Beint í leiðarkerfi vefsins.
Umferðaarráð minnir ökumenn og ferðamenn á að sýna varkárni og aðgæslu nú þegar umferðarþungar ferðahelgar eru framundan. Reynslan hafi sýnt að þessi árstími sé oft erfiður í umferðinni.
Lesa meiraTil umsagnar eru nú hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu drög að endurskoðaðri reglugerð um flutning á hættulegum farmi. Þeir sem óska geta sent umsagnir sínar á netfangið postur@sam.stjr.is fram til miðvikudags 11. ágúst næstkomandi.
Lesa meiraKristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur ákveðið að framlengja skipunartíma fjárhaldsstjórnar Sveitarfélagsins Álftaness til 1. nóvember næstkomandi. Upphaflegur skipunartími hennar var til 1. ágúst.
Lesa meiraDrög að breytingu á reglugerð um stærð og þyngd ökutækja nr. 155/2007 er nú til umsagnar. Þeir sem þess óska geta sent umsagnir sínar á netfangið postur@sam.stjr.is til 5. ágúst næstkomandi.
Lesa meira
Landeyjahöfn var tekin í notkun í gær þegar Herjólfur sigldi fyrstu ferðina frá Heimaey til Landeyjahafnar með gesti og fjölda Eyjamanna í blíðskaparveðri. Þá var nokkur mannfjöldi saman kominn við höfnina til fagna komu skipsins sem var fánum skreytt. Herjólfur hóf síðan siglingar samkvæmt áætlun í morgun.
Lesa meira