Evrópumál

76. Evrópusambandið aðlagar leiðbeiningar um fjárstuðning til svæðaflugvalla.

12.9.2009

Ætlunin er að endurskoða leiðbeiningar um fjármögnun svæðaflugvalla og aðstoð til flugfélaga sem þjóna slíkum flugvöllum.

Ætlunin er að endurskoða leiðbeiningar um fjármögnun svæðaflugvalla og aðstoð til flugfélaga sem þjóna slíkum flugvöllum. Reiknað er með að leiðbeiningarnar verði endurskoðaðar á fyrstu mánuðum ársins 2010. Leiðbeiningarnar takmarka fjárframlög frá hinu opinbera til slíkra flugvalla og setja skilyrði fyrir styrk til flugfélaga sem þjóna svæðaflugvöllum til að hefja starfsemi á tilteknum leiðum. Núverandi reglur eru taldar óþarflega nákvæmar og erfiðar en uppfylla þarf fjölda skilyrða til að hljóta styrk. Þá er gert ráð fyrir að kynntar verði aðgerðir vegna núverandi aðstæðna í efnahagslífi heimsins. Í núverandi leiðbeiningum eru til dæmis ákvæði um að ekki megi styrkja leiðir lengur en þrjú ár og að eftir það eigi þær að vera orðnar arðbærar. Spurningar hafa vaknað um leiðir sem uppfylla ekki þetta skilyrði eingöngu vegna kreppunnar sem nú ríkir. Líklegt er talið að tímabilið verði lengt í fimm ár af þessum sökum.

Þetta má lesa í 3814 hefi Europolitics sem finn má hér.



Senda grein


Aðgengismál

Ýmsar PDF-skrár sem vísað er til á þessum síðum um Evrópumál, t.d. þær sem koma frá Europolitics, eru ekki aðgengilegar fyrir skjálesara. Textaútdráttur fylgir en ef frekari upplýsinga er óskað hafið vinsamlegast samband við ráðuneytið.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica