Hoppa yfir valmynd

06 Hagskýrslugerð og grunnskrár

Forsætisráðuneytið
Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið
Innviðaráðuneytið
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Umfang

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð forsætisráðherra, fjármála- og efna­hagsráðherra, innviðaráðherra, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra. Undir það heyrir einn málaflokkur sem ber sama heiti og sviðið. Eftirfarandi þættir varða málefnasviðið:

  • Miðlun upplýsinga og rekstur á grunnskrám um mikilvæg réttindi.
  • Hagskýrslugerð, samræming hagtalna og hagrannsóknir.
  • Stafrænar lausnir, öryggi, upplýsinga- og þjónustuveitur og útgáfa skilríkja.
  • Grunngerð, öflun, viðhald og miðlun landupplýsinga.
  • Stefnumótun, innleiðing og samræming opinberra gagna.

Í eftirfarandi töflu má sjá fjárhagslega þróun þeirra og málefnasviðsins í heild á tímabilinu 2022–2024.

Framtíðarsýn og meginmarkmið

Framtíðarsýn málefnasviðsins er að opinber þjónusta verði byggð upp með lýðræði, skilvirkni, öryggi og þarfir almennings og atvinnulífs að leiðarljósi.

Meginmarkmið málefnasviðsins er að í opinberri þjónustu verði sjálfsafgreiðsla reglan og að gögn stjórnsýslunnar verði örugg, opin, gjaldfrjáls, heilleg, tímanleg, aðeins skráð einu sinni og varin með bestu tæknilegu lausnum á hverjum tíma.

Fjármögnun

Fjárheimild til málefnasviðsins lækkar um 143,3 m.kr. á tímabili áætlunarinnar og skýrist það að stórum hluta af aðhaldi á málefnasviðið og niðurfellingu tímabundinna fjárveitinga.

Í meðfylgjandi töflu má sjá fjárheimildir málefnasviðsins til næstu fimm ára og áætlaða skiptingu þeirra í rekstur og tilfærslur annars vegar og fjárfestingu hins vegar.


Helstu áherslur 2025-2029

6.1 Hagskýrslugerð, grunnskrár og upplýsingamál

Verkefni

Undir málefnasviðið heyra þrjár stofnanir: Hagstofa Íslands sem heyrir undir forsætis­ráðherra, Þjóðskrá Íslands sem heyrir undir innviðaráðherra og Landmælingar Íslands sem heyra undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Jafnframt nær málaflokkurinn yfir málefni um hagnýtingu opinberra gagna sem heyra bæði undir fjármála- og efnahagsráðherra og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með málefni stafrænnar umbreytingar í ríkis­rekstrinum og hagnýtingu opinberra aðila á opinberum gögnum. Bæði málefni styðja við mark­mið stafrænnar stefnu hins opinbera og öryggis- og þjónustustefnu fyrir hýsingarumhverfi (skýjaþjónustur). Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið fer með málefni hagnýtingar opinna gagna og opinberra upplýsinga hjá einkaaðilum.

Helstu áskoranir

Á síðustu árum hefur samfélagið þurft á aukinni skráningu gagna að halda, sem og miðlun ýmissa upplýsinga. Skýr sýn er á að opinber þjónusta verði byggð upp með lýðræði, skilvirkni, öryggi og þarfir almennings og atvinnulífs að leiðarljósi, eins og fram kemur bæði í stjórnar­sáttmála ríkisstjórnarinnar og framtíðarsýn málefnasviðsins. Mikið er lagt upp úr því að í opin­berri þjónustu verði sjálfsafgreiðsla reglan og að gögn stjórnsýslunnar verði m.a. tímanleg, aðeins skráð einu sinni og varin með bestu tæknilegu lausnum á hverjum tíma. Um leið er gerð rík krafa um réttleika, heilleika og tiltækileika gagnanna sem og persónuvernd. Með aukinni miðlun gjaldfrjálsra gagna þarf hið opinbera að endurskoða fjármögnun þeirra stofnana sem halda grunnskrár.

Áhrif stafrænna umbreytinga á störf á vinnumarkaði eru umtalsverð en misjöfn milli atvinnugreina. Umræða um áhrifin á íslenskt samfélag er skammt á veg komin en útreikningar Hagstofu Íslands sýna að miklar líkur eru á að um 28% íslensks vinnumarkaðar verði fyrir verulegum breytingum. Aukin stafræn færni er því lykilþáttur til að mæta þessari áskorun.

Þá felst áskorun í því að örugg sjálfsafgreiðsla á netinu verði meginleið almennings og fyrirtækja að opinberri þjónustu og að stofnanir þrói og veiti þjónustu sína á stafrænu formi á netinu. Sem dæmi má nefna allar landfræðilegar upplýsingar (kort), hagtölur, tölfræði og hvers kyns ópersónugreinanleg gögn.

Tækifæri til umbóta

Hagskýrslugerð. Stjórnvöld, atvinnulíf og almenningur þurfa í auknum mæli á að halda fjölbreyttum hagtölum sem uppfylla skilyrði um áreiðanleika og notagildi. Samhliða er sterkt ákall eftir gögnum sem stutt geta við þekkingarleit og rannsóknir. Gera þarf áreiðanlegar hag­tölur aðgengilegar þannig að þær nýtist til ýmiss konar ákvörðunartöku með einföldum og skýrum hætti en auk þess að lýsa framvindu efnahags- og félagsmála eru hagtölur gjarnan notaðar til stefnumótunar og þegar kemur að því að meta áhrif af ákvörðunum stjórnvalda með óvilhöllum hætti.

Til að svara ákalli samfélagsins verður unnið að aukinni tæknivæðingu og stafrænni þróun Hagstofunnar. Um leið verður lögð áhersla á stöðugar umbætur og þróun á nýjum aðferðum og tæknilausnum, þ.m.t. endurbætur á þjóðhagsreikningum, bætt framboð á upplýsingum um kjara- og vinnumarkaðstölfræði með áherslu á stuðning við kjaratölfræðinefnd og gerð færni­spár, frekari greiningar á lífskjörum almennings og ýmissa þjóðfélagshópa til að styðja við áherslur um mannréttindi og jafnréttismál, auk þess að styðja við sjálfbært samfélag og stöðu landsins sem velsældarhagkerfis.

Leggja þarf aukna áherslu á aðgengi að upplýsingum og gögnum með endurbótum á staf­rænum samskiptum Hagstofunnar við samfélagið, hvort sem horft er til úrtaksrannsókna Hag­stofunnar og bættrar nýtingar á stjórnsýslugögnum eða miðlunar upplýsinga á vef Hagstof­unnar. Endurbæturnar tengjast áherslum ríkisstjórnarinnar um bætt samskipti við almenning og grósku í nýsköpun.

Grunnskrár, kosningar og heildarskipulag upplýsingakerfa. Þróun og rekstur grunn­skráa ríkisins er dreifður og mikilvægt er að auka samvirkni þeirra á milli og einnig við hin ýmsu upplýsingakerfi hins opinbera. Sóknarfæri felast í að bæta heildarskipulag opinberra upplýsingakerfa sem og þjónustuvefja og tryggja þannig betur öryggi, hagkvæmni og gæði stafrænnar þjónustu.

Ríkið hefur hafið innleiðingu á gagnaflutningslaginu Straumurinn (X-Road) með það að markmiði að tengja saman öll upplýsingakerfi hins opinbera þannig að upplýsingar séu skráðar í eitt skipti í stað þess að skrá þær hjá hverri stofnun. Markmiðið er þannig að flytja gögn en ekki fólk, sem tryggir betri þjónustu, minnkar sóun, eykur skilvirkni og hefur jákvæð umhverfisáhrif.

Tækifæri er í að samhliða þessum breytingum verði greiðslufyrirkomulag endurskoðað vegna veitinga upplýsinga úr grunnskrám þar sem gögnum er dreift með öðrum hætti en nú er gert, t.a.m. með vefþjónustum. Grunnskráin þjóðskrá (kennitölur) leggur grunninn að tekju­öflunarkerfi ríkisins, almannatryggingakerfi landsins, banka- og viðskiptamannakerfi og staf­rænni opin­berri þjónustu svo eitthvað sé talið og því brýnt að kerfið sé í stakk búið að uppfylla kröfur samtímans.

Einnig liggja tækifæri í að vinna að endurhönnun og uppfærslu á skrám/gagnagrunnum Þjóðskrár Íslands til að koma til móts við auknar kröfur um vernd persónuupplýsinga og aukna þróun í upplýsingatækni. Nauðsynlegt er að stjórna hvernig og hvaða persónuupplýsingum er miðlað til að tryggja öryggi upplýsinganna og til samræmis við öryggisflokkun gagna ríkisins.

Til að mæta áskorunum er varða skráningu og miðlun gagna hefur verið lögð áhersla á að bæta stafræna þjónustu og auka sjálfsafgreiðslu í skráningu hjá Þjóðskrá Íslands. Þá er verið að vinna að því að vefuppfletti og vefþjónustum verði komið á fyrir miðlun þjóðskrár­upplýsinga.

Stafræn stefna um þjónustu hins opinbera leggur m.a. áherslu á aukna samkeppnishæfni Íslands í alþjóðasamhengi. Hluti af því er að gögn hins opinbera verði gerð aðgengileg og hagnýtt að teknu tilliti til persónuverndarsjónarmiða og samþykkis einstaklinga. Að sama skapi skuli möguleikar stafrænna innviða nýttir til að auka lýðræðislega þátttöku með gagnvirkni og samráði við almenning.

Grunnskrár leika lykilhlutverk í að stuðla að bættum samskiptum við almenning sem er ein af velsældaráherslum ríkisstjórnarinnar. Framþróun grunnskráa og aðgengileiki upplýsinga tengist velsældaráherslum um grósku í nýsköpun og kolefnishlutlausa framtíð.

Til að auka jafnrétti og velsæld er grundvallaratriði að styðja við jafnt aðgengi ólíkra sam­félagshópa að stafrænni þjónustu og að gögnum sem varða hópinn beint. Mikilvægt er að greina frekar gögn í málaflokknum eftir kyni og öðrum bak­grunnsbreytum en haldbær gögn skortir um stöðu jaðarsettra hópa.

Þróun umboðskerfis fyrir einstaklinga með skert aðgengi eða færni í stafrænum aðgerðum er mikilvægt verkefni og tækifæri til að jafna aðstöðumun að stafrænum þjónustum ríkisins. Að sama skapi styrkir umboðskerfið öryggi og rekjanleika í stafrænni þjónustu. Umboðskerfið er þróað af Stafrænu Íslandi í samstarfi við önnur ráðuneyti.

Auknir sjálfsafgreiðslumöguleikar auka tækifæri einstaklinga af öllum kynjum til að taka þátt í ákvörðunum er varða þeirra eigin hagsmuni. Ekki liggur fyrir mat á áhrifum á ólaunaða vinnu sem þessu kann að fylgja fyrir aðstandendur en konur sinna almennt meiri ólaunaðri vinnu en karlar. Unnið er að verkefni sem ætlað er að varpa ljósi á áhrif stafvæðingar þjónustu á jafnrétti kynjanna út frá sjónarhóli notenda.

Opin gögn. Opin gögn skapa jákvæð samfélagsleg, efnahagsleg og pólitísk áhrif, t.d. í formi bættrar þjónustu, gagnsæis, nýsköpunar hjá hinu opinbera og á einkamarkaði og með bættri ákvarðanatöku opinberra aðila. Opinberar stofnanir nota mismunandi aðferðafræði og hugbúnað við að safna saman gögnum og við greiningu þeirra og mismunandi hugbúnað við framsetningu. Nauðsynlegt er að stuðla að samræmingu milli opinberra stofnana varðandi gagnavinnslu. Stefnt verður að því að öll ópersónubundin opinber gögn sem megi birta séu aðgengileg á stafrænu formi, án endurgjalds. Þá verður unnið að mótun stefnu og skipulags sem tryggir markvissar aðgerðir svo opin gögn skapi verðmæti fyrir samfélagið. Þannig má fjölga nýsköpunarmöguleikum, styrkja atvinnulífið, ýta undir rannsóknir og auka traust og gagnsæi í stjórnsýslunni. Lagt hefur verið fram frumvarp á Alþingi til breytingar á lögum um endurnot opinberra upplýsinga á grundvelli tilskipunar ESB 2019/1024 til að styrkja þá vegferð þar sem kveðið er á um frumkvæðisbirtingu mikilvægra gagnasetta á notendavænan hátt og án endurgjalds. Á vefsvæðinu opingogn.is veita opinberir aðilar aðgengi að gögnum sínum. Ráðgert er að endurskipuleggja vefsvæðið m.t.t. framsetningar og betra aðgengis að þeim gagnasettum og vefþjónustum sem ríkisaðilar bjóða upp á.

Áhættuþættir

Fyrirkomulag rekstrar og stjórnskipan upplýsingakerfa ríkisins hefur mikið um það að segja hvernig aðgengi að gögnum er háttað, hvernig þeim er miðlað innan ríkisins og hvernig þau eru birt einstaklingum og lögaðilum. Ríkisaðilar hafa lengi búið við dreifstýrða högun í upp­lýsingatækni. Slíkt fyrirkomulag býður upp á sveigjanleika en þó á kostnað samræmingar og samhæfingar. Gögn eru því ekki endilega á samræmdu formi eða notkun sambærilegra gagna aðgengileg milli upplýsingakerfa. Lítil samræming í skipan er því stór áhættuþáttur þegar kemur að aukinni hagnýtingu og einskráningu gagna.

Markmið og mælikvarðar

Markmið

HM

Mælikvarðar

Staða 2023

Viðmið 2025

Viðmið 2029

1. Auka framboð öruggrar, stafrænnar þjónustu.

16.6

 

Frammistaða í stafrænni þjónustu stjórnvalda skv. EU eGovernment Benchmark.

4. sæti

1.–3. sæti

1.–3. sæti

 

 

2. Bæta gæði, framboð og aðgengi að opinberum gögnum og auka mögu­leika fólks til lýðræðis­legrar þátttöku.

16.6, 16.1,10.2

Árangursvísir European Data Portal fyrir opin gögn1 sem hlutfall af hæsta gildi stigagjafarinnar.

58

75

85

 

Mælikvarði við markmið 1, Fjöldi vefþjónustu (API) aðgengilegur fyrir grunnskrár ríkisins, hefur verið fjar­lægður þar sem fjöldi vefþjónusta segir ekki til um virði þeirra gagna sem vefþjónustan (miðlunin) býður upp á.

1 European Data Portal hefur gert úttekt (e. maturity assessment) vegna opinna gagna hjá þjóðum Evrópu sem metur stefnu, vefgátt, ávinning og gæði. Hæsta samanlagða gildi er 2.600 stig og er þjóðunum raðað eftir því hver árangur þeirra er að því að ná því marki, mældur í prósentum. https://data.europa.eu/en/publications/open-data-maturity/2022

Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum