71. EASA tekur meiri þátt í rannsóknum slysa
Framkvæmdastjórnin undirbýr nú að styrkja löggjöf EB um rannsóknir á flugslysum. Gert er ráð fyrir að tveimur tilskipunum verði breytt. Annars vegar 94/56 en með henni voru sett niður grundvallaratriði um rannsóknir flugslysa. Hins vegar tilskipun 2003/42 en með henni er tilkynning slysa og atvika gerð að skyldu. Hugsanlega verða hinar nýju tillögur framkvæmdastjórnarinnar kynntar í haust.
Með tillögunum verður hlutverk EASA, European Aviation Safety Agency, við rannsóknir flugslysa skýrt auk þess sem að með breytingunum verður EASA heimilað að veita aðgang að gögnum sem stofnunin hefur undir höndum og heimila notkun þeirra við að gera öryggisreglur betri.
Hægt er að lesa frekar um þetta í 3810 hefti Europolitics sem finna má hér.
