Evrópumál

98. Rafræn stjórnsýsla

23.11.2009

Þó ekki sé auðvelt að bera saman gæði rafrænnar stjórnsýslu milli Evrópulanda er ljóst að sex ríki: Austurríki, Malta, portúgal, Stóra-Bretland, Svíþjóð og Slóvenía eru í forystu í því efni.

Þó ekki sé auðvelt að bera saman gæði rafrænnar stjórnsýslu milli Evrópulanda er ljóst að sex ríki: Austurríki, Malta, portúgal, Stóra-Bretland, Svíþjóð og Slóvenía eru í forystu í því efni. Þessi ríki bjóða þegar upp á þjónustu á 20 sviðum á netinu. Þar má nefna skráning fyrirtækja, breytingu á heimilisfangi, heilsuupplýsingar, umsókn um vegabréf og geiðslu tekjuskatta. Í heildina litið hefur ástandið á þessu sviði batnað í þessum löndum frá 2007. Í dag er að meðaltali um 71% af þeirri þjónustu sem telst til grunnþjónustu innan Evrópusambandsins boðin á netinu í samanburði við 59% árið 2007. Önnur lönd, sérstaklega í mið og austur- Evrópu og Grikkland, eru á eftir í þróuninni.

Svíar, sem fara með forystu innan ESB eins og er, leggja mikla áherslu á þetta málefni. Í yfirlýsingu sem tekin var á ráðherrafundi sambandsins í Malmö í Svíþjóð þann 18. nóvember 2009, og mun gilda til 2015, koma fram markmið um að aðgangur að rafrænni þjónustu fyrir atvinnulífið og almenning verði aðlagaður að þörfum notenda..

Um þetta má lesa í 3864-hefti Europolitics sem finna má hér

 

Senda grein


Aðgengismál

Ýmsar PDF-skrár sem vísað er til á þessum síðum um Evrópumál, t.d. þær sem koma frá Europolitics, eru ekki aðgengilegar fyrir skjálesara. Textaútdráttur fylgir en ef frekari upplýsinga er óskað hafið vinsamlegast samband við ráðuneytið.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica