Beint í leiðarkerfi vefsins.
Þriðjudaginn 18. desember undirrituðu samgönguráðherra, fjármálaráðherra, Hafnarsjóður Seyðisfjarðar og Seyðisfjarðarkaupstaður samkomulag um fjármögnun og tilhögun framkvæmda við nýtt ferjulægi á Seyðisfirði í tengslum við stækkun farþegaferjunnar Norrænu.
Lesa meiraÍ gær, þriðjudag, ákvað stjórn ferðaskrifstofunnar Samvinnuferða-Landsýnar að óska eftir gjaldþrotaskiptum. Í ljósi þessa vill samgönguráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri:
Lesa meiraSamgönguráðherra undirritaði í dag samning við Hólaskóla um eflingu fjarnáms Ferðamálabrautar skólans.
Lesa meiraNýlega var því fagnað að framkvæmdum við síðasta áfanga bundins slitlags vegarins að Geysi var lokið og jafnframt að undirritaður var samningur um Gestastofu að Geysi í Haukadal.
Lesa meiraÞann 5. nóvember 1999 skipaði samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson, nefnd um menningartengda ferðaþjónustu. Nefndin hefur gert tillögur um þau skref sem nauðsynleg eru til að þessi tegund ferðaþjónustu nái að skjóta rótum.
Lesa meiraSturla Böðvarsson, samgönguráðherra, heldur í dag, mánudag, til Montreol í Kanada þar sem hann mun sitja allsherjarþing Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, ICAO.
Lesa meiraAlþjóðlega siglingamálastofnunin IMO hefur farið þess á leit við aðildarríki sín að þau haldi hátíðlegan dag undir yfirskriftinni: Alþjóðavæðing í siglingum og hlutverk sæfarenda.
Lesa meiraFramkvæmdanefnd um einkavæðingu hefur að undanförnu unnið að undirbúningi sölu hlutafjár í Landssíma Íslands hf. í samræmi við þá stefnu sem ríkisstjórnin og ráðherranefnd um einkavæðingu markaði sl. vetur.
Lesa meiraSamgönguráðherra hefur með bréfi. dags. 24. ágúst 2001, ráðið Þormóð Þormóðsson, Brekkubyggð 9, Garðabæ, í stöðu formanns Rannsóknarnefndar flugslysa, RNF, frá og með 1. september nk. að telja.
Lesa meiraÍ ljósi reglna sem settar hafa verið á Evrópska efnahagssvæðinu og rúmast innan gildissviðs EES-samningsins taldi ráðuneytið ástæðu til þess að endurskoða lög um skipulag á fólksflutningum með hópferðabifreiðum nr. 13/1999 og lög um vöruflutninga á landi nr. 47/1994 og fella saman í einn lagabálk.
Lesa meiraSamgönguráðherra hefur skipað starfshóp til að fara yfir kostnað við gagnaflutninga og eflingu fjarskiptaneta og fjarskiptaþjónstu á Íslandi.
Lesa meiraSamgönguráðherra, Sturla Böðvarsson, situr í dag, mánudag, og á morgun, þriðjudag, fund samgönguráðherra Norðurlandanna sem haldinn er í Björneborg í Finnlandi.
Lesa meiraSturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur kynnt skýrslu um losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi. Skýrslan fjallar um stöðu losunar í dag og líklega þróun fram til 2030 og er henni ætlað að vera umræðugrundvöllur um þessi mál.
Lesa meiraMeð bréfi samgönguráðherra, dags. 18. apríl s.l., til Assads Kotaites, forseta Alþjóða flugmálastofnunarinnar, ICAO, var farið fram á það við stofnunina að hún legði mat á framkvæmd flugöryggismála hjá Flugmálastjórn Íslands.
Lesa meiraSturla Böðvarsson, samgönguráðherra, heimsótti í dag Tal hf. Ráðherra er um þessar mundir að heimsækja fyrirtæki á íslenska fjarskiptamarkaðinum í þeim tilgangi að kynna sér sem best stöðu þessara fyrirtækja.
Lesa meiraSamgönguráðherra mun á næstunni heimsækja fyrirtæki á íslenska fjarskiptamarkaðinum. Samgönguráðherra ætlar með þessu að kynna sér nánar stöðu fjarskiptafyrirtækjanna.
Lesa meiraSamgönguráðuneytið hefur tekið saman og birt í myndritum nokkrar athyglisverðar staðreyndir um samgöngur. Myndritin eru gefin út í litlu kveri undir nafninu Samgöngur í tölum.
Lesa meiraÁ ríkisstjórnarfundi í morgun gerði samgönguráðherra grein fyrir stöðu mála varðandi fyrirhugaða lagningu nýs sæstrengs frá landinu.
Lesa meiraRáðuneytið hefur látið þýða á ensku skýrslu Rannsóknarnefndar flugslysa um flugslysið í Skerjafirði þann 7. ágúst 2000. Skýrslan fer hér á eftir.
Lesa meiraSamgönguráðherra, í samráði við ráðherranefnd um einkavæðingu, hefur ákveðið að sala hlutabréfa ríkisins í Landssíma Íslands hf. hefjist í haust.
Lesa meiraSamgönguráðherra undirritar þjónustusamninga við Slysavarnafélagið Landsbjörgu.
Lesa meiraÞegar Sturla Böðvarsson samgönguráðherra tók við embætti í maí 1999 ákvað hann að unnið skyldi að gerð samgönguáætlunar sem tekur yfir núverandi flugmálaáætlun, hafnaáætlun, vegáætlun og langtímaáætlun í vegagerð.
Lesa meiraRáðherrarnir Valgerður Sverrisdóttir, Guðni Ágústsson og Sturla Böðvarsson hleypa í dag af stað kynningu á stórsýningunni Islandica 2001 sem haldin verður í Laugardalshöll í byrjun september.
Lesa meiraSamgönguráðherra hefur skipað Ísólf Gylfa Pálmason, alþingismann nýjan varaformann Ferðamálaráðs. Íslands í stað Jón Kristjánssonar sem nýlega var skipaður heilbrigðis- og tryggingaráðherra.
Lesa meiraUndanfarið hefur hafnaáætlun 2001-2004 og sjóvarnaáætlun 2001-2004 verið til meðferðar hjá samgöngunefnd Alþingis. Hér fyrir neðan er minnisblað sem samgönguráðherra lagði fyrir ríkissstjórnina í morgun.
Lesa meiraFyrsta alþjóðlega hesta- og hestavörusýningin á Íslandi verður haldin dagana 7. til 9. september. Þar mun hestaáhugamönnum gefast tækifæri til að kynnast íslenska hestinum og uppgötva eiginleika hans. Alla helgina verður í gangi skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa
Lesa meiraAðalfundur Landssíma Íslands hf. var haldinn 19. mars s.l. og hélt Sturla Böðvarsson samgönguráðherra ræðu við það tilefni. Ræða ráðherra fylgir hér á eftir.
Lesa meiraUndirritaður var af samgönguráðherra, Sturlu Böðvarssyni, vegamálastjóra, Helga Hallgrímssyni, flugmálastjóra, Þorgeiri Pálssyni, forstjóra Siglingastofnunar, Hermanni Guðjónssyni, og bæjarstjóranum í Snæfellsbæ, Kristni Jónassyni, í gær í Ólafsvík samningur um þjónustuver samgöngumála í Snæfellsbæ.
Lesa meiraSamgönguráðherra kynnti minnisblað á ríkisstjórnarfundi í morgun um leiðbeinandi reglur Póst- og fjarskiptastofnunar og Samkeppnisstofnunar um meðferð og úrlausn fjarskipta- og póstmála. Markmið slíkra reglna er vinna gegn hugsanlegri óvissu fyrirtækja um valdmörk og lögsögu þessara stjórnvalda.
Lesa meiraSamgönguráðherra hefur ákveðið að beita sér fyrir veitingu rekstrarleyfa til notkunar tíðna fyrir þriðju kynslóð farsíma með samanburðarútboði gegn umtalsverðu gjaldi. Öll fréttin fylgir hér á eftir.
Lesa meiraÍ dag, mánudaginn 19. febrúar, undirrituðu heilbrigðisráðherra, samgönguráðherra, forstjóri Tryggingastofnunar og framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands samningar við Flugfélag Íslands um áætlunar- og sjúkraflug. Fréttin fylgir hér á eftir.
Lesa meiraSkv. lögum nr. 117/1994 þarf leyfi frá samgönguráðuneytinu til að reka ferðaskrifstofu á Íslandi. Hér á heimasíðunni má finna ferðaskipuleggjendur með leyfi og ferðaskrifstofur með leyfi.
Með bréfi, dags. 23. febrúar 2000, fól samgönguráðherra Framkvæmdanefnd um einkavæðingu að gera tillögu um hvernig standa beri að sölu hlutafjár í Landssíma Íslands hf.
Lesa meiraSamgönguráðuneytið stendur fyrir fjarskiptaþingi á Grand Hóteli þann 1. febrúar nk.
Nefnd sem samgönguráðherra skipaði þann 12. febrúar 1998 nefnd til að móta reglur um tilkynningarskyldu og afmörkun siglingaleiða olíuskipa og annarra skipa sem sigla með hættulegan varning inn í íslenska efnahagslögsögu hefur lokið störum. Nefndin hefur lokið störfum og fylgir skýrsla hennar hér með.
Lesa meira