88. Framkvæmdastjórnin auðveldar aðgang að Marco Polo áætluninni
Þann 9. október 2009 samþykkti framkvæmdastjórn Evrópusambandsins nýjar reglur til að auðvelda fyrirtækjum að taka þátt í Marco Polo áætluninni en með henni ætlar Evrópusambandið að færa flutninga á vörum sem hafa verið á vegum til þessa á aðrar flutningamáta eins og járnbrautir og skipgengar vatnaleiðir. Með því á að draga úr umferðarteppum á vegum. Til að auðvelda fyrirtækjum að taka þátt í áætluninni og fá styrki til verkefna í anda hennar hyggst framkvæmdastjórnin stytta tíma frá því umsókn er lögð inn þar til samningur er undirritaður, lækka það lágmark sem færa þarf á milli flutningamáta til að fá styrki auk þess sem hafa á fresti til að ljúka verkefnum, þ.e. hafa fært tilskilið magn á milli flutningsmáta, sveigjanlegri. Þá verður áætlunin einnig látin ná yfir flutninga á tómum gámum og flutningatækjum, svo fremi sem þau séu færð af vegum.
Nánar má lesa um þetta í 3836-hefti Europolitics sem finna má hér
