5 - 2010 Samkomulag um notkun líkamsskanna hugsanlegt næsta sumar
Rætt var um notkun líkamsskanna sem hluta af öryggisbúnaði flugvalla á óformlegum fundi samgönguráðherra í La Coruna á Spáni þann 12. febrúar 2010.
Að fundinum loknum lýsti spænski samgönguráðherrann því yfir að hann væri bjartsýnn á að samkomulag yrði um notkun þeirra í sumar. Ráðherrarnir voru sammála um að tækni yrði að vera lykilatriði í auknu öryggi farþega í flugi og að samkomulag yrði að vera um stefnuna innan ESB. Eins og er eru slíkir skannar í notkun á flugvöllum í Bretlandi og Hollandi en lönd eins og Frakkland, Ítalía og Danmörk íhuga að taka þá í notkun bráðlega. Engar sameiginlegar reglur eru til um slíka tækni innan ESB. Í lok árs 2008 óskaði Evrópuþingið eftir því að framkvæmdastjórnin gerði skýrslu um málið og má gera ráð fyrir að farið verði ofan í kjölinn á henni undir forystu Spánverja, hugsanlega á fundi samgönguráðherra ESB, Transport Council, í júní 2010. Svo virðist sem ráðherrarnir séu viljugir til að stíga skrefið til fulls og taka líkamsskanna í notkun svo fremi að friðhelgi einkalífsins sé virt sem og heilbrigðissjónarmið auk annarra mikilvægra atriða.
Þetta má lesa í 3919-hefti Europolitics
