Beint í leiðarkerfi vefsins.
Fólk í ferðahugleiðingum leitar iðulega til samgönguráðuneytisins til að spyrjast fyrir um þær tryggingar sem gilda vegna kaupa á flugmiðum eða alferðum.
Lesa meiraÁ aðalfundi Ferðamálasamtaka Íslands sem haldinn var 21. nóvember síðastliðinn komu fram eftirfarandi staðreyndir hjá ferðamálastjóra:
Lesa meira
Viðurkenningu Vegagerðarinnar fyrir gerð og frágang mannvirkja sem lokið var við á árunum 1999-2001 hlýtur að þessu sinni Vatnaleið á Snæfellsnesi.
Ísland fer með formennsku Norðurlandaráðs á árinu 2004. Út er kominn bæklingur á dönsku um áherslur samgönguráðuneytisins á formennskuárinu.
Fulltrúar samgönguráðherra hafa skilað af sér greinargerð eftir viðræður við stjórn Spalar um hugsanlega lækkun veggjalds og aukningu á afkastagetu Hvalfjarðarganga.
Lesa meiraÁ næstu dögum verður áframhald á fundum um öryggismál sjómanna á Akureyri, í Reyðarfirði og Vestmannaeyjum.
Samþykkt var á ríkisstjórnarfundi síðastliðinn föstudag að umferðarmál færðust frá dómsmálaráðuneytinu yfir til samgönguráðuneytisins.
Samgönguráðherra hefur staðfest nýjar snjómokstursreglur sem auka vetrarþjónustu Vegagerðarinnar.
Höfnin á Arnarstapa á Snæfellsnesi var vígð 24. október síðastliðinn. Samgönguráðherra opnaði hafnarsvæðið formlega.
Lesa meiraNýlega kom út ferðahandbók í Japan um Ísland á japönsku, en samgönguráðuneytið styrkti útgáfu hennar.
Lesa meiraSamgönguráðuneytið og Flugmálastjórn Íslands halda flugþing á Hótel Loftleiðum fimmtudaginn 23. október, undir yfirskriftinni Flug í heila öld, saga og framtíð flugsins.
Lesa meiraFimmtudaginn 18. september 2003 var í Hæstarétti kveðinn upp dómur í máli Kaupþings Búnaðarbanka hf., Flutninga ehf., Kers hf. og Framtaks fjárfestingarbanka hf gegn samgönguráðuneytinu.
Lesa meiraHinn 9. september s.l hittust samgönguráðherrar Norðurlandanna á sínum árlega fundi, að þessu sinni í Grythyttan í Svíþjóð.
Lesa meiraNýlega fundaði ráðherra með ferðaþjónustuaðilum á Akureyri og á Húsavík þar sem ýmis mál voru rædd. Á Akureyri var m.a. rætt um nýja Markaðsskrifstofu Norðurlands, flug Air Greenland á milli Akureyrar og Kaupmannahafnar og málefni gististaða í bænum.
Lesa meiraAð undanförnu hefur verið unnið að verkefnaáætlun samgönguráðuneytisins til næstu fjögurra ára.
Lesa meiraSamgönguráðuneytið mótmælir harðlega samþykkt Vélstjórafélags Íslands dagsett 21. ágúst 2003.
Lesa meiraSamgönguráðuneytið setti nýlega reglugerð um eftirlit og skráningu á afli aðalvéla íslenskra skipa, nr. 610/2003.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra og Magnús Oddsson ferðamálastjóri dvöldu í Kaupmannahöfn dagana 18-21 júlí, þar sem þeir funduðu með aðilum í ferðaþjónustu.
Lesa meiraSturla Böðvarsson, samgönguráðherra hefur ráðið Bergþór Ólason, sem aðstoðarmann og mun hann hefja störf á morgun, 1. ágúst. Bergþór er að ljúka B.S prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.
Lesa meiraSamgönguráðherra hefur skipað nýtt Flugráð. Ráðið er skipað frá og með 23. júlí 2003 og er skipunartími til fjögurra ára.
Lesa meiraÁ morgun, föstudaginn 25. júlí 2003, ganga í gildi ný lög um fjarskipti sem samþykkt voru á Alþingi sl. vor. Lögin, sem eru nr. 81/2003, innleiða fjórar tilskipanir Evrópusambandsins um fjarskipti og eina tilskipun um persónuvernd í fjarskiptum.
Lesa meiraSamgönguráðherra ásamt tveimur starfsmönnum ráðuneytisins og ferðamálastjóra heimsóttu Dali og sunnanverða Vestfirði dagana 9-10 júlí. Tilgangur ferðarinnar var að funda með forsvarsmönnum ferðamála á svæðunum.
Lesa meiraÞann 7. júlí heimsótti samgönguráðherra Skagafjörð og fundaði með forsvarsmönnum Byggðastofnunar og ferðaþjónustu á svæðinu. Á fundunum gerði ráðherra grein fyrir þeirri áherslu sem yrði á ferðamál á þessu kjörtímabili í samgönguráðuneytinu.
Lesa meiraÞann 10. júlí síðastliðinn heimsótti samgönguráðherra Tálknafjörð. Tilefnið var afhending skipsins Maríu Júlíu. María Júlía er skip á Tálknafirði sem hefur verið lagt, en skipið var sérsmíðað björgunarskip.
