Evrópumál

11 - 2010 Evrópuþingið leitast við að auka hjálp við fjölskyldur fórnarlamba slysa

8.3.2010

Þingmaður á Evrópuþinginu telur að rétt sé að skylda flugfélög sem skráð eru innan Evrópusambandsins til að setja upp aðgerðaráætlun til að hjálpa fórnarlömbum, þar með talda sálfræðilega hjálp. Þingmaðurinn, Christine de Veyrac, leiðir umfjöllun þingsins á málinu.

Alla jafna eru flugfélög fyrsti aðilinn sem fjölskyldur farþega snúa sér til þegar slys verða. Því er til athugunar að skylda farþega til að gefa upp fjölskyldutengilið sem hafa má samband við þegar slys verður en sá háttur er hafður á í Bandaríkjunum. Christine de Veyrac leggur til að hvert land tilnefni einn tengilið fyrir fjölskyldur til að hafa samband við. Aðstandendur geta átt erfitt með að átta sig á erfiðum aðstæðum. Tengiliðurinn gæti samhæft upplýsingar frá mörgum aðilum, sent fjölskyldum og gert þeim grein fyrir því sem á eftir fylgir. Þá verði fjölskyldum gerð grein fyrir framgangi rannsókna bæði bráðabirgðaniðurstöðum sem og endanlegum niðurstöðum áður en þær verða gerðar opinberar.

Í tillögum framkvæmdastjórnarinnar um málið er gert ráð fyrir neti stofnana sem stjórna rannsóknum en tilgangurinn með því er að skiptast á upplýsingum og styrkja samvinnu. Ráðherraráðinu hefur verið legið á hálsi fyrir að reyna að minnka gildi þessara tillagna. Því ætlar de Veyrac að skilgreina nákvæmlega hlutverk hinna nýju tengiliða. Hún tekur þó fram að ekki sé verið að reyna að setja á fót nýtt embætti.

Tillagan verður næst rædd í nefnd Evrópuþingsins sem fer með samgöngumál, TRAN-nefndinni svokölluðu, þann 28. apríl 2010. Eftir það hafa þingmenn frest til 4. maí til að koma með athugsemdir og tillögur til breytinga. Greidd verða atkvæði þann 1. júní 2010 í TRAN-nefndinni og í Evrópuþinginu í júlí nk. Afstaða ráðherraráðsins verður ljós að öllum líkindum þann 11. mars 2010.

Þetta má lesa í 3931-hefti Europolitics

Senda grein


Aðgengismál

Ýmsar PDF-skrár sem vísað er til á þessum síðum um Evrópumál, t.d. þær sem koma frá Europolitics, eru ekki aðgengilegar fyrir skjálesara. Textaútdráttur fylgir en ef frekari upplýsinga er óskað hafið vinsamlegast samband við ráðuneytið.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica