74. Ráðherraráðið samþykkir tvær reglugerðir um flug; um samevrópska loftrýmið og flugslysarannsóknir.
Ráðherraráðið samþykkti í dag reglugerð sem leysir af hólmi reglugerðirnar fjórar um samevrópska loftrýmið.
Síðan reglugerðirnar fjórar um samevrópska loftrýmið voru samþykktar hefur komið í ljós að nauðsynlegt er að gera á þeim nokkrar endurbætur.
Ráðherraráðið samþykkti í dag reglugerð sem leysir af hólmi reglugerðirnar fjórar um samevrópska loftrýmið.
Síðan reglugerðirnar fjórar um samevrópska loftrýmið voru samþykktar hefur komið í ljós að nauðsynlegt er að gera á þeim nokkrar endurbætur. Í fyrsta lagi hefur þótt nauðsynlegt að auka sjálfbærni flugs innan Evrópusambandsins og draga úr umhverfisáhrifum þess. Auk þess hefur þótt ástæða til að lækka kostnað, draga úr töfum og tryggja að sameiginlega evrópska loftrýminu sé vel stjórnað og að það sé gert með gagnsæjum hætti.
Sameiginlega evrópska loftrýminu var komið á fót með fjórum reglugerðum:
- Regulation (EC) No 549/2004 laying down the framework for the creation of the Single European Sky,
- Regulation (EC) No 550/2004 on the provision of air navigation services in the Single European Sky,
- Regulation (EC) No 551/2004 on the organisation and use of the airspace in the Single European Sky og
- Regulation (EC) No 552/2004 on the interoperability of the European air traffic management network.
Reglugerðin sem ráðherraráðið samþykkti í dag leysir allar fjórar reglugerðirnar um samevrópska loftrýmið af hólmi. Í henni er jafnframt sett tímamörk fyrir innleiðingu „functional airspace blocks“ en það eru flugumferðarstjórnunar einingar sem eiga að vera grundvöllur skynsamlegra flugstjórnunarkerfis.
Seinni reglugerðin sem ráðherraráðið samþykkti í dag er um Flugöryggisstofnun Evrópu, EASA. Hún leysir af hólmi reglugerð EB No 216/2008 „on common rules in the field of civil aviation and establishing a European Aviation Safety Agency“, og á að auka öryggi flughafna og öryggi í flugumferðarstjórnun ásamt öðru. Með reglugerðinni er EASA nú falið að sjá um reglugerðarsmíð og eftirlit með stöðlum þar sem nauðsynlegt verður að samhæfa öryggisreglur með hinni nýju reglugerð um Samevrópskt loftrými.
Nánar má lesa um þetta á eftirfarandi slóðum:
http://www.consilium.europa.eu/uedocs/cms_Data/docs/pressdata/en/trans/109950.pdf
http://register.consilium.europa.eu/pdf/en/09/st03/st03640.en09.pdf
http://register.consilium.europa.eu/pdf/en/09/st03/st03641.en09.pdf
