12 - 2010 Belgar munu vinna að framgangi Eurovignett málsins innan Evrópusambandsins
Sjálfbærni, öryggi og frumkvöðulsháttur (innovation) eru þau þrjú atriði sem Belgar munu setja á oddinn er þeir taka við forsæti ráðherraráðs ESB, en þeir munu taka við formennskunni af Spánverjum um mitt þetta ár.
Belgar munu vinna að því að sátt náist um þetta viðkvæma mál innan ESB svo einstökum ríkjum verði gert kleift að taka upp gjaldtökukerfi fyrir afnot vega sem tekur tillit til alls ytri kostnaðar við flutninga á vörum.
Belgar munu einnig leggja áherslu á borgarsamgöngur (urban transport) sem lagt var fram af framkvæmdastjórninni í september á síðast liðnu ári.
Þá munu samgöngur á sjó verða í forgrunni sérstaklega Short Sea Shipping hugtakið sem snýst um að efla samgöngur á sjó.
Jafnframt munu Belgar leggja áherslu á umferðaröryggi í samræmi við áherslur hvítbókar um samgöngur og aðgerðaráætlunar um umferðaröryggi 2011-2020.
Þetta má lesa í 3932-hefti Europolitics