Lesa meiraFimmtudaginn 3. júlí s.l. fór Sturla Böðvarsson samgönguráðherra ásamt Ragnhildi Hjaltadóttur ráðuneytisstjóra og Sigurbergi Björnssyni verkefnisstjóra að skoða framkvæmdir við nýja Þjórsárbrú.
Lesa meiraÍ gær 26. júní var haldinn kynningar- og samráðsfundur um siglingavernd.
Fundurinn var ætlaður þeim sem koma á einn eða annan hátt að siglingavernd og var tilefnið að kynna þær skuldbindingar sem felast í nýjum alþjóðlegum ákvæðum um siglingavernd.
Lesa meiraÞann 19. júní síðastliðinn kom rússnesk sendinefnd hingað til lands, en sendinefndin samanstóð af fulltrúum ýmissa hafna, aðallega hafnarstjórum víðs vegar að í Rússlandi.
Lesa meiraRáðherra og ráðuneytisstjóri ásamt starfsmanni samgönguráðuneytis og Siglingastofnunar heimsóttu Þórshöfn og Raufarhöfn í síðustu viku.
Lesa meiraFlugmálastjórn Íslands er komin með nýja heimasíðu á slóðinni www.flugmalastjorn.is . Markmiðið með nýju heimasíðunni er m.a. að auka þjónustu við aðila í flugi sem og almenning.
Lesa meiraGamla sjúkrahúsið á Ísafirði hefur fengið nýtt hlutverk en á þjóðhátíðardaginn var opnað nýtt safnahús Ísfirðinga sem ber heitið Safnahúsið Eyratúni. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra opnaði húsið formlega að viðstöddu fjölmenni.
Lesa meiraNýlega var haldinn árlegur fundur Iceland Naturally þar sem tilkynnt var að samgönguráðherra hefði skipað Thomas Möller formann verkefnisins og Ársæl Harðarson sem meðstjórnanda.
Lesa meiraSamgönguráðuneytið boðar til kynningarfunda um ný hafnalög og fleira sem tengist hafnamálefnum.
Lesa meiraSamgönguráðherra hefur skipað Ragnhildi Hjaltadóttur í embætti ráðuneytisstjóra samgönguráðuneytisins frá og með 1. júní nk. Tekur hún við af Halldóri S. Kristjánssyni, sem hefur verið staðgengill Jóns Birgis Jónssonar ráðuneytisstjóra frá áramótum.
Lesa meiraLögum samkvæmt ber ferðaskrifstofum sem selja ferðir til útlanda að vera með leyfi frá samgönguráðuneytinu
Lesa meiraSamgönguráðherra hefur skipað Pál Valdimarsson, vélaverkfræðing, í Rannsóknarnefnd flugslysa. Páll er prófessor við verkfræðideild Háskóla Íslands.
Lesa meiraEmbætti ráðuneytisstjóra samgönguráðuneytis var auglýst laust til umsóknar fyrir nokkru. Umsóknarfrestur rann út 14. maí s.l. Tíu sóttu um embættið, sem veitt verður frá og með 1. júní n.k.
Lesa meiraSamgönguráðuneytið hefur tekið saman og birt í myndritum nokkrar athyglisverðar staðreyndir um samgöngur. Myndritin eru gefin út í litlu kveri undir nafninu Samgöngur í tölum 2003.
Lesa meiraSamgönguráðuneytið hefur samið við fimm sveitarfélög á Snæfellsnesi um að Snæfellsnes verði, fyrst svæða á Íslandi, gert að umhverfisvottuðum áfangastað ferðamanna.
Lesa meiraFerðamálasamstarf Íslands og Grænlands auglýsir eftir styrkumsóknum.
Lesa meiraSturla Böðvarsson, samgönguráðherra, kynnir niðurstöður nefndar um öflun viðbótarfjár til reiðvega.
Lesa meiraÁ blaðamannafundi í morgun kynnti Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, leiðbeiningarit Landssambands hestamannafélaga og Vegagerðarinnar en aldrei fyrr hafa svo ítarlegar upplýsingar um gerð reiðvega verið teknar saman á einum stað.
Tilboð í gerð jarðganga milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar, ásamt tilheyrandi vegamannvirkjum, voru opnuð hjá Vegagerðinni í gær.
Lesa meiraSamgönguráðherra tók fyrstu skóflustunguna vegna tvöföldunar Reykjanesbrautar 11. janúar s.l.
Lesa meiraEmbætti vegamálastjóra var auglýst laust til umsóknar í Morgunblaðinu 22. desember sl. og á starfatorgi.is. Umsóknarfrestur rann út 14. þ.m.
Í dag var undirritað samkomulag um varðveislu frímerkja og póstminja er tengjast frímerkjaútgáfu milli Íslandspósts og Þjóðskjalasafns. Samkomulagið byggir á vinnu starfshóps samgönguráðuneytisins, Íslandspósts, Þjóðskjalasafns og Ríkisendurskoðunar.
Lesa meiraFern lög voru samþykkt á nýafstöðnu haustþingi (128 löggjafarþing), en þau eru eftirfarandi: