Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ný drög að lagafrumvarpi um um breytingu á lögum um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum eru nú til umsagnar hjá samgönguráðuneytinu. Unnt er að senda inn umsögn um drögin til og með miðvikudagsins 18. mars næstkomandi á netfangið postur@sam.stjr.is.
Lesa meiraDreift hefur verið á Alþingi lagafrumvarpi til breytinga á sveitarstjórnarlögum sem felur í sér að sveitarfélögum verði gert að skila ársfjórðungslega upplýsingum úr bókhaldi og reikningsskilum til afnota fyrir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, aðra opinbera aðila og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Lesa meiraTvö stór verkefni í vegagerð á suðvesturhorni landsins verða boðin út í þessum mánuði. Annars vegar er það tvöföldun á 6,5 km kafla á Suðurlandsvegi og hins vegar breikkun Vesturlandsvegar á kafla í Mosfellsbæ.
Lesa meiraKjósa á laugardaginn 20. mars um sameiningu Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar í Eyjafirði.
Lesa meira
Sjöundi fundur samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og landshlutasamtaka sveitarfélaga um eflingu sveitarfélaga var haldinn í gær á Akureyri. Nálega 50 sveitarstjórnarmenn af Norðausturlandi sátu fundinn.
Lesa meira