Evrópumál

81. Kynningarrit um orðsendingu framkvæmdastjórnarinnar um sjálfbærar samgöngur

26.9.2009

Framkvæmdastjórnin hefur gefið út kynningarrit um orðsendingu sína um sjálfbærar samgöngur. Orðsendingin, A sustainable future for transport: Towards an integrated, technology-led and user-friendly system (COM(2009) 279 (final), er frá 17 júní 2009 og var gefinn frestur til 30 september 2009 til að koma að sjónarmiðum og athugsemdum.

Framkvæmdastjórnin hefur gefið út kynningarrit um orðsendingu sína um sjálfbærar samgöngur. Orðsendingin, A sustainable future for transport: Towards an integrated, technology-led and user-friendly system (COM(2009) 279 (final), er frá 17 júní 2009 og var gefinn frestur til 30 september 2009 til að koma að sjónarmiðum og athugsemdum.

Í formála að ritinu segir Antonion Tajani meðal annars að mikill þrýsingur sé á að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, vaxandi eftirspurn og minkandi framleiðsla þrýsti olíuverði upp í áður óþekktar hæðir og að umferðarteppur séu að nálgast óþolandi stig í mörgum borgum, flugvöllum og höfnum. Stærð þessara vandamála sé slík að umbreyting samgangna frá því sem við þekkjum í dag er óhjákvæmileg á næstu áratugum. Engu að síður eru aðföng til að mæta þessum aðsteðjandi vanda minni en áður vegna kreppunnar og þess að meðalaldur íbúa Evrópu hækkar.

Orðsendingin sem kynningarritið fjallar um er bæði stefnurit með framtíðarsýn og samráðsplagg sem hefur það að markmiði að safna saman eins mörgum sjónarmiðum og hægt er um hvernig hægt sé að koma þessari framtíðarsýn í raunhæfan búning. Með aðstoð þeirra ábendinga sem berast á síðan að skapa nýja hvítbók árið 2010 um samgöngur á næsta áratug.

Í kynningarritinu er:

  - litið til framtíðar, þ.e. hvert stefnir, með hliðsjón af málum eins og hækkandi meðalaldri, fólksflutningum, umhverfisógnum og þverrandi olíulindum,

  - litið til stefnumála fyrir sjálfbærar samgöngur með hliðsjón af atriðum eins og samhæfingu samgöngumátanna í eitt kerfi, öryggi og gæði í samgöngum, umhverfislega sjálfbærum samgöngum, verlagningu og aðgengi.

  - litið til stefnumótunar fyrir sjálfbærar samgöngur með hliðsjón af innviðum, þróun þeirra og viðhaldi, fjármögnun og hvernig fé verður fundið til að fjármagna samgöngur, lagaumhverfi, hegðun og breyting hennar ofl.

Hér má finna kynningarritið þar sem lesa má nánar um þetta mál



Senda grein


Aðgengismál

Ýmsar PDF-skrár sem vísað er til á þessum síðum um Evrópumál, t.d. þær sem koma frá Europolitics, eru ekki aðgengilegar fyrir skjálesara. Textaútdráttur fylgir en ef frekari upplýsinga er óskað hafið vinsamlegast samband við ráðuneytið.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica