Umsagnaraðilar um mál í vinnslu hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti hefur leitast við að senda hagsmunaaðilum til umsagnar hvers konar drög að lagafrumvörpum og reglugerðum sem snerta viðkomandi starfsgrein. Málaflokkarnir sem falla undir ráðuneytið eru fjarskiptamál, flugmál, siglingamál, sveitarstjórnarmál, Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, umferðarmál og vegamál.
Þeir sem vilja fá send drög að frumvörpum eða reglugerðum sem eru í smíðum á vegum ráðuneytisins eru beðnir að senda ósk þess efnis á tölvupóstfangið postur@sam.stjr.is. Umsögnum skal fylgja fullt nafn sendanda.
