Evrópumál

9 - 2010 Pólitísk skuldbinding um samevrópskt loftrými

2.3.2010

 Á fundi framkvæmdastjórnarinnar í Madríd 25. og 26. febrúar 2010 varð eining um að setja aukinn kraft í vinnuna við samevrópskt loftrými.

 Samþykkt var sérstök yfirlýsing, Madrídar-yfirlýsingin, um að stefnt yrði að samevrópsku loftrými árið 2012. Í yfirlýsingunni felst innleiðing á löggjöfinni sem samþykkt var í lok árs 2009, sérstaklega um svokölluð FABs eða functional airspace blocks eða flugumferðarstjórnarsvæði sem byggjast á umferð og flæði hennar fremur en landamærum.

Þá þarf að semja reglur um frammistöðumælikvarða um öryggi og umhverfismál og þurfa þeir að vera tilbúnir fyrir sumarið 2010. Þá hafa skuldbindingar um samvinnu borgaralegra og hernaðarlegra yfirvalda litið dagsins ljós auk þess sem hafa á samráð við aðila iðnaðarins og félagslega hópa. Þá er Madrídar-yfirlýsingin skuldbinding um að gera alvöru úr þróun SESAR sem er framtíðarflugumferðarstjórnarkerfi Evrópu.

Þetta má lesa í 3929-hefti Europolitics.

Senda grein


Aðgengismál

Ýmsar PDF-skrár sem vísað er til á þessum síðum um Evrópumál, t.d. þær sem koma frá Europolitics, eru ekki aðgengilegar fyrir skjálesara. Textaútdráttur fylgir en ef frekari upplýsinga er óskað hafið vinsamlegast samband við ráðuneytið.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica