100 spurningar um viðhorf til mismunandi sviða öryggismála.
Lesa meiraSiglingaverndaráætlun Íslands var nýlega undirrituð en hún snýst um verndun almannahagsmuna meðal annars vegna hugsanlegrar ógnar af völdum hryðjuverka. Grunnur áætlunarinnar er reglugerð samningsins um Evrópska efnahagssvæðið um eflingu verndar skipa og hafna þar sem kveðið er á um að aðildarríki ESB og EES skuli leggja fram slíka áætlun.
Lesa meiraTvær reglugerðir er varða viðurlög og punkta í ökuferilsskrá vegna brota á umferðarlögum taka gildi föstudaginn 1. desember. Meginbreytingarnar eru annars vegar þær að sektir vegna umferðarlagabrota eru hækkaðar umtalsvert og geta orðið allt að 300 þúsund krónum og hins vegar að viðurlög við brotum á reglum um aksturs- og hvíldartíma varða nú bæði sekt og punkti eða punktum í ökuferilsskrá.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra mælir í dag fyrir sex lagafrumvörpum sem hann leggur fram á Alþingi. Tvö þeirra snúast um flugmál, eitt um umferð, eitt um Póst og fjarskiptastofnun og tvö varða siglingamál, áhafnir og hafnir.
Lesa meira
Rætt var um áhrif áfengis og lyfja á akstur, slysarannsóknir og umferðaröryggi í alþjóðlegu samhengi á síðari degi Umferðarþings. Gunnar Guðmundsson, sérfræðingur í lungnalækningum, sagði að syfjaðir ökumenn væru jafnhættulegir og þeir sem aka undir áhrifum áfengis og Guðmundur Freyr Úlfarsson, aðstoðarprófessor í byggingaverkfræði við Washingtonháskóla í St. Louis, sagði að samkvæmt erlendum rannsóknum væri eldri ökumönnum hættara við meiri meiðslum en þeim yngri og slysa- og dánartíðni þeirra væri hærri.
Lesa meiraMikilvægt er að auka rannsóknir á umferðarslysum og orsökum þeirra, reglugerð um hækkun sekta við umferðarlagabrotum tekur gildi 1. desember og fyrirhugaðar breytingar á umferðarlögum gera ráð fyrir að unnt verði að takmarka réttindi ungra ökumanna og beita akstursbanni vegna umferðarlagabrota. Þetta var meðal þess sem Sturla Böðvarsson samgönguráðherra kynnti á Umferðarþingi sem sett var í morgun.
Lesa meiraLögreglan á Blönduósi fékk viðurkenninguna ,,Umferðarljósið? á umferðarþingi í dag fyrir framlag sitt til umferðaröryggis. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra afhenti Bjarna Stefánssyni, sýslumanni á Blönduósi viðurkenninguna. Jafnframt tilkynnti ráðherrann að Óli H. Þórðarson fengi gullmerki Umferðarráðs fyrir merkt starf sitt á sviði umferðaröryggismála.
Lesa meiraStórátak í vegamálum var yfirskrift fundar Samtaka verslunar og þjónustu og Viðskiptaráðs Íslands í dag þar sem fjallað var um stórátak, nýjar lausnir og einkaframkvæmd í vegamálum. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra var meðal ræðumanna og sagði hann að þjóðarsátt væri að skapast um stórátak í vegamálum og full rök væru fyrir því að blása til slíks stórátaks.
Lesa meiraKristrún Lind Birgisdóttir, aðstoðarskólastjóri Lindaskóla í Kópavogi, hefur verið ráðin aðstoðarmaður Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra. Hefur hún störf í ráðuneytinu eftir næstu helgi.
Lesa meiraTveggja daga umferðarþing verður sett næstkomoandi fimmtudag með ávarpi Karls Ragnars, forstjóra Umferðarstofu, í kjölfarið flytur Sturla Böðvarsson samgönguráðherra ávarp. Ráðherra afhendir þá einnig ,,Umferðarljósið? ? verðlaunagrip Umferðarráðs en verðlaunin eru veitt einstaklingi, samtökum eða stofnun sem unnið hafa árangursríkt eða eftirtektarvert starf á sviði umferðaröryggismála.
Lesa meiraBergþór Ólason, aðstoðarmaður samgönguráðherra, hefur látið af störfum í ráðuneytinu. Hann mun leita á önnur mið eins og segir í tilkynningu frá honum til samstarfsmanna.
Lesa meira
Hópbílar fengu í gær umhverfisverðlaun Ferðamálastofu fyrir árið 2006 og afhenti Sturla Böðvarsson samgönguráðherra fulltrúum fyrirtækisins verðlaunin við lok ferðamálaráðstefnunnar.
Lesa meira,,Ég tel mjög mikilvægt að þessi mikilvæga viðbót við íslenska ferðaþjónustu fái þann sess sem henni ber og tel nauðsynlegt að um leið og tónlistar- og ráðstefnuhúsið er reist við höfnina í Reykjavík verði hugað að bættri aðstöðu skemmtiferðaskipa, gerður nýr viðlegukantur og að hægt verði að veita farþegunum þjónustu innandyra.”
Lesa meira
Við setningu ferðamálaráðstefnu í morgun sagði Sturla Böðvarsson samgönguráðherra að fjölgun ferðamanna með auknu álagi á náttúru landsins ætti ekki að vera markmið heldur að auka tekjur og hagnað ferðaþjónustunnar. Magnús Oddsson ferðamálastjóri sagði í ávarpi sínu að stjórnvöld hefðu undanfarin ár skapað atvinnugreininni það umhverfi sem hún hefur nýtt sér til framfara.
Lesa meiraÍ umræðum á Alþingi í dag um Akureyrarflugvöll og hugsanlegar umbætur á flugvellinum sagði Sturla Böðvarsson samgönguráðherra nauðsynlegt að bæta aðstöðu á vellinum meðal annars með því að lengja hann og bæta og endurnýja tæknabúnað vegna aðflugs. Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar, hóf umræðu um Akureyrarflugvöll í kjölfar frétta um að Iceland Express hyggist hætta millilandaflugi frá Akureyri vegna slæmrar aðstöðu þar.
Lesa meiraFagnað var í gær eitthundrað ára afmæli Stórhöfðavita í Vestmannaeyjum. Í afmælisathöfn sem Vestmannaeyjabær skipulagði var Óskar J. Sigurðsson vitavörður heiðraður fyrir störf sín við vitavörsluna í áratugi en fjölskylda hans hefur annast vitann svo gott sem í heila öld. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, Elliði Vignisson bæjarstjóri og fleiri fluttu ávörp og farið var í skoðunarferð í Stórhöfða.
Lesa meiraMörg hundruð jarðgöng fyrir bíla- og/eða lestarumferð eru í vegakerfi Evrópulanda, mismunandi löng og umferðarþunginn er sömuleiðis mikill. Alls eru kringum 400 í ríkjum Evrópusambandsins og munu um 114 bætast við til ársins 2010. Í Noregi eru alls tæplega þúsund göng, þar af tæplega 400 sem eru 500 m og lengri, og í Sviss eru göngin alls kringum 200.
Lesa meiraFlugráð samþykkti á fundi sínum síðastliðinn þriðjudag að stefna beri að því að um næstu áramót verði tvískipting í stjórn flugmála á Keflavíkurflugvelli afnumin. Eðlilegast sé að yfirstjórn málaflokka þar breytist til samræmis við það sem almennt tíðkist í landinu.
Lesa meiraBoðað hefur verið til umferðarþings dagana 23. og 24. nóvember næstkomandi og fer það fram á Hótel Loftleiðum í Reykjavík. Karl Ragnars, forstjóri Umferðarstofu, setur þingið og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra flytur ávarp við setninguna og afhendir Umferðarljósið, verðlaun Umferðarráðs, sem veitt eru fyrir eftirtektarvert og/eða árangursríkt starf á sviði umferðarmála.
Lesa meira
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sat í byrjun vikunnar upphaf allsherjarþings Alþjóða fjarskiptastofnunarinnar, International Telecommunication Union, ITU, í Tyrklandi. Í ávarpi sínu sagði ráðherra meðal annars að nauðsynlegt væri að endurskoða og bæta fjarskiptasamband víða um heim; það yrði að vera afkastamikið og hagkvæmt.
Lesa meiraÁ fundi um málefni Suðurlandsvegar í dag lýsti Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvá, áhuga forráðamanna fyrirtækisins á því að gangast fyrir tvöföldun vegarins í einkaframkvæmd, allt milli Reykjavíkur og Þjórsárbrúar. Sagði hann brýnt að efna til samkeppni um tilboð í verkið og hönnun þess til að unnt væri bæði að ná hagstæðasta verði og um leið tryggja bestu hönnun á sem öruggustum vegi.
Lesa meiraHertar reglur um handfarangur flugfarþega hafa tekið gildi hér á landi. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra undirritaði reglugerð þar að lútandi fyrir viku og tóku reglurnar gildi í dag. Snúast þær meðal annars um bann við flutningi vökva í handfarangri með vissum undantekningum þó.
Lesa meiraFerðamálaráð samþykkti á fundi sínum síðastliðinn föstudag að beina því til samgönguráðherra að fjárframlög til landkynningar á næsta ári verði stóraukin og að stefnt skuli að því að fjármunir til markaðssóknar verði um 300 milljónir króna árlega. Sturla Böðvarsson kveðst fagna þessum tillögum sem hann hyggst skoða nánar og vinna úr.
Lesa meiraFlutt var í gær 21 erindi á fimmtu ráðstefnu Vegagerðarinar um rannsóknir þar sem fjallað var um rannsóknir sem rannsóknasjóður Vegagerðarinnar hefur fjármagnað. Til sjóðsins rennur 1% af mörkuðum tekjum til vegamála, kringum 100 milljónir króna á ári, en umsóknir um styrki nema tvöfaldri þeirri upphæð.
Lesa meiraAlls bárust Vegagerðinni 35 tilboð í þrjú verkefni sem auglýst voru nýlega; á Hringveginum á Austurlandi, á Uxahryggjaleið og Ferjubakkavegi. Tilboðin voru opnuð sl. þriðjudag. Verkin eru misumfangsmikil en af tilboðunum 35 eru 19 undir áætluðum verktakakostnaði. Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri segir þessar tölur sýna að umsvif séu farin að minnka hjá verktökum og því séu margir sem bjóða og talsvert sé um tilboð undir áætlun Vegagerðarinnar.
Lesa meiraEldsvoðar og slys í jarðgöngum sem orðið hafa á síðustu árum í Evrópu hafa beint sjónum yfirvalda að nauðsyn þess að herða öryggisviðbúnað og öryggisreglur. Hafa lönd Evrópusambandsins og fleiri Evrópulönd komið upp víðtæku eftirlits- og öryggiskerfi sem miðar að skipulögðu björgunarstarfi til að draga sem mest úr afleiðingum slysa.
Lesa meiraÍ undirbúningi eru breytingar á lögum um Flugmálastjórn Íslands nr. 100/2006 og lögum um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum. Umsagnarfrestur er gefinn til 10. nóvember næstkomandi.
Lesa meiraDrög að frumvarpi til breytinga á umferðarlögum nr. 50/1987 eru nú tilbúin til umsagnar. Helstu breytingar fela í sér harðari viðurlög vegna hraðakstursbrota, þrepaskiptum ökuleyfisréttindum og mögulega upptöku ökutækja við ítrekuð brot. Umsagnarfrestur er til 10. nóvember næstkomandi.
Lesa meiraSendar hafa verið til birtingar í Stjórnartíðinum tvær nýjar reglugerðir þar sem hert eru viðurlög við umferðarlagabrotum. Önnur tekur til sekta og annarra viðurlaga vegna umferðarlagabrota en brýnt þótti að hækka sektir þar sem það hefur ekki verið gert síðan árið 2001. Hin reglugerðin fjallar um ökuferilsskrá og punktakerfi vegna umferðarlagabrota.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra afhenti í gær Pétri K. Maack skipunarbréf í embætti flugmálastjóra frá 1. janúar næstkomandi.
Lesa meiraLagaumhverfi ríkja er mismunandi en okkur finnst sú þróun háskaleg sem borið hefur meira á að undanförnu að þeir sem kunna að tengjast flugslysum séu lögsóttir vegna þeirra jafnvel áður en rannsókn á orsökum er lokið. Þetta segir William R. Voss, nýkjörinn forstjóri alþjóðlegu flugöryggissamtakanna Flight Safety Foundation, en hann ávarpaði árlega ráðstefnu FSF í París í síðustu viku.
Lesa meiraSamgönguráðherra hefur skipað Pétur K. Maack í embætti flugmálastjóra frá 1. janúar 2007.
Lesa meiraSamgönguráðuneytið óskar umsagna vegna draga að frumvarpi til vegalaga
Lesa meiraUndirritaður hefur verið þjónustusamningur milli samgönguráðuneytisins og Flugskóla Íslands um bóklegt atvinnuflugmannsnám.
Lesa meira
Opnuð hefur verið ný vefsíða um samgönguáætlun 2007 til 2018 og má sjá hana með því að smella á merkin efst til hægri á forsíðu vefs ráðuneytisins. Auk samgönguráætlunarinnar sjálfrar, sem leggja á fyrir Alþingi í haust, er birt þar margs konar efni sem tengist samgönguáætlun og samgöngumálum.
Lesa meiraSmíðað hefur verið nýtt lagafrumvarp um veitinga- og gististaði og skemmtanahald sem einfalda á framkvæmd leyfisútgáfu fyrir rekstur á þessum sviðum. Unnið hefur verið að samningu frumvarpsins hjá dómsmálaráðuneyti og samgönguráðuneyti. Hér með er leitað eftir umsögnum hagsmunaaðila og annarra sem telja sig málið varða og er frestur til að senda inn athugasemdir til 3. nóvember næstkomandi.
Lesa meiraÁ málþingi sem samgönguráðuneytið efndi til um árangur af einkavæðingu skipaskoðunar lýstu talsmenn skoðunarstofa, útvegsmanna og sjómanna viðhorfum sínum um hvernig til hefði tekist með framkvæmd hennar. Töldu þeir að þrátt fyrir að margt hefði áunnist væri enn margt sem þarfnaðist lagfæringar.
Lesa meiraFjarskiptasjóður, sem stofnaður var með 2,5 milljarða króna framlagi sem fékkst við sölu Landssíma Íslands, undirbýr nú þrenns konar verkefni á sviði aukinnar farsímaþjónustu, háhraða nettenginga og dreifingar sjónvarps- og útvarpssendinga til strjálbýlla svæða á landinu.
Lesa meiraÉg er mjög ánægður með aðsóknina sem sýnir að Ísland vekur áhuga og athygli meðal ferðaþjónustunnar, fjölmiðla og í viðskiptalífinu. Þetta segir Stephen Brown, forstöðumaður Icelandair í Bretlandi, um kynningarátakið Iceland Naturally sem hófst formlega í London síðastliðinn mánudag.
Lesa meiraStrandsiglingar, uppbygging hafna, markaðssetning fyrir skemmtiferðaskip, vegir, flutningar og gjaldskrármál voru meðal umræðuefna á ár hafnasambandsþingi á Höfn í Hornafirði sem haldið er í gær og í dag. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sagði meðal annars í setningarræðu sinni á þinginu að kanna ætti hvaða aðgerða þurfi að grípa til vegna hafna sem ekki hafa rekstrargrundvöll.
Lesa meiraÁ fundi í samgönguráðuneytinu í gær með fulltúum skipafélaga, Samtaka verslunar og þjónustu og Vegagerðarinnar þar sem rætt var um þróun í landflutningum og strandsiglingum upplýsti Gunnar Bachmann, framkvæmdastjóri Atlantsskipa, að fyrirtækið væri að kanna arðsemi siglinga milli Reykjavíkur og Akureyrar og jafnvel fleiri hafna. Fulltrúar Eimskips og Samskips sögðu kröfur markaðarins vera sífellt meiri tíðni en ekkert væri þó því til fyrirstöðu að hefja strandsiglingar á ný ef forsendur breyttust.
Lesa meiraÞar sem felld hefur verið úr gildi sú tímabundna ákvörðun ríkisstjórnarinnar að fresta útboðum vegna vegaframkvæmda ráðgerir Vegagerðin að bjóða út á ýmis verkefni sem tilbúin eru til útboðs víða um landið. Þrjú verk hafa þegar verið auglýst og önnur verða auglýst á næstu vikum. Jafnframt verður ráðist í átak til úrbóta á umferðaræðunum út frá Reykjavík.
Lesa meira
Gengið var í dag frá tveimur samningum milli samgönguyfirvalda og flugfélaga um áætlunarflug frá Reykjavík til nokkurra staða á landinu. Annar samningurinn er við Flugfélag Íslands til 10 mánaða um flug til Vestmannaeyja og hinn við Flugfélagið Erni um flug til Bíldudals, Gjögurs, Hafnar og Sauðárkróks. Gildir hann frá næstu áramótum í þrjú ár.
Lesa meiraÁhugi á Íslandi sem ferðamannalandi og á íslenskum vörum hefur aukist í Ameríku samkvæmt könnun sem unnin var á vegum verkefnisins Iceland Naturally. Áhuginn er ekki síst fyrir hendi hjá þeim sem kallast mættu útivistarfólk. Könnun fór fram áður en verkefnið fór af stað í Ameríku árið 1999 og aftur á þessu ári.
Lesa meiraÁkvörðun ríkisstjórnarinnar um lækkun á virðisaukaskatti á matvælum, veitingaþjónustu og hótelgistingu er í þágu íslenskrar ferðaþjónustu rétt eins og landsmanna allra. Talsmenn ferðaþjónustunnar hafa lengi barist fyrir lækkuðu matvælaverði og segir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra að með þessu hafi verið komiö til að móta til móts við þessi sjónarmið.
Lesa meiraMeðal niðurstaðna í skýrslu vegna umhverfismats samgönguáætlunar 2007 -2018 er að áætlunin sé líkleg til að hafa talsverð jákvæð samfélagsleg áhrif og ekki valda verulegum neikvæðum umhverfisáhrifum. Mikilvægt er talið að fjalla um mismunandi nýtingu hálendisins við ákvörðun um gerð og legu hálendisvega.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í dag stöðuna í þeirri ráðagerð að fá stofnanir ríkisins til að taka þátt í sameiginlegu útboði í fjarskiptaþjónustu hins opinbera. Markmið þess yrði að allar helstu stofnanir ríkisins tengist öflugu háhraðaneti en í þingsályktun um stefnu í fjarskiptamálum fyrir árin 2005 til 2010 er meðal annars kveðið á um að unnið verði að þessu markmiði.
Lesa meiraÍ tengslum við gerð samgönguáætlunar 2007 til 2018 verða nú í fyrsta sinn kynnt drög að að umhverfismati samgönguáætlunar. Með nýjum lögum sem samþykkt voru á Alþingi 2. júní síðastliðinn skal umhverfismat framvegis fylgja skipulagsáætlunum og tilteknum framkvæmdaáætlunum og þar með samgönguáætlun.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur falið Vegagerðinni að leita eftir samningum við Flugfélag Íslands um flug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja með stuðningi ríkisins. Samið yrði um flug tímabundið meðan undirbúið er útboð til lengri tíma.
Lesa meiraÍ setningarávarpi á flugþingi sem nú stendur í Reykjavík sagði Sturla Böðvarsson samgönguráðherra að fyrirsjáanlegar væru breytingar varðandi rekstur og skipan mála á Keflavíkurflugvelli í framhaldi af brottför varnarliðsins. Vísaði hann þar til samþykktar ríkisstjórnarinnar um að yfirstjórn málaflokka og stjórnsýsla þar myndi breytast til samræmis við það sem almennt tíðkaðist í landinu og unnið yrði að því.
Lesa meiraSex sóttu um embætti flugmálastjóra en umsóknarfrestur rann út um síðustu mánaðamót. Nýr flugmálastjóri tekur formlega við embættinu 1. janúar 2007. Umsækjendur eru þessir:
Lesa meiraDr. Assad Kotaite, fyrrverandi forseti fastaráðs Alþjóða flugmálastofnunarinnar, ICAO, flutti í dag fyrirlestur um framtíð alþjóðlegs flugs. Ræddi hann meðal annars um aukningu í flutningum á næstu árum og flugverndar- og flugöryggismál.
Lesa meiraVerkefnið Iceland Naturally, þar sem náttúra Íslands og matvæli eru kynnt á erlendum mörkuðum, hófst formlega í Þýskalandi síðastliðinn fimmtudag. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra flutti ávarp við opnun jarðvísindasýningar í Frankfurt en á sýningunni er Ísland kynnt í sérstakri deild.
Lesa meiraÖryggismál sjómanna og annarra sjófarenda þurfa alltaf að vera í deiglunni, sagði Sturla Böðvarsson meðal annars þegar hann setti ráðstefnu um öryggi sjófarenda í dag. Er hún haldin í Fjöltækniskóla Íslands og er hluti af dagskrá öryggisviku sjómanna sem nú stendur. Jafnframt minnti ráðherra á hvatningu öryggisvikunnar að skipshafnir efni til björgunaræfinga á morgun.
Lesa meira
Einbreiðum eða einnar akreinar brúm á Hringveginum hefur fækkað jafnt og þétt síðustu árin. Sum árin hefur fækkað um eina en mest um 10 en það var árið 2003. Á næsta ári gerir vegáætlun ráð fyrir að 8 mjóar brýr verði teknar úr notkun.
Lesa meiraSiglingastofnun Íslands fagnar nú 10 ára afmæli sínu. Stofnunin varð til við samruna Siglingamálastofnunar ríkisins og Vita- og hafnamálastofnunar 1. október 1996. Siglingastofnun er einn þeirra aðila sem standa að öryggisviku sjómanna sem nú stendur.
Lesa meiraSamþykkt var í ríkisstjórninni í morgun tillaga Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra að þegar verði hafinn undirbúningur að útboði á ríkisstyrktu áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Vegagerðinni yrði falin framkvæmd útboðsins eins og jafnan með útboð vegna áætlunarflugs.
Lesa meiraSamgönguráðuneytið og Flugmálastjórn Íslands boða til flugþings miðvikudaginn 4. október næstkomandi og fer það fram á Hótel Nordica í Reykjavík. Þar flytja innlendir og erlendir sérfræðingar níu fyrirlestra auk þess sem Sturla Böðvarsson ávarpar þingið í upphafi svo og dr. Assad Kotaite, fyrrverandi forseti ICAO, Alþjóða flugmálastofnunarinnar.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra setti formlega öryggisviku sjómanna síðdegis í gær, mánudag. Athöfnin fór fram um borð í skólaskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Sæbjörgu, á Sundunum úti fyrir Reykjavíukurhöfn og seig ráðherrann um borð í skipið úr þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF.
Lesa meiraHaldin verður á miðvikudag ráðstefna um öryggi sjófarenda og er hún hluti af öryggisviku sjómanna. Ráðstefnan fer fram í Fjöltækniskóla Íslands og mun Sturla Böðvarsson samgönguráðherra setja hana kl. 10.
Lesa meiraÖryggisvika sjómanna verður sett næstkomandi mánudag. Hún er nú haldin í þriðja sinn. Þema vikunnar er tæknileg samvinna útgerða, áhafna og aðila í landi.
Lesa meiraVerið er að kanna á vegum samgönguráðuneytisins hvort hugsanlegt sé að taka upp strandsiglingar við landið að nýju að einhverju leyti. Í tengslum við endurskoðun á samgönguáætlun sem nú stendur og í kjölfar umræðna um álag á vegakerfinu hefur Sturla Böðvarsson samgönguráðherra óskað eftir því að málið verði kannað.
Lesa meira
Embættismenn ráðuneyta á Norðurlöndunum sem annast yfirstjórn fjarskiptamála áttu í síðustu viku fund á Íslandi þar sem þeir skiptust á upplýsingum um það sem er efst á baugi í þróun fjarskiptamála.
Lesa meiraVinna þarf áfram að lagfæringu slysastaða í vegakerfinu, efla þarf umferðaröryggismat og taka verður upp umferðaröryggisúttektir. Þetta er meðal tillagna í skýrslu sem verkfræðistofan Línuhönnun vann fyrir samgönguráðuneytið um umferðaröryggi vegakerfa.
Lesa meiraFulltrúar Eurocontrol, evrópsku flugstjórnarstofnunarinnar, komu til Reykjavíkur á dögunum til að hefja undirbúning að úttekt sinni á vinnuaðstæðum og vaktakerfi flugumferðarstjóra hjá Flugmálastjórn Íslands.
Lesa meiraKringum fimm hundruð manns sóttu fund í Hallgrímskirkju síðdegis í dag, einn af sjö fundum sem haldinn var vegna tíðra umferðarslysa á árinu, til að minnast þeirra sem látist hafa og til að greina frá hertum aðgerðum sem Sturla Böðvarsson samgönguráðherra kynnti. Kjörorð fundanna var: Nú segjum við stopp!
Lesa meiraSiðustu vikuna í september verður haldin öryggisvika sjómanna í þriðja sinn. Þema vikunnar er tæknileg samvinna útgerða, áhafna og aðila í landi.
Lesa meiraSkráning er hafin á hvatningaryfirlýsinguna Nú segjum við stopp! þar sem viðkomandi lýsa því yfir að þeir hyggist fara að lögum í umferðinni. Um 4.800 manns höfðu skrifað undir yfirlýsinguna um þrjú-leytið.
Lesa meiraGengið hefur verið frá kaupum Fjöltækniskóla Íslands á Flugskóla Íslands. Fjöltækniskólinn hefur tekið ýmsum breytingum síðustu misserin og veitir nú alhliða tæknimenntun á sviði siglinga og vélstjórnar og tæknimenntun á ýmsum sviðum atvinnulífsins.
Lesa meiraUndirbúningur að rekstri æfingasvæða vegna ökukennslu, rekstur svonefndara ökugerða hefur staðið yfir um skeið hjá samgönguráðuneytinu. Er það í samræmi við umferðaröryggisáætlun ráðuneytisins sem miðar meðal annars að því að ökunemum verði skylt að þjálfa ákveðna hæfni sína við óvæntar aðstæður á slíkum æfingasvæðum.
Lesa meiraTil skoðunar er hjá samgönguyfirvöldum að taka upp í auknum mæli gerð 2+1 vega á umferðarþyngstu þjóðvegunum út frá höfuðborgarsvæðinu. Með því yrði dregið úr hættu á árekstrum bíla sem aka á móti hvor öðrum. Breyting á 1+1 vegi í 2+1 veg kostar um þriðjung af því sem kosta myndi að breyta honum í hraðbraut (2+2 veg).
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra opnaði í gær vef um sögutengda ferðaþjónustu á ferðakaupstefnunni Vestnorden í Reykjavík. Kaupstefnunni lýkur í dag en hún er haldin á hverju ári, annað hvert ár á Íslandi en hin árin í Færeyjum og Grænlandi.
Lesa meiraEfna á til sjö borgarafunda á morgun, fimmtudaginn 14. september kl. 17.15. Tilefnið er alda umferðarslysa að undanförnu og er yfirskrift fundanna sem verða haldnir á sama tíma: Nú segjum við stopp.
Lesa meiraNiðurstöður viðhorfskönnunar meðal 573 farþega í innanlandsflugi á leið til Reykjavíkur frá átta flugvöllum sem unnin var fyrir samgönguyfirvöld liggja nú fyrir. Um 93% svarenda telja flugþjónustu mikilvæga fyrir byggðarlag sitt, flestir farþega eru 35-50 ára karlar á leið til Reykjavíkur vegna vinnu og um 51% svarenda áætluðu að reka erindi sín í miðborginni og nágrenni.
Lesa meiraUm 550 manns taka þátt í Vestnorden ferðakaupstefnunni sem nú stendur í Reykjavík, þar af kringum 200 kaupendur ferðaþjónustu frá um 30 löndum. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra heimsótti kaupstefnuna í gær og ræddi við sýnendur.
Lesa meiraSamgönguráðuneytið vill taka fram vegna umfjöllunar í Morgunblaðinu í dag um hvalveiðimál að lögfræðingur sem þar er vitnað í varðandi hugsanlegar hvalveiðar Íslendinga er ekki starfsmaður ráðuneytisins.
Lesa meira
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra heimsótti í gær ferðaþjónustufyrirtækin Leirubakka og Hrauneyjar. Ræddi hann við forráðamenn þeirra, kynnti sér hugmyndir um uppbyggingu Hekluseturs og upplýsingagjöf og aðra þjónustu við ferðamenn í Rangárþingi.
Lesa meiraUm það bil 500 milljónum króna er veitt til beinna ferðamálaverkefna á þessu ári og fara af þeirri upphæð rúmlega 300 milljónir annars vegar til þriggja landkynningarskrifstofa erlendis og hins vegar í margs konar markaðsaðgerðir erlendis. Rúmlega 60 milljónum er veitt til markaðsstarfs og uppbyggingar innanlands.
Lesa meiraRaunaukning útgjalda ríkissjóðs til vegaframkvæmda var 17,5% á tímabilinu 1998 til 2006. Á sama tímabili hefur hlutdeild vegaframkvæmda af heildarfjárfestingum ríkissjóðs aukist úr 25,4% í 44,6% samkvæmt fjárlögum 2006.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra leggur áherslu á að hraðað verði uppsetningu hraðamyndavéla við þjóðvegi, umferðareftirlit lögreglu verði aukið, viðurlög við umferðarlagabrotum hert og að hugað verði sérstaklega að umferðaröryggi á fjölförnum leiðum, svo sem á stofnbrautum út frá Reykjavík.
Lesa meiraSamgönguráðuneytið hefur auglýst laust til umsóknar embætti flugmálastjóra til fimm ára. Skipað verður í stöðuna frá 1. janúar 2007.
Lesa meira
Um það bil 190 erlend skemmtiferðaskip koma til landsins í sumar. Skipin hafa flest viðkomu í Reykjavíkurhöfn en mörg koma einnig við á einni eða tveimur öðrum höfum landsins. Gera má ráð fyrir að tekjur vegna hafna- og vitagjalda séu ekki undir 130-150 milljónum króna og ferðamenn sem í land koma eru taldir verja 300-500 milljónum króna í vörur og þjónustu. Hér er hver koma skips til hafnar talin einu sinni; sum skipin koma oftar en einu sinni og sum til fleiri en einnar hafnar.
Lesa meiraUmræðutorg, netspjall og rafrænar kannanir voru umræðuefni á hádegisverðarfundi hjá Skýrslutæknifélagi Íslands í dag. Karl Alvarsson, skrifstofustjóri í samgönguráðuneytinu, var meðal ræðumanna og greindi hann frá áformum ráðuneytisins um aukið samráð meðal annars við undirbúning lagafrumvarpa og reglugerða.
Lesa meiraÞorgeir Pálsson flugmálastjóri hefur verið ráðinn forstjóri opinbera hlutafélagsins Flugstoða ohf. Tekur hann við starfinu um næstu áramót þegar Flugstoðir taka formlega til starfa. Fram að því gegnir hann áfram starfi flugmálastjóra en hann tók við því embætti 1992.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra tók á mánudag fyrstu skóflustunguna að nýju pósthúsi Íslandspósts sem reist verður á Húsavík. Er það hið fyrsta tíu pósthúsa sem byggð verða á næstu þremur árum og er verkið liður í umfangsmikilli uppbyggingu hjá fyrirtækinu.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra heimsótti í gær Saurbæ á Hvalfjarðarströnd og ræddi við forráðamenn Hallgrímskirkju á Saurbæ. Milli 10 og 12 þúsund ferðamenn heimsækja Saurbæ á ári hverju og segir ráðherra mikilvægt að vel sé staðið að móttöku og þjónustu við ferðamenn sem vitja sögufrægra staða á landinu eins og gert sé að Saurbæ.
Lesa meiraHallgrímur A. Viktorsson flugstjóri hefur verið skipaður formaður Rannsóknarnefndar flugslysa. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra afhenti Hallgrími skipunarbréf í gær.
Lesa meiraÞingeyrarflugvöllur var formlega opnaður í gær eftir endurbætur sem hófust á vordögum 2005. Völlurinn þjónar nú sem eins konar varaflugvöllur fyrir Ísafjarðarflugvöll og eykur rekstraröryggi áætlunarflugs þangað. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sagði við athöfn í flugstöðinni að völlurinn myndi auka möguleika í innanlandsflugi og kvaðst vona að hann ýtti undir vöruflutninga með flugvélum.
Lesa meiraFlugmálastjórn Sviss hefur lýst því yfir að sæki íslenskir flugrekendur eftir leyfi til flugs til þriðju ríkja innan ESB frá Sviss (án viðkomu á Íslandi) muni svissneska flugmálastjórnin veita slíkt leyfi. Mælt er með því að slík leyfi til áætlunar- og/eða leiguflugs verði gagnkvæm.
Lesa meiraVerið er að leggja drög að nýrri reglugerð um flutning á hættulegum farmi á vegum. Drögin má sjá undir hlekknum Drög til umsagnar og er hagsmunaaðilum boðið að koma á framfæri athugasemdum eigi síðar en 1. september. Skal senda þær á tölvunetfang ráðuneytisins
Verið er að undirbúa breytingar á reglugerðum um ökuskírteini og eru þær kynntar á vefsíðu samgönguráðuneytisins undir hlekknum Drög til umsagnar. Snúast þær meðal annars um hækkuð aldursmörk til aksturs hóp- og vörubifreiða í atvinnuskyni og endurmenntun. Þeir sem óska að koma á framfæri ábendingum um breytingarnar eru beðnir að gera það eigi síðar en 1. september.
Lesa meiraNiðurstöður úr fyrstu gæða- og öryggiskönnun á íslenska vegakerfinu voru kynntar í dag. Félag íslenskra bifreiðaeigenda sér um könnunina með stuðningi samgönguráðuneytisins og Umferðarstofu. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sagði er skýrslan var kynnt að tilgangurinn væri að kanna hvar gera megi betur í hönnun umferðarmannvirkja og Karl Ragnars, forstjóri Umferðarstofu, sagði að verkefninu yrði áfram í ár.
Lesa meiraFlugfélag Íslands tók formlega í notkun í gær tvær DASH 8 flugvélar sem notaðar verða einkum í leiguflug og áætlunarflug félagsins milli Íslands og Grænlands. Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri félagsins, sagði við athöfn á Reykjavíkurflugvelli að vöxtur væri í innanlandsfluginu og brýnt að tryggja tilvist þess áfram um Reykjavíkurflugvöll. Undir það tók Sturla Böðvarsson samgönguráðherra í ávarpi sínu.
Lesa meiraHér fara á eftir stuttfréttir um ökunema í Hvalfjarðargöngum, mál hjá Rannsóknarnefnd sjóslysa og hertan viðbúnað í flugi milli Bretlands og Bandaríkjanna vegna hugsanlegra hryðjuverka sem Lundúnalögreglan komst á snoðir um.
Lesa meiraTalsmenn Hvalaskoðunarsamtaka Íslands hafa nokkrar áhyggjur af hrefnuveiðum Íslendinga og telja að þær dragi úr möguleikum hvalaskoðunarfyrirtækja og séu neikvæðar fyrir starfsemi þeirra.
Lesa meiraKomin er út ársskýrsla Rannsóknarnefndar flugslysa fyrir árið 2004. Þar kemur meðal annars fram að nefndin skráði alls 527 frávik í flugi íslenskra loftfara hérlendis og erlendis og í flugi erlendra loftfara um íslenska flugstjórnarsvæðið það ár.
Lesa meiraFélagsmálaráðherra hefur óskað eftir tillögum samgönguráðuneytisins varðandi ný verkefni sem ætlað er að stuðla að auknu jafnrétti kynjanna.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra tók formlega í notkun í gær, föstudag, upplýsingaskilti um vita á Norðausturlandi sem komið hefur verið fyrir við Húsavíkurhöfn. Hörður Sigurbjarnarson, framkvæmdastjóri Norðursiglingar, hafði forgöngu um málið með stuðningi Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga og Siglingastofnun.
Lesa meira
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra fékk nokkra fulltrúa Bifhjólasamtaka lýðveldisins, Sniglanna, til skrafs og ráðagerða í ráðuneytinu í dag. Tilgangurinn var að heyra hjá þeim til hvaða ráða megi grípa til að sporna við hraðakstri á götum og vegum.
Lesa meiraVerið er að reka smiðshöggið á drög að reglugerð um þráðlausan notendabúnað til fjarskipta og gagnkvæma viðurkenningu á samræmi þeirra.
Lesa meiraDrög að nýjum reglugerðum er varða skemmtibáta eru nú til vinnslu á vegum samgönguráðuneytis. Gefinn er frestur til að veita umsagnir um drögin til 15. september næstkomandi.
Lesa meiraNýtt mál til umræðu er að finna á vef samgönguráðuneytisins á hlekknum Umræður. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tilkynnti nýlega hugmyndir sínar um breytingar á tilskipunum er varða fjarskipti og snúast þær meðal annars um stefnu í tíðnimálum, samruna á innri markaðnum, neytendavernd og fleira.
Lesa meiraAð gefnu tilefni og vegna umfjöllunar um öryggismál í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og einkarekstur við öryggisleit þar vill samgönguráðuneytið benda á nokkur atriði. Um leið er rétt að benda á að sú tilhögun sem vísað er til í grein Steinþórs Ólafssonar í Morgunblaðinu 28. júlí heyrir fortíðinni til. Ekki er lengur endurtekin leit á íslenskum flugfarþegum sem fara frá Íslandi til ESB ríkja.
Lesa meiraSturla Böðvarsson átti í morgun fundi með fulltrúum Flugmálastjórnar Íslands og Félags íslenskra flugumferðarstjóra þar sem fjallað var um vandkvæði sem upp hafa komið meðal annars varðandi nýtt vaktakerfi í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík. Ákveðið var að fá utanaðkomandi aðila til að gera úttekt á vinnuumhverfi flugumferðarstjóra á Íslandi.
Lesa meiraÍ tilefni þess að samgönguráðuneytinu hefur borist ný skýrsla um möguleika og kostnað við hugsanleg jarðgöng milli lands og Vestmannaeyja sem unnin var fyrir Ægisdyr, félag áhugamanna um jarðgöng milli lands og Eyja, vill samgönguráðuneytið taka fram eftirfarandi:
Aukin umferð vegna atvinnurekstrar og ferðamanna kallar á úrbætur í hafnamálum á ýmsum stöðum á Breiðafirði. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra segir að búseta á nokkrum eyjum á Breiðafirði, aukin starfsemi ferðaþjónustu og síaukin umferð skemmtibáta útheimti ákveðnar úrbætur á hafnarmannvirkjum.
Lesa meiraHér fara á eftir stuttfréttir um mat á árangri einkavæðingar, um tíð umferðarlagabrot og um áhuga á fyrirhuguðu forvali vegna útboðs á þéttingu gsm-farsímanetsins.
Lesa meiraEins og kunnugt er var nýlega opnað fyrir viðbrögð á vef samgönguráðuneytisins varðandi mál sem þar eru til umfjöllunar. Var fyrst leitað álits á því hvort hækka beri ökuleyfisaldur úr 17 árum í 18. Allmörg svör hafa borist og þakkar ráðuneytið viðbrögðin.
Lesa meiraOpinbera hlutafélagið Flugstoðir ohf. hélt fyrsta stjórnarfund sinn í samgönguráðuneytinu í gær, miðvikudag. Á fundinum skipti stjórnin með sér verkum og fór yfir næstu skref varðandi undirbúning fyrir starfsemi félagsins.
Lesa meiraÍ framhaldi af dómi Félagsdóms þar sem ríkið var sýknað af kröfu Félags íslenskra flugumferðarstjóra þess efnis að hverfa frá nýju vaktkerfi til eldra kerfis í Flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík hefur áfram verið reynt að leita leiða til að ná sáttum. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur hvatt deiluaðila til þess að reyna að ná sátt í málinu.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur skipað nefnd til að leggja fram tillögur um við hvaða aðstæður einkaframkvæmd í samgöngum getur talist vænlegur kostur. Nefndinni er falið að skila tillögum eigi síðar en 1. september þannig að hafa megi álit hennar til hliðsjónar við afgreiðslu samgönguáætlunar 2007 til 2018.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur skipað stýrihóp til að vinna að forathugun og eftir atvikum forhönnun og hönnun hafnar í Bakkafjöru.
Lesa meiraFélagsdómur hefur kveðið upp þann dóm í máli Félags íslenskra flugumferðarstjóra gegn ríkinu vegna breytinga á vaktkerfum hjá Flugmálastjórn Íslands að Flugmálastjórn hafi verið heimilt að taka upp nýtt vaktkerfi hjá Flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík. Í framhaldi af umræðum í kjölfar dómsins þykir samgönguráðuneytinu rétt að upplýsa eftirfarandi.
Lesa meiraHér fara á eftir stuttfréttir um Flugstoðir ohf., lagafrumvörp í undirbúningi og aldur hópferðabílaflota landsmanna.
Lesa meiraÁkveðið hefur verið að bjóða uppá umræðu á vef samgönguráðuneytisins. Þar verða kynnt mál sem eru til umfjöllunar í ráðuneytinu og leitast við að fá fram viðbrögð einstaklinga sem og hagsmunaaðila.
Lesa meiraStarfshópur sem samgönguráðherra skipaði í byrjun árs til að fjalla um rekstraraðstæður þeirra sem reka hópferðabifreiðar hefur skilað skýrslu sinni. Meðal niðurstaðna hópsins er að endurskoðuð verði álagning virðisaukaskatts af ferðaþjónustunni og áhrif virðisaukaskatts á allar greinar hennar.
Lesa meiraVegna misskilnings í umræðu um frestun vegaframkvæmda sem ríkisstjórnin hefur boðað óskar Sturla Böðvarsson samgönguráðherra að taka eftirfarandi fram:
Lesa meiraGengið hefur verið frá stofnun opinbera hlutafélagsins Flugstoðir ohf. sem er að öllu leyti í eigu ríkisins. Stofnfundurinn fór fram í samgönguráðuneytinu í dag, fimmtudaginn 6. júlí.
Lesa meiraSigurbergur Björnsson, skrifstofustjóri í samgönguráðuneytinu, hefur tekið til starfa sem fulltrúi ráðuneytisins við fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu í Brussel.
Lesa meiraVegagerðin eykur til muna vetrarþjónustu á þjóðvegum landsins næsta vetur. Sem dæmi má nefna aukna vetrarþjónustu á aðalvegum á Vestfjörðum og um norðausturhluta landsins.
Lesa meiraÁ ríkisstjórnarfundi í morgun kynnti Sturla Böðvarsson samgönguráðherra tillögur sínar um samgöngur til Vestmannaeyja, í ljósi lokaskýrslu starfshóps sem fjallaði um framtíðarmöguleika í samgöngum við Vestmannaeyjar.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra opnaði í dag formlega Selasetur Íslands á Hvammstanga. Aðsetur þess er í húsi Sigurðar Pálmasonar þar sem löngum var rekin verslun.
Lesa meiraRætt var um samgöngustefnu í Evrópu, upplýsingakerfi í samgöngum og eflingu samstarfs Norðurlandanna og Eystrarsaltsríkja á fundi samgönguráðherra Norðurlanda og Eystrarsaltslanda í Balestrand í Noregi sem lauk í dag. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sat fundinn fyrir hönd Íslands.
Lesa meiraÍ dag verður kynnt á Evrópska efnahagssvæðinu fyrirhugað forval vegna framkvæmda við áframhaldandi uppbyggingu á gsm farsímakerfinu á hringveginum og fimm fjallvegum. Eru þessir vegarkaflar samanlagt um 500 km.
Lesa meiraStarfshópur sem Sturla Böðvarsson samgönguráðherra skipaði í maí 2004 til að fjalla um samgöngur við Vestmannaeyjar leggur til í lokaskýrslu sinni að skoðuð verði nánar sú lausn að byggja ferjuhöfn í Bakkafjöru. Jafnframt eru lagðar til nokkrar frekari athuganir áður en yfirvöld taka ákvörðun.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra tók í dag formlega í notkun fyrsta ökuhermi í landinu en það eru Sjóvá, Brautin - bindindisfélag ökumanna, og samgönguráðuneytið sem sameinuðust um fjármögnun hans. Ökuhermirinn verður í nýju Forvarnahúsi Sjóvár í Kringlunni í Reykjavík en hægt er einnig að fara með hann um landið.
Lesa meiraAlþingi samþykkti nokkrar breytingar á umferðarlögum á síðustu starfsdögum sínum í vor og miða þær einkum að því að auka umferðaröryggi. Ein helsta breytingin er að styrkja lagastoðir ákvæða um akstur og hvíld bílstjóra farmflutninga- og hópferðabíla og að setja nýjar reglur um ökurita og eftirlit með notkun þeirra.
Lesa meiraÍsland hefur gerst aðili að nýjum samningi um sameiginlegt flugsvæði í Evrópu. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra undirritaði samninginn í dag í Lúxemborg en hann er grundvallaður á gagnkvæmum aðgangi að mörkuðum aðildarlandanna.
Lesa meiraFyrsta bindi bókarinnar Stjórn og sigling skipa – siglingareglur er komið út og afhenti höfundurinn, Guðjón Ármann Eyjólfsson, fyrrverandi skólastjóri Stýrimannaskólans í Reykjavík, Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra fyrsta eintakið í dag. Bókin er alls 358 blaðsíður.
Lesa meiraÁ ráðstefnu samgönguráðherra Evrópulanda, European Conference of Ministers of Transport (ECMT), á Írlandi 17. og 18. maí lýsti Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sig samþykkan því að bjóða fleiri ríkjum utan Evrópu aðild að samstarfinu en ráðstefnurnar eru haldnar árlega. Ráðstefnuna sátu að þessu sinni fulltrúar nokkurra ríkja utan Evrópu og sagði ráðherra það styrkja starf samtakanna að útvíkka starf þeirra með aðild fleiri ríkja.
Notkun farsíma í akstri, óháð því hvort notaður er handfrjáls búnaður eða ekki, getur fjórfaldað líkur á því að viðkomandi lendi í umferðaróhappi og er áhættan svipuð og því sem gerist með ölvunarakstur. Þetta kom meðal annars fram í erindi Hjalta Más Björnssonar læknis á málþingi í dag um heilsufar og akstur.
Lesa meira
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra telur einsýnt að huga beri að því að auka framkvæmdir í vegagerð á forsendum einkaframkvæmdar. Segir hann í viðtali við Viðskiptablaðið 17. maí sl. að nýta megi reynslu frá gerð Hvalfarðarganganna og leggur til að meginleiðir út frá Reykjavík til austurs og vesturs verði unnar á forsendum einkaframkvæmdar.
Öll málefni er varða bílaleigur verða framvegis falin Vegagerðinni til afgreiðslu en þau voru áður í umsjón samgönguráðuneytisins. Er þetta gert með breytingum á lögum um bílaleigur sem samþykktar voru á Alþingi nú í vor.
Lesa meiraFyrr í dag kynnti Sturla Böðvarsson sér starfsemina sem fram fer frá því að póstur berst frá Póstmiðstöðinni á Stórhöfða til dreifingarmiðstöðvarinnar í Dalshrauni í Hafnarfirði.
Lesa meiraSturla Böðvarsson flutti í dag ávarp við opnun sýningarinnar Perlan Vestfirðir sem stendur í Perlunni í Reykjavík nú um helgina. Á sýningunni eru kynnt vestfirsk fyrirtæki og stofnanir.
Lesa meiraBændablaðið gerir háhraðanetið og fjarskiptaþjónustu að umtalsefni í leiðara sínum. Rakið er hvernig Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hélt á útmánuðum yfir 20 fundi vítt og breitt um landið til að kynna fjarskiptaáætlunina.
Samráðnefnd um úttekt á Reykjavíkurflugvelli kynnti í dag stöðu verkefnisins en nefndinni var falið að gera úttekt á Reykjavíkurflugvelli og hlutverki hans sem miðstöðvar innanlandsflugs í landinu.
Lesa meiraVegna frétta um álit Félags íslenskra flugumferðarstjóra á lagafrumvarpi um heimild til að stofna hlutafélag um flugleiðsöguþjónustu og flugvallarekstur Flugmálastjórnar Íslands og tengdan rekstur sem nú er til umfjöllunar á Alþingi vill samgönguráðuneytið taka fram eftirfarandi:
Fjórar nýjar reglugerðir um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, ökurita, eftirlit og skipulag vinnutíma ökumanna og aðstoðarmanna þeirra eru nú til umsagnar. Þeir sem vilja koma á framfæri athugasemdum við reglugerðardrögin eru beðnir að senda þær samgönguráðuneytinu fyrir 15. maí.
Stjórn Íslandspósts hefur ákveðið að byggja upp aðstöðu fyrirtækisins á landsbyggðinni og er það hluti af víðtækri stefnumótun sem tryggja á þróun og vöxt Íslandspósts til framtíðar. Þá verður ráðist í endurbætur á pósthúsum á nokkrum stöðum og framundan er að endurskoða þjónustunet félagsins á höfuðborgarsvæðinu.
Ökukennarafélag Íslands og Akraneskaupstaður undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um formlegt samstarf til að undirbúa stofnun fyrirtækis sem á að sjá um rekstur sérhannaðs ökukennslusvæðis, ökugerðis. Guðbrandur Bogason, formaður Ökukennarafélags Íslands, og Guðmundur Páll Jónsson, bæjarstjóri á Akranesi undirrituðu samkomulagið og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra staðfesti það með undirritun sinni.
Lesa meira
Breytingar á tveimur reglugerðum er varða umferðarmál eru nú í undirbúningi. Annars vegar er það reglugerð um ökuskírteini og hins vegar reglugerð um skráningu ökutækja. Þeir sem óska eftir að koma á framfæri ábendingum vegna breytinganna eru beðnir að gera það skriflega við samgönguráðuneytið. Umferðarstofa hefur annast samningu draga að umræddum breytingum.
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra heimsækir Kanada dagana 19. til 23. apríl. Tilgangur ferðarinnar er þríþættur: Samgönguráðherra verður fulltrúi ríkisstjórnarinnar á þingi Þjóðræknisfélagsins í Kanada, hann kynnir markaðsátakið Iceland Naturally í Bandaríkjunum og Kanada sem hófst vestra árið 2000 og í þriðja lagi hittir hann fulltrúa stjórnvalda British Columbia.
Lesa meira
Athygli er vakin á styrkjum sem íslensk fyrirtæki, einstaklingar, stofnanir og samtök geta sótt um úr eTEN áætlun Evrópusambandsins.
Lesa meiraNokkur umræða hefur verið að undanförnu um leyfisveitingar í veitinga- og gistihúsarekstri og gögn sem afla þarf til að hefja slíkan rekstur. Fram hefur komið að sækja þarf um leyfi hjá ýmsum aðilum og leggja fram margvísleg gögn og vottorð áður en slík leyfi fást. Unnið er nú að því á vegum samgönguráðuneytis í samvinnu við dóms- og kirkjumálaráðuneyti, umhverfisráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga að skoða möguleikann á að fækka umræddum leyfum og einfalda feril gagnaöflunar. Samgönguráðuneytið vonast til að umbætur á þessum sviðum nái fram að ganga á næstu misserum.
Erindi frá samgönguþingi sem haldið var á Selfossi 5. apríl 2006 eru nú aðgengileg á vefnum.
Lesa meiraPóst- og fjarskiptastofnun hefur auglýst eftir umsóknum frá fyrirtækjum um heimild þeim til handa til að nota tíðnir fyrir háhraða aðgangsnet. Samkvæmt markmiðum fjarskiptaáætlunar samgönguráðherra 2005 til 2010, sem samþykkt var á Alþingi í fyrra, er gert ráð fyrir að allir landsmenn njóti háhraðatengingar.
Lesa meiraNæst síðasti fundurinn í röð málfunda um öryggi sjómanna var haldinn í Hafnarfirði þriðjudaginn 4. apríl. Slíkir fundir hafa í vetur verið haldnir í flestum landsfjórðungum og hafa útgerðarmenn og sjómenn sótt þá allvel.
Lesa meiraNú er unnið að undirbúningi að gerð samgönguáætlunar 2007-2018 og var á samgönguþingi 5. apríl kynnt staða vinnunnar við áætlunina og fengin voru fram sjónarmið og viðbrögð hagsmunaaðila og notenda.
Lesa meiraRáðuneytið óskar umsagna varðandi drög að reglugerð um flokkun loftfara.
Lesa meiraBjarni Ármannsson forstjóri Glitnis seldi Sturlu Böðvarssyni dráttarvél.
Lesa meiraFlugmálastjórar aðildarlanda Alþjóða flugmálastofnunarinnar, samþykktu á fundi sem haldinn var í Montreal í Kanada 20. ? 22. mars, að birta niðurstöður úttekta á stöðu flugmála í aðildarríkjunum á vefsíðu stofnunarinnar.
Lesa meiraSamgönguráðuneytið boðar til samgönguþings 5. apríl á Hótel Selfossi.
Lesa meiraAlþjóða flugmálastofnunin, ICAO, kallaði flugmálastjóra aðildarlanda sinna til ráðstefnu í aðalstöðvunum í Montreal í Kanada 20. til 22. mars til að brýna þá til endurnýjaðrar stefnumótunar og undirbúnings aðgerða á sviði flugöryggis og flugslysavarna.
Lesa meiraÍ síðustu viku heimsótti Sturla Böðvarsson aðalskrifstofu Ferðamálaráðs Evrópu í Brussel.
Lesa meiraRáðuneytið óskar eftir umsögnum varðandi fyrirhugaða breytingu á lögum nr. 50/2004 um siglingavernd.
Lesa meiraRáðuneytið óskar umsagna varðandi drög að frumvarpi til laga varðandi breytt fyrirkomulag við skráningu skipa og þinglýsingu þeirra.
Lesa meiraUmferðaröryggismál eru í brennidepli á fundi samgönguráðherra Evrópu í Austurríki.
Lesa meiraGóð viðbrögð voru við námsstefnunni "Ferðaþjónusta fyrir alla" sem samgönguráðuneytið, Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofa og Öryrkjabandalagið gengust fyrir síðastliðinn föstudag. Efni frá námsstefnunni er nú aðgengilegt hér á vefnum.
Lesa meiraFrumvarp samgönguráðherra til breytinga á umferðarlögum var rætt á Alþingi síðastliðinn föstudag.
Lesa meiraNordiska Handikappspolitiska Rådet hefur stýrt verkefninu "Ferðaþjónusta fyrir alla" (Turism för Alla) fyrir þá sem starfa í greininni og þá sem bera ábyrgð á ferðamálum innan stjórnsýslunnar. Markmið ráðsins er að hugtakið verði að mikilvægum þætti innan ferðaþjónustu og atvinnulífs bæði á norrænum vettvangi og innan hvers lands.
Lesa meiraÍ kjölfar málþings um landflutninga og umferðaröryggi sem haldið var 9. febrúar síðastliðinn vill ráðuneytið gefa hagsmunaaðilum og almenningi kost á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri við ráðuneytið.
Lesa meiraPóst- og fjarskiptastofnun hefur tilkynnt að heimilt sé að flytja símanúmer milli hefðbundinnar talsímaþjónustu og netsímaþjónustu (VoIP) nema þegar um flökkuþjónustu er að ræða.
Lesa meiraSamgönguráðuneytið, í samstarfi við Vegagerðina og Umferðarstofu, efnir til málþings um landflutninga og umferðaröryggi fimmtudaginn 9. febrúar á Grand Hótel.
Lesa meiraFulltrúi samgönguráðuneytis mun ræða málefni skipverja á kaupskipum á alþjóðavinnumálaþinginu.
Lesa meiraNýr umferðarfræðsluvefur var opnaður formlega af Sturlu Böðvarssyni fyrr í dag.
Lesa meira